Alþýðublaðið - 15.07.1959, Blaðsíða 10

Alþýðublaðið - 15.07.1959, Blaðsíða 10
MINNiNGARORÐ: Marinó J. Erlendsson MARINÓ J. Erlendsson fæddist 1. júlí 1903 og var því 56 ára, þegar hann lézt snögg- lega 6. þ. m. Marsi fór að heiman glaður og hress, mánu dagskvöldið 6. júlí til þess að undirbúa fegrun á bílnum sín um áður en hann fengi sum- arfrí. Þetta sumarfrí átti að verða unaðslegt ferðalag með konunni sinni, bcyzta vini hans og félaga. Móðir hans lézt í vetur, hefði orðið 90 ára 12. þ. m. Hún átti heima hjá honum alla tíð og reyndist konan þans henni sem elskuleg dótt- ir. Nú skyldi hann njóta sum- arsins með ástvini sínum í fallegum bíl, en um kvöldið, þegar hann kom heim frá und irbúningi að ferðinni, kom kallið. Ferðin var hafin til mömmu. Við Marsi ólumst upp í Skuggahverfinu og þekktumst vel á unglingsár- unum, en eiginlega kynntumst við ekki fyrr en stritið fyrir daglegu brauði var hafið, í baráttunni fyrir bættum kjör- um — í Dagsbrún. Marsi var skapmikill, vildi bráða breytingu, byltingu, til þess að verkamaðurinn nyti strax þess auðs, sem hann skapaði. Marsi var óvenju- lega opinskár, hann dró ekki dul á skoðanir sínar, hann ruddi þeim á félaga sína, þá sem hann vann fyrir og hvern þann, sem reyndi að skyggn- ast í huga hans. Hreinskilni hans í orðum var beitt, því að gáfur voru góðar. Þrátt fyrir skarpa tungu* og hreinskilni, var Marsi með vinsælustu mönn- um, sem ég hefi þekkt. Ástæð an til þess var sú, að gott hjarta, drengskapur og heið- arleiki, ásamt miklum áhuga fyrir starfi, sköpuðu honum vináttu þeirra, sem kynntust honum. Barnaskólinn var eina skóla menntun hans, sem flestra jafnaldra. Þó aflaði hann sér meiri menntunar en margur langskólagenginn, t. d. talaði hann öll Norðurlandamálin auk þýzku, frönsku og ensku, og enn var hann að læra mál. Alla menntun sína hlaut hann fyrir þrotlausa löngun í fróð- leik og sem algera aukavinnu. Eftir langan og strangan vinnudag verkamannsins not- aði hann frístundirnar til þess að mennta sig. Leiðir okkar lágu saman í Bridgefélagi Reykjavíkur á seinni árum, og var hann í stjórn þess, þeg ar hann kvaddi fyrirvaralaust. Bridge er stærðfræðileg þjálf un heilans, og var hann góður bridge-maður. Marinó vann alla ævina hjá sama fyrirtæki, Kol & Salt, lengst af sem verkamaður, en mörg síðustu árin á skrifstofu verkstjóra, sem var mikill vinur hans, enda uppeldisfélagar á Lind- argötunni. Enda þótt skoðan- ir Marsa hafi ekki fallið sam- an við skoðanir eigendanna, veit ég að þeir voru miklir vinir hans. Ef talið barst að þeim. þá kom bezt í ljós, að vinátta er ofar öllum skoðana mun. Fvrri konu sína, Magneu Jónsdóttur, missti hann eftir tæpra sex ára samveru, en þau eignuðust son, Gísla, verkamann, sem er giftur og á 3 börn. Gleðin skein úr augum og látbragði afans, þegar hann var með þau. S'einni kona Marinós var Ósk Kristjánsdóttir, og lifir hún mann sinn. Hjónaband þeirra var farsælt og voru þau miki- ir vinir og félagar. Við Gísla, Ósk, Þórð bróður hans og litlu barnabörnin, vil ég segja: Dauðinn er óhjá- Marinó J. Erlenclsson kvæmilegur. Hann í dag. Ég á morgun. Minningarnar um pabba ,eiginmann, bróður og afa, sem átti ekkert ljótt í fari sínu né lífi, en aðeins heiðarlegheit og drengskap, eiga að færa ykkur gleði og þroska. Marsi! Ég vil þakka þér fyr ir áhuga og starf í verkalýðs- hreyfingunni og kveð þig sem góðan Dagsbrúnarmann. íþróttir Framhald af 9. síðu. um greinum, t. d. hljóp Bertil Kállevágh 3 km á 8:17,0 mín., langbezti árangur Svía í ár. Kallevágh keppti hér á KR- mótinu í lok júní og tapaði þá fyrir Kristleifi í 3 km. Á mót- inu kastaði Asplund sleggjunni 63,47 m og Pólverjinn Cieply 61,57 m. Waern sigraði í 1500 m (hann er nú orðinn frískur — var veikur um daginn), tími hans var 3:47,4, annar varð Hamarsland, Noregi og þriðji Lewandowsky, Póllandi. ★ Fimm landakeppni í frjáisum. UM NÆSTU HELGI verður fimm-landa keppni í frjálsum í Duisburg, V.