Alþýðublaðið - 25.07.1959, Side 5
FORSÆTIS RAÐIIERRA
Japans, Nobosuke Kishi,
sem nýlega var í opin-
berri heimsókn í Eng-
landi, notaði taekifærið
skömmu eftir komu sína
til landsins til að heilsa
upp á hinn aldna stjórn-
málamann sir Winston
Churchill á heiniili lians
í Hyde Park Gate í Lond-
on. — Þeir eru að heils-
ast á myndinni.
írakskur nazisfi
Rashid Ali Gaylani, er stóð fyr-
ir hinni nazistísku uppreisn í
írak árið 1941, hefur verið
dæmdur til hengingar fyrir að
reyna að steypa stjórn Kass-
ems, forsætisráðherra, af stóli
með uppreisn, sem hefjast átti
9. desember s. I.
Dómurinn var kveðinn upp
17. desember s. 1. eftir leynileg
réttarhöld og er nú beðið stað-
festingar Kassems á honum.
Stjórn íraks segir, að ekki hafi
verið t.ilkynnt um dóminn fyrr
en nú, þar eð vissir „arabískir
aðilar11 voru sagðir flæktir í
málið. (Talið er, að um sé að
ræða Arabíska sambandslýð-
veldið, sem á þeim tíma var í
vinsamlegum tengslum við
írak).
Safsi af rifgerðum og ræBu
Frétt til Alþýðublaðsins.
Húsavílt í gær.
TJNNIÐ er að hafnarbótum á
Húsavík í sumar, og hefur
einu keri verið sökkt framan
við bryggjuna. Er nú unnið að
uppfyllingu við kerið og mun
bryggjan bá lengjast um 15
metra. Ætlunin er að ljúka
þessum áfanga í haust og
steypa auk ]«ess upp annað ker
í sumar. Auk þess hefur verið
unnið að endurbótum á bryggj-
unni, lögð um hana fullkomin
raflögn og kranar endurbætt-
ir. Kosta þær á annað hundrað
þúsund krónur.
ÚT ER komin ný bók eftir
Jón Helgason skáld og próf-
essor í Kaulpmannahöfn og
hún gefin út af Félagi ís-
lenzkra, stúdenta f Kaup-
mannahöfn í tilefnj; af sext
ugsafmæli Jóns 30. júní í ár.
Á Tabula gratulatoria eru
nöfn 317 manna.
Félag íslenzkra stúdenta í
Kaupmannahöfn gerir þessa
grein fyrir bókinni:
„Bók þessi er gefin út af
Félagi íslenzkra stúdenta í
Kaupmannahöfn á sextugs-
afmæli Jóns Helgasonar próf
essors, 30. júní 1959.
Jón hefur í röska fjóra ára
tugý sótt flesta fundi félags-
ins og samkomur og lagt þar
fram drýgri skerf til skemmt
unar og fróðleiks en nokkur
maður annar. Með útkomu
þessarar bókar rætist sú ósk
Hafnarstúdfenta og fjöl-
margra annarra að prentað
sé í tfnum stað safn af ræð-
um og ritgerðum sem hann
hiefulr samið á íslenzku og
forvitnilegar imega vera
fleirum en fræclmönnum.
Áður hafa þeir þættir sem
hér birtast vierið víða dre'fð
ir og sumir torgætir, en fyr-
Ur orð félagsins hefur Jón
veitt þvf leyfi til að
þá, og sjálfur hefur hann val
ið efn| bókaÆnnar og búið
það til prentunar, en nefnd
félagsins hefur undirbúið út
gáfuna og sent Hafnarstúd-
entum boðsbréf.
Á sfextugsafmæli Jóns
þökkum við honum gömul
kynni sem nú gefst kostur
að rifja upp að nýju og biðj
um honum heilla“.
EFNI BÓKARINNAR.
Bókin nefnist Ritgerða-
korn og ræðustúfar. Ritgerða
kornín eru þessi: Að yrkja á
íslerizku, Bjarkamál Saxa,
Hildjibrandskviða, Vjerkefni
íslenzkra fræða, Gauks saga
Trandilssonar, íslenzk hand-
rit í British Musfeum, Þjóð-
sögur, Arngrímur lærði,
Séra Jón Þorláksson, Finnur
Magnússon, Athugasemdir
um fjögur íslenzk kvæði,
Hrein íslenzka og miður
hrein, Grannar vorir í vestri,
Sigfús Blöndal og Guðmund-
ur Hnnbogason. Ræðustúf-
arnir eru: Á íslendingamóti
í Kaupmannahöfn 1. des.
