Alþýðublaðið - 19.06.1959, Blaðsíða 12
ÞAR eð veruleg brögð liafa
verið að því, að neyzlumjólk
bæjarbúa hafi undanfarnar vik
ur værið með súrbragði og
geymzt illa, samþykti heilbrigð
isnefnd Reykjavíkur á fundi
sínum nýlega að óska eftir skrif
lcgri greinargerð frá forstjóra
Miólkursamsölunnar í Reykja-
vík varðandi eftirtalin atriði:
1. Um magn það af mjólk, sem
flokkast hefur í hina fjóra
gæðaflokka við litprófun
hjá Mjólkursamsölunni í
Reykjavík, Mjólkursamlagi
Borgfirðinga og Mjólkurbúi
Flóamanna frá 1. janúar
til þessa dags.
Um aðstæður mjólkurfram-
leiðenda á framleiðslusvæði
fyrir Reykjavík til kæling-
ar mjólkur.
3 Um hvernig flutningi mjólk
ur frá framleiðanda til
mjólkurbús er háttað, sér-
staklega hvort brögð séu að
því, að mjólk standi óvaVxn
Alhvít jörð á
Akureyri 17. júní
íFregn til Alþýðublaðsins.
lAkureyi'i í gær.
IHEITA má að hvítt sé niður
,í sjó hér um slóðir, kalt í veðri
og- bjart. í fyrrinótt gerði mik-
ið morðaustan veður og hvítn-
aði yfir allt. Vegir spilltust
sums staðar Og er Vaðlaheiði
varla fær enn.
Stöðvuðust bílar þar í gær-
adg og lenti fólk í alls konar
hrikningum-. Standa vonir til
að ástand þetta sé að lagast í
tíag. Þá urðu miklar skemmdir
á símalínum norðanlands víða,
Fframhald á 10. síðu).
Heilhrigðisnefnd
rannsakar máiið
og ókæld á brúsapöllum í
lengri tíma og hve langan
tíma mjólkurbifreiðir eru á
leiðinni með mjólkina til
mjólkurbús.
Um reglur þær, sem farið
er eftir um verðfellingu og
heimsendingu mjólkur á
framangreindum mjólkur-
búum.
Verðlauna-
um
íslandsferð
FYRIR nokkrum dögum lauk
í Kaupmannahöfn verðlauna-
samkeppni, sem Flugfélag fs-
lands og Ferðaskrifstofa ríkis-
ins í Reykjavík efndu til með-
al starfsmanna á ferðaskrif-
stofum þar í borg.
Tilhögun keppninnar var
þannig, að hátt á þriðja hundr-
að starfsmönnum ferðaskrif-
stofa voru sendir getraunaseðl-
ar með spurningum um ísland
og íslenzk málefni. Getrauna-
seðlarnir, sem voru sjö að tölu,
fluttu einnig teiknimyndir frá
íslandi og greinar um ísland og
möguleika á auknum ferða-
mannastraumi þangað.
Birgir Þorgilsson, fulltrúi
Flugfélags íslands í Kaup-
mannahöfn, sá um framkvæmd
keppninnar.
Fyrstu verðlaun í samkeppn-
inni er íslandsferð ásamt átta
daga dvalarkostnaði hér á landi
og ferðalögum innanlands. Auk
þess eru veitt nokkur smærri
verðlaun, íslendingasögur í
skinnbandi o .fl. Úrslit í keppn-
inni verða birt næstu daga.
IWHMHMHMMMMMtMWJV
Tannhvöss íengdamamma” fer
um landið
LiEIKFÉLAG Reykjavíkur
leggur af stað í dag í mánað-
arhringferð um landið með
;femn vinsæla gamanleik „Tann-
■fevassa tengdamömmu“. Fyrsta
sýmingin er fyrirhuguð í Vest-
niannaeyjum í kvöld og önnur
á morgun. Eftir helgi er síðan
ætiunin að fara landleiðina
norður og austur um Iand.
_ „Tiannhvöss tengdamamma“
Sefur. áður verið sýnd af L. R.
á VesUjörðum og Suðurnesjum.
Verður þeim stöðum því sleppt
■r þ'essari ferð, nema Patreks-
firði og Bíldudal, sem voru eft-
ir á dögunum. Leikféiagið hef-
ur sýnt „Tengdamömmuna“
100 sinnum í Reykjavík og á
■leíkferðum sínum, auk þess
' sem Leikfélag Akureyrar sýndi
' hana 25 sinnum í fyrra á Akur-
eyri og nágrenni.
HLUTVERKASKIPUN.
Sömu leikendur verða í för-
inni og léku í leikritinu áður,
.nema Steindór Hjörleifsson,
sem Iék prestinn, getur ekki
farið. Fer Jó’n Sigurbjörnsson
mað hlutverk hans, en aðrir
'leikendur eru: Emilía Jónas-
1 dóttir, Brvnjólfur Jóhannesson,
Áróra Halldórsdóttir, Nína
VEGGURINN
IIÉR sést greinilega stíflu
garðurinn, sem brást.
Skarðið er um 15 metra
breitt. Þarna belgdist
vatnið upp í gærdag og
fossaði niður í jarðgöng-
in. Enn veit enginn hve
mikið tjón hefur orðið á
þeim.