-‘Þýzkalandi, Hol- iandi, Frakklandi, Sviss og Belgíu. Aðeins einn keppir frá hverju landi. 1. og 2. ágúst keppa Bretar og Þjóðverjar, en 22. og 23. ágúst Rússar og V.- Þjóðverjar í Moskvu. ★ . Janusz Sidio 84 mefra. JANUSZ SIDLO er nú að komast í frábæra æfingu, en hann kastaði spjótinu 84 metra í Búdapest fyrir nokkru. Varju varpaði kúlu 17,63 m. ★ Fær 45 þúsund dollara Á NÆSTUNNI leikur Real Madrid gegn Flamengo í Rio de Janeiro. Liðið fær fyrir leikinn og takið nú vel eftir — 45 þús. dollara. Þegar Flamengo kemur tl Madrid síðar fær það sbmu upphæð. Guðm. Ó. Guðmundsson. Yélrifun - skrifsfofuslarf. Stúlka, sem hefur góða kunnáttu í vélritun og ís- lenzku getur fengið starf á opinherri skrifstofu nú þegar. Umsóknir sendist fyrir 18. júlí í hox 473, með upp- lýsingum um aldur, námsferil og fyrri störf. Hús í smfðum brunatryggjum við með hinum hagkvæmustu skilmálum Fimmtudaginn 16. júlí n.k. verður byrjað að afhenda nýju símaskrána til símnotenda og er ráðgert að af- greiða um 2000 á dag. Afgreiðslan er á neðstu hæð í landssímahúsinu, geng- ið ínn frá Kirkjustræti (gegnt Hótel Skjaldbneið). Daglegur afgreiðslutími er frá kl. 9 til 19, nema laug- ard^ga kl. 8,30 til 12. Fimmtudag. 16. iúlí verða afgrd dd símanr. 10000 til 11999 Föstudaginn 17. — Laugardag. 18. — Mánudaginn 20. — Þrtðjudag. 21 — Miðvikud. 22 — 'Fimmtudag. 23 — Föstudaginn 24. — Laugardag. 25. — 12000 14000 15000 17000 19000 23000 32000 35000 13,999 14999 16999 18999 22999 24999 34999 36499 í Hafnarfirði verður nýja símaskráin afhent á sírn- stöðinni þar frá 20. júlí n.k. Athygli símnotenda skal vakin á því, að vegna r.úm- erabreytinga, gengur símaskráin ekki að öllu leyti í gildi fyrr en aðfaranótt mánudagsins 27. þ. m. Frá sama tíma gengur úr gildi símaskráin frá 1957 og eru símnotendur vinsamlegast beðnir að ónýta hana. Bæ|arsími Reyklavíkur og Hafnarfjarðar. 6. landsþing Sambands íslenzkra sveifarfélap, verður haldið í Reykjavík dagana 14. og 15. ágúst n.k. Þingið verður sett í samkomuhúsinu Lido kl. 10.00 ár- degis. Sveitarstjórnir s:em enn hafa ekki tilkynnt kosningui fulltrúa geri það fyrir 1. ágúst í síðasta lagi. Reykjavík 14. júlí 1959. Stjórn Sambands íslenzkra sveitarfélaga. Sonur minn og faðir okkar, KRISTJÁN H. BREIÐDAL, verzlunarstjóri í Skarðstöð, verður jarðsettur frá Dóm- kikrjunni íímmtud. 16. júlí kl. 2 e. h. Athöfninni í kirkjunni verður útvarpað. Stefanía Þórðardóttir Guðríður Breiðdal Gissur Breiðdal Njáll Breiðdal. Jarðarför konunnar minnar, móður og dóttur, KRISTÍNAR ÓLAFSDÓTTUR, Skeiðarvog 69, fer fram frá Fossvogskirkju föstudaginn 17. þ. m. kl. 1,30 e. h Ólafur Kristjánsson og börn, Ólafía Halldóra Árnadóttir. Bróðir okkar, GÍSLI RAGNAR GUÐMUNDSSON, bókbindari, andaðist 14. þ. m. í Bæjarsjúkrahúsi Reykjavíkur. Systkinj hins látna. STEFÁN ÞORLÁKSSON, fyrrv. hreppsstjóri. Reykjadal, Mosfellssveit, andaðist að Landakotsspítala 11. júlí. Sigurður N. Jakobsson. 10 15. júlí 1959 — Alþýðublaðið

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.