1941. Á fimmtugsafmæli Fé
lags íslenzkra stúdenta í
Kaúpmannahöfnð Á kvöld-
vöku í Kaupmannahöfn 17.
júní 1943, Á íslendingamóti
í Kaupmannahöfn 17. júní
1944, . Á íslendingamóti í
Kaupmannahöfn um áramót
in 1944-—45, Á fimmtugsaf-
mæli Halldórs Laxniess, Á
íslend.ngamóti í Kaupmanna
höfn 1. desember 1952 og á
svölum Alþingishúss, 1. des-
ember 1954.
Síðast er svo eftirmðli höf
undar, þar sem Jón gerir ör
stutta grein fyrir, hvers
vegna hann hefur láð máls á
útgáfu ritgerðakornaanna og
ræðústúfanna, Bókin er prent
uð í Hólum og stórvel til
búnings hennar vandað.
Jón Helgason
Leiðin frá Gullfossi
LEIÐIN frá GulMossi inn að
Hvítárnesi hefur verið lagfærð
að undanförnu og er nú vel
greiðfær góðum bílum, eftir að
vegheflar hafa farið alla þessa
leið. Jón Ingvarsson verkstjóri
fór á föstudaginn Var á jeppa
frá Hveravöllum að Selfossi,
samtals 160 kílómetra vega-
lengd á fjórum klukkustunduin
og 40 mínútum.
J. E. M. Arden, höfund-
• ur þessarar greinar, er há
skólafyrirlesari í Evrópu-
sögu. Hann hefur ferðazt
sem blaðamaður og kenn-
ari um ýmis Austur-Evr-
ópulönd og öðlazt á þann
hátt bein k.vnni af við-
horfi almennings og menn
tsmanna til. stjórnmála.
KOMMÚNISTAR halda
æskulýðsmót í Vín í endaðan
júlí. Enda bótt ég minnist
þess ekki að hafa nokkurn
tímann að mér. meðvitandi
hugsað ’um sjálfan mig sem
æskumann fremur en dreng
eða ungan mann, var ég eitt
sinn gabbaður á slíkt mót. Það
sem fyrst og fremst vakti at-
hygli mína þar, var að margir
aðalfuljtrúar kommúnistaríkj
anna voru komnir af æsku-
skeiði. Það var ákaflega hjart
næm athöfn, þegar einn þá-
verandi ritari sagði af sér með
ræðu, þar sem hann hafði þá
náð aldurstakmarkinu. Hann
var, ef mig ekki misminnir,
42 ára.
Þetta er takmarkaðra nú,
nema ef til vill hvað forystu-
mönnunurii viðkemur. „Ó-
breyttir liðsmenri, mega a. m.
k. ekki, vera eldri en 32 ára.
Fólk þroskast sjðar nú á dög-
um. Og það væri grimmdar-
legt að svipta þessa „atvinnu-
æskumenn“ starfi, enda bótt
aðrar stöður séu tiltækar.
Shelepin var þar til á síðasta
ári ritari samtaka sovézkra
ungkommúnista. Hann er nú
ýfirmaður leynilögreglunnar
og getur það gefið nokkra vís-
bendingu um æskulýðsfélög
kommúnista.
A. m. k. eru hátíðahöldin,
sem nú standa fyrir dyrum og
haldin eru á vegum hins
kommúnistiska sambands lýð
ræðissinnaðrar æsku og Al-
þjóðasambands stúdenta, að-
allega til þess ætluð, a. m. k.
af aðstandendum þeirra, að
auka vinsældir lögregluríkis-
ins meðal móttækilegra æsku-
manna vestan tjalds og í Af-
ríku og Asíu. Andkommúnist-
isk æskufólkssambönd hvar-
vetna fordæma það. Heims-
samband æskufólks (WAY) í
Bretlandþ en í því eru næst-
um öll pólitísk, trúarleg og
önnur almenn félagasamtök í
landinu, hefur látið mjög í
ljósi andúð sína ,og í Austur-
ríki sjálfu hafa stúdenta- og
æskumannafélög úr öllum
flokkum að undanteknum hin
um örsmáa kommúnistaflokki
verið sérlega fjandsamleg
þessum mótum.