EÍKSÍO'
40. árg. — Föstudagur 19. júní 1959 — 125. tbl.
Sveinsdóttir, . Þóra Friðriks-
dóttir, Sigríður Hagalín, Guð-
mundur Pálsson og Árni
Tryggvason. Meðfylgjandi
mynd er úr 3. þætti.
Gert er ráð fyrir, að þessi
ieikferð L. R. standi í fjórar
vikur a. m. k. Þess má áð lok-
um geta, að nú eru liðin rétt
30 ár, síðan Leikfélagið fór
sína fyfstu leikför. Þá var það
leikurinn „Húrra, krakki“. +
Helmingur þjóðarinnar að dómi KjörJæmahlaÓsins...
KJÖRDÆMABLAÐIÐ held-
ur áfram vel eða illa
fengnum vitnunum manna,
sem vilja að kjördæmia-
skipun og kosningafyrir-
komulag á íslandi miðist við
sérhagsmuni Framsóknarflokks
ins. I síðasta tölublaði þess eru
orsakir þéttbýlisins við Faxa-
flóa og fólksfjölgunarinnar í
Reykjavík taldar „hin öra og
óeðlilega atvinnuþróun, sem átt
hefur sér stað á þessum slóðum
allt frá því, er Bretar stigu hér
á land vorið 1940“. Jafnframt
er gefið í skyn, að fólkið í þétt-
býlinu sé viljalaus og uppflosn-
aður miúgur, sem ekki verð-
skuldi sömu mannréttindi og
börn dreifbýlisins.
Með þessum nválflutningi er
verið að skipta landsmönnum í
nýj a og áður óþekkta flokka.
Hér er annars vegar um að ræða
fyrsta flpkks íslendinga og hins
vegar annars, þriðja, fjórða og
fimmta flokks íslendinga. Slík-
ur og þvílíkur er kjarninn í á-
róðri og málflutningi Kjör-
dæmablaðsins, ef tekið skal
mark á gífuryrðum þess og full
yrðingum. •
Hverjir ei'u svo þessir ann-
ars, þriðja, fjórða og fimmta
flokks íslendingar? Þeir eru sjó
mennirnir á skipunum, verka-
mennirnir á eyrinni, fólkið í
fiskvinnslustöðvunum og verk-
smiðjunum, opinberu starfs-
mennirnir, sem vinna hjá ríkinu
og bæjunum — í fáum oi’ðuin
sagt nýju stéttirnar, sem lifa og
starfa I landinu. Flest þetta
fólk er ættað úr dreifbýlinu,
því að þangað liggja rætur all-
ra Islendinga. En það á að njóta
annarra mnnréttinda en fslend
ingarnir í dreifbýlinu. Og þessa
flokkaskipun á að miða við raun
verulega eða ímyndaðra sér-
hagsmuni Framsóknarflokks-
ins. .
Auðvitað liggur í augum uppi
að bændur séu fyrsta flokks
fslendingar. En gildir ekki
sama um fólk annarra starfs-
greina? Og hvers vegna eiga
þeir, sem flúið hafa dreifþýlið,
þrátt fyrir ást og umlhyggju
Framsóknaflokksins og blessun
gömlu kjördæmanna, að njóta
annars og minni réttar eftir
tilfærsluna en fyrir vhana? —
Hvar hefur Gunnar Dal og skrif
finnar hans numið þvílíka
„heimspeki“?
Og er svo sú ör» atvlnnuþró-
un, sem orðið hefur í Reykja-
vík og við Faxaflóa, eins óeðli-
leg og Kjördæmablaðið vill
vera láta? Öðru nær. Engum
dettur í hug, að þessi fjöldi lifi
einvörðungu á hernaðarvinn-
unni á Keflavíkurflugvelli eins
og Þói'arinn Þórarinsson, skóla-
Framhald af 12. síðu.
f
HOLLYWOOD, 18. júní (NTB-
Reuter). — Bandaríska kvik-
myndaleikkonan Ethel Barry-
more lézt í dag að heimili sínu
í Hollywood ‘79 ára að aldri,
Ethel og bræður hennar, Lion-
el og John, voru k sínum tíma
kölluð „konungsfjölskylda
Broadway“.
HLERAÐ
Blaðið hefur hlerað—-
Að Benjamín Eiríksson,
bankastjóri Fram-
kvæmdabankans, sé
nú staddur í Þýzka-
landi að’ athuga mögu-
leika á fjárútvegun til
hafnarframkvæmda í
Þorlákshöfn og bygg-
ingu brúar á Ölfusár-
ósa.
einn ó
DURBAN. — í fyrradag var
gríðarlegur loftsteinn nærri
því búinn að granda tveimur
farþegaflugvélum, sem stadd-
ar voru hér yfir Durban í
Suður-Afríku.
Viscount flugvél var nýbú-
in að hefja sig til flugs og var
stödd spölkorn frá annarri
flugvél, þegar loftsteinninn
féll á milli þeirra og splundr-
aðist broti úr sekúndu seinna.
Þetta er í annað skipti á fá-
einum mánuðum sem loft-
steinn er nærri búinn að
granda flugvélum.