Alþýðublaðið - 19.07.1959, Blaðsíða 9
C ÍÞrétfir )
fislandsmótlð.
Fram vann Þróff 5:1
íngimar og Floyd keppa 11 sepí.
ÞÖ FRAM sigraði Þrótt í síð-
ari leik þessara félaga í íslands
mótinu á föstudagskvöldið var,
reyndust knattspyrnulegir yfir-
burðir þess ekki í samræmi við
markatöluna. Leikurinn í heild
var þæfingshnoð, með þó ein-
staka, ekki ólaglegum sóknar-
tilraunum á báða bóga. Sem
þó allt framá 25. mín. leiksins
leystust upp eins og reykur,
á vítateigi. En þá átti Guðm.
Óskarsson loks skot, sem sepidi
knöttinn inn. Skömmu síðar
bætti Guðjón Jónsson siðara
marki Fram við í fyrri hálfleikn
um.
Er 7 mín. voru liðnar af síð-
ari hálfleiknum kom briðja
markið á Þrótt. Var það sjálfs-
mark, sem v. framvörðurmn
gerði er hann hugðist hreinsa
frá markinu, Rétt á eftir skor-
aði svo Guðjón fjórða markið
og nokkru síðar bætti Guðm.
Óskarsson því fimmta við. —
Voru þá 20 mín. eftir af leikn-
um.
Loks á 37. mín. fær Þróttur.
dæmda vítaspyrnu á Fram, fyr-
ir hindrun á einn framherjann
sem var í skotfæri, að Því er
dómarinn taldi, sém jafnframt
lét þess getið, aðspurður, að
þetta væri vissulega sérlega
strangur dómur fyrir brotið, en
þar sem Fram hafði svo mikla
yfirburði í leiknum þá hefði sér
ekki fundist óréttlátt að dæma
þannig, en slíkt hefði hann
hinsvegar ekki gert ef leikur-
inn hefði staðið jafn. Þorlákur
Þórðarson dæmdi leikinn.
í fyrri leik þessara félaga í
íslandsmótinu, sem fram fór 21.
júní skyldu þau jöfn 2:2.
Bæði eiga þessi félög eftir að
leika við Keflavík, Fram bæði
á heimavelli þeirra og hér í
Reykjavík, en Þróttur hefur
þegar leikið við Keflvíkinga hér
og varð sá leikur jafntefli 1:1, i
og Þá fékk Þróttur þar annað
stigið sem hann enn hefur hlot-
ið í mótinu. Eitt er víst, að
þessum liðum er alveg óhætt
að taka betur á, í leikjum sín-
um við Keflvíkinga, en gert var
í þessum leik, ef stig leikjanna
eiga að skila sér til þeirra, en
ekki að lenda öll hjá Þeim suð-
ur þar.
E.B.
FRAMKVÆMDASTJÖRI
Floyds Pattersson, Bill Rosen-
sohn tjáði blaðamönnum í fyrra
dag, að keppni Ingemars og
Floyds, hin síðari myndi fara
fraim á Yankee-stadium 22.
september. Áhugi fyrir keppn-
inni er geysimikill og mun
meiri en Þeirri fyrri, 26. júní
s. 1.
Olfusingar 1
flesf sfig
ÖLFUSINGAR SIGRUÐU á
íþróttamíóti Héraðssambands r
Skarphéðins. Frjálsíþróttamót-
ið fór fram á Þjórsártúni um,
síðustu helgi og áður hafði ver-
ið keppt í sundi, en eftir er
knattspyrnukeppnin. Að loknu
Þj órsár.túnmóti hafa Ölfusingar
70 stig, Biskupstungnamenn 66
stig og Selfoss 57 stig. Beztu af
rek á mótinu vann í hástökki,
Ingólfur Bárðarson stökk 1,80
m. og í þrístökki, Ólafur Unn-
steinsson stökk 13,74.
2 Evrópumel!
HOLLENZKA sundkonan
Corre Schimmel setti /iýtt Evx-
ópumet í 800 og 1500 m. skrið-
sundi í fyrradag. Fyrrnefndvy
vegalengdina synti hún á
10:25,3 mín. og þá síðarnefndu
á 19:46,2 mín.
*
TÍMI Janke í 5 km. i lands-
keppninni á Bislet í fyrradag,
13:46,8 er fjórði jbczti, semi
náðst hefur. Aðeins Kutz, Pirie
og Ihraos eru betri. — í spjót-
kasti keppninnar sigraði kunn-
ingi okkar frá í hitteðfyrra, —
Klaus Frost, 77,58 m. Danieísen,
varð þriðji með 71,53 m. Hanni
er ekki í stuði þessa stundina.
Verksmiðju okkar og afgreiðslu verður
Lokað vegna sumarleyfa
dagana 18. — 26. júní. Á tímabilinu vförður tekið á
móti pöntunum í símum 15416 og 15417.
Fabereinkasala Gluggar h.f.,
Stípholti 5.