Stúdentasamtök þeirra hafa
ákveðið að gera ákveðnar ráð-
stafanir gegn þeim.
DÝR BARÁTTA.
„Þessi mót“, eins og einn
ritari sovézka ungkommún-
istasambandsins hefur skrif-
að, „eru til þess ætluð að
sannfæra æskuna í kapítal-
ísku ríkjunum og í óháðum
nýlenduríkjum um það, að að-
eins með sameiginlegri bar-
áttu sé unnt að varðveita, frið
á jörð og tryggja æskunni
betri framtíð“. Það er full-
ljóst gegn hverjum tyiráttan
skal háð. Og Rússar virðast
meta hana að nokkru, þar eð
þeir verja miklum fjárhæðum
þessu til sþyrktar. Hátíða-
höldin, sem voru í Möskvii
1957 kostuðu Rússa milli 30
og 4.0 millj. sterilingspunda.
Það. sem atjiyglisverðasfc
er við þetta mót. sem nú er
haldið, (ef við sleppum þeirri
staðreynd, að „aðalráðgjaf-
inn“, tékkneskur kommúnisti,
sem hefur setið í forsæ.ti stú-
dentasamtaka þeirra síðastlið-
in 11 ár er nefndur Pelikan),
er, að' það skuli haldið í Vín.
Þau sex mót, sem áður hafa
verið haldin, hafa öll verið í
kommúnistiskum Iqndum. Á-
stæðan fyrir breytingunni
virðist sú, að mótið í Moskva
virðist hafa misheppnasí.
Rússneskir æskumenn, virðast
hafa orðið fvrir miklú meiri
áhrifum af því, sem þeir sárs
og heyrðu til vestrænna fé-
laga, en öfugt, eins og í upp-
hafi var til ætlazt. Það var
kvartað undan þessu í sovézk-
um æskulýðsblöðum og í einu
þeirra var talað um skipu-
lagða andstöðu meðal stú-
denta frá Leningrad, sem ætti
rætur að rekja til mótsins.
Þannig er það tilkomið, aS
enda þótt austurríska stjórn-
in væri þess ófús og almenn-
ingur í Austurríki hafi látið
í ljósi andúð sína, verður nú
gerð. tilraun til þess að halda
sovézkum áróðri að ungu.
fólki, þar sem það getur ekki
séð neitt af kommúnistískum
raunveruleika, nema sendi-
nefndir í æskublóma, seín
hafa fengið ýtarlega tilsögn í
hvernig eigi að afla vina og
hafa áhrif á fólk.
Það er staðreynd, að þeir
verða staddir aðeins nokkra
tugi mílna frá ungversku
landamærunum, en handan
þeirra hefur nýlega fjöldi sfú-
denta hlotið grimmilega dóma-
fyrir að reyna að ræða málin
eins frjálslega og gert er í
Vín. Slíka hluti mun ekki
vera mikið minnst á við há-
tíðahöldin. Samt sem áður
hljóta þeir, sem að mótinu
standa, að vera bjartsýnir, ef
þeir gera sér í hugarlund, að
fáeinir algjörir græningjar
frá Evrópu eða Afríku, séu
líklegir til að vita ekki af
þessum hlutum. Það er því
lang trúlegast, að það sé ein-
mitt fyrir slíkt fólk, sem þess-
ar dýru hátíðir eru haldnar.
Ef svo er, getum við fagnað
eyðsluseminni, því þessurn
peningum hefði að öðrurn
kosti ef til.vill verið varið til
vígbúnaðar.
uioiiDiiiMiiiiiMiiEiiaitBimiiiiiitil
| Vínarblöðin |
i skrifa ekki ]
■ m
■ «
| um hátíðina I
; ÖLL dagblöðin í Vín- ;
■ arborg nema kommúnista •
■ blaðið „&jóðarröddin“ — I I
: hafa ákveðið að hundsa ' :
; VII. Heimsmót æskunnar, ;
; sem verður opnað í Vín á ;
• morgun. Óhóða blaðið —J ■
: „Ðie Presse“ segir, að ekk :
: ert and-kommúnistísku ;
; blaðanna muni birta nein ;
» ar tijkynningar um fundi^ ■
: eða skrifa neitt um mótið,á:
; semí skipulagt er af „Al-*;
■ þjóðasamibandi lýðræðis- ;
: sinnaðrar æsku“. —5
%
$
Alþýðublaðið — 25. júlí 1959