K. S. í. í. A.
íslandsmótið
meistaraflokkur
í dag kl. 4 leika á Akranesi
K.R. —Akranes
Dómari: Magnús V. Pétursson.
Línuverðir: Baldur Þórðarson, Björn Árnason.
Ferð verður með Akraborg kl. 1 frá Reykajvík —
frá Akranesi kl. 7,45 e. h.
Mótanefndin.
Hafið þér séð hina stórglæsilegu happdrætt-
ishifreið Alþýðuflokksins: Chevrolet 1959.
Miðar eru seldir í hennl
f Austurstræti
KR-Akranes í dag
í dag kl. 4 leika KR og Akra-
nes sinn fyrsta leik í íslands-
mótinu og fer leikurinn fram á
Akranesi. Leiksins er beðið með
mikilli eftirvæntingu, — en á
myndinni sézt markvörður KR,
Heimir Guðjónsson, sem aðeins
þrisvar hefur orðið að sækja
knöttinn í KR-markið á yfir-
standandi íslandsmóti, en KR-
ingar hafa skorað 25 sinnum
hjá andstæðingunr sínum.
Framhald af 1. sfðu.
in á að bjóða til sölu á 21/2
földu nafnverði, sem var sölu-
verð hlutabréfa félagsins fyr-
ir 15—20 árum. Erfiður rekst-
ur og skortur á veltufé mun
vera ástæðan fyrir þessari
slæmu afkomu félagsins.
Það er ekki líklegt að hlut-
hafar, sem engan arð hafa
fengið í 15 ár, kæri sig um
eða hafi handbært fé til þess
að vernda hlutfallseign sína í
félaginu, með því að kaupa
viðbótarbréf fyrir fimm þús.
krónur fyrir hvert eitt þúsund
króna bréf, sem þeir eiga, en
sætti sig heldur við að hlut-
fallseign þeirra verði útþynnt
um % hluta, eða reyni að
selja ,sín bréf jafnframt.
Ríkið og Reykjavíkurbær
eiga að kaupa þetta olíufélag.
Bæjarútgerðin notar óhemju
magn af olíu, þúsundir Rej’k-
víkinga eru háðir olíu til at-
vinnurekstrar og upphitunar
heimila. Ríkið notar einnig ó-
hemju magn af olíu til skipa
í eigu ríkisins, opinberra
stofnana um allt land, spítala
o. fl. o. fl. Olían er orðin okk-
ur jafn nauðsynleg eða jafn-
vel nauðsynlegri en rafmagn.
Hver mundi í dag óska þess
að Sogið eða Hitaveitan væri
einkaeign fárra manna?
Núverandi hlutafé í við-
komandi olíufélagi er samtals
í eigu hluthafa ein milljón
krónur að nafnverði, sem
stjórn félagsins metur á tværj
og hálfa milljón króna sam-
kvæmt ofanrituðu. (Miðað við.
verðgildi íslenzkrar krónu í.
dag samsvarar þetta 7 til 8% •
af gangverði þessara bréfa
fyrir stríð). Jafnvel þótt gefið
væri fyrir bréfin eitthvað
hærra verð, t. d. 10 til 15%,
til þess að gjöra hluthafa á-í
nægða, þá ættu kaupin að 1
vera hagkvæm fyrir ríkið,
Reykjavíkurbæ og allan al-
menning í landinu. Aukin
nýting tækja félagsins svo ©g
allur rekstur mun hagkvæm-
ari, mundi fljótt koma fram
í lækkuðu olíuverði.
Það er talið að olíuhirgðir
og eignir félagsins standi fyr-
ir greiðslu skulda. Olíufélag
þetta á tanka og afgreiðslu-
stöðvar um allt land og tank-
stöð hér í Reykjavík ásamt
bílum og öllum tækjum til
dreifingar á olíu til bæjarbúa.
Auk þess ýmsar aðrar eignir
og stóra lóð í miðbænum, sem
mundi koma í góðar þarfir
sem bílastæði.
Það má ekki ske að þetta.
féíag lendi í'eigu fárra manna.
Ég veit að’það mundi gleðja
marga af hinum 130 hluthöf-
um félagsins, ef það yrði eign
ríkis og bæjar og þannig liður
j uppbyggingu heilbrigðs at-
hafnalífs.
Olíunotandi“.
Óvífnir inn-
brofsþjófar í
Krlstiansand
Kristiansand, 17. júlí (NTB).
ÞJÓFAFLOKKURINN, sem
plágað hefur Kristiansand að
undanförnu, var á ferðinni í
nótt og brauzt inn í 9 fyrirtæki
í miðbænum. Ekki virðist flokki
urinn hafa borið mikið úr být-
um við innbrot þessi, en hins
vegar er ósvífni flokksins ótrú-
leg .Mörg fyrirtækjanna liggjat
við aðalgötu hæj^irins, — og
brauzt flokkurinn inn með því
að brjóta rúður yfir aðaldyrum
við götu á flestum stöðunum. :
/
AlþýSublaðið — 19. júlí 1959 0