Alþýðublaðið - 01.08.1959, Qupperneq 2

Alþýðublaðið - 01.08.1959, Qupperneq 2
laugardagur All hvass sunnan, rigning. ★ BENZÍNAFGREIÐSLUR í Reykjavík eru opnar í júlí- mánuði sem hér segir: virka daga kl. 7.30—23. Sunnu- daga kl. 9.30—11.30 og 13 —23. ☆ LiISTASAFN Einars Jónsson ar, að Hnitbjörgum, er opið daglega kl. 1.30—3.30. ☆ BÆJARBÓKASAFN; Lokað vegna sumarleyfa il þriðju- dagsins 4. ágúst. + DAGSKRÁ Alþingis í dag: — N.-D. — 1. Stjórnarskrár breyting. 2. Endurlán eftir- stöðva af erlendu láni. ★ FRÁ Mæðrastyrksnefnd: Þær konur, sem óska eftir dvöl á hvíldarviku Mæðrastyrks nefndar í ágúst, tali við skrifstofuna sem fyrst. — fíími14349. ☆ BRÚÐKAUP: — Gefin verða saman í hjónaband í dag af séra Jóni Auðuns dómpróf- asti, ungfrú Birna S. Ósk- arsdóttir, Flókagötu 69 og Capt. A. E. Boudreau. Heim iii þeirra verður í Prest- wiek í Skotlandi. ☆ Bómkirkjan: Messað kl. 11 árd. Séra Óskar J. Þorláks- son. ☆ Kunnur, danskur ljóðafsýððndi í helmsókn DANISlK'I Jjóðájbýðandinn, Poui P. M. Pedersen er stadd- ur hér í heimisókn, og mun hann hingað kominn á vegum Helgafells. Pedersen hefur í kyggju að þýða á dönsku sýnis- bók íslenzkra nútímaljóða, og er erindi hans hingað að undir- búa það verk. Poul P. M. Pedersen hefur gefið út margar ljóðabækur, en síðustu árin getið sér mestan orðstír fyrir ljóðaþýðingar sin- ar, Hefur hann til dæmis þýtt á dönsku sýnisbók færeyskra .ljóða og leyst það verk prýði- lega af hendi. Nýbýli Framhald af 12. síðu. nýbýli komin með fullan bú- rekstur og á þessum nýbýlum er heildnrræktunin 3630 hekt- [ arar. Kúafjöldi á nýbýlunum um síðustu áramót var í allt 2857 (er þá átf við mjólkandi kýr), en 54.362 kindur. Meðal- bústærð nýbýlabænda er 109 fjár og 7 nautgripir. Framkvæmdir nýbýlastjórn- ar hefjast að jafnaði í maímán- uði og standa yfir af fullum krafti fram í nóvember, en það er þó undir tíð komið, hvort þær geta hafizt fyrr og endað seinna. Tveir verkfræðingar nafa að undanförnu starfað á vegum stjórnarinnar, en nú er það þó aðeins einn. F.iórir vinnu flokkar eru í vinnu við nýbýla- gerðirnar, en byggðahverfin og nýbýlin eru hér og þar um landið. ligríSur kappánægi og ekkerí á heimleið sfrax SIGRÍÐUR ÞORVALDS- DÓTTIR, fegurðafdrottning, er mjög ánægð með úrslitin á al- heimsfegurðarsamkeppninni, - Vafnsleiðsla bil- aði í Reykjavík VATNSLAUST yar í Kópa- vogi, Bústaðahverfi og Hiíðun- um í gærmorgun um tíma, vegna þess að leiðsla bilaði í Kópavogi. Var þó búið að gera við bilunina eftir 1 stund og 20 mínútur. I segir einkaritari hcnnar, Rhuna Emery. Henni finnst japanski fulltrúinn vel að sigrinum kom inn, en þar eru ekki allir á sömu skoðun eins og gengur. ,„Hverjjum þykir ,sinn fugl fagur'^ segir hún. — Keppninni er nú að fullu lokið, en SigríS- ar er ekki von heim fyrst um sinn, þar eð hún hyggst dvelja lengur í Kaliforníu, en þar á hún búsett skyldfólk. Hún sendir kveðjur heim og kveðst hafa haft mjög mikið gagn og gaman af að taka þátt í keppninni. Hún hugsar í því : sambandi til leiklistarferils hér heima, en í Kaliforníu :fékk hún góða æfingu í Því að koma op- I inberlega fram. AFLI togaranna hefur ver- ið heldur tregur undanfarið. — Einna beztur hefur aflinn verið á Nýfundnalandsmiðum en þar hafa verið miklir hitar undan- farið og af þeim orsökum hefur aflinn skemmzt að nokkru og orðið að fara í bræðslu. Hafa frystihúsin því ekki haft nægan fisk undanfarið. Afli togaranna hefur verið sem sér segir undanfarið: Ingólfur Arnarson 24. júlí, 318 tonn, Hvalfell 24. júlí 309 tonn, Jón forseti 25. júlí 306 tonn, Þorsteinn Ingólfsson 25. júlí 336 tonn, Uranus 28. júlí 303 tonn, Skúli Magnússon 29. júlí 235 tonn, Marz 31. júlí 150 tonn. Jómfrúræða Framhald af 12. síðu. ágúst var felld með 19 atkvæð- um gegn 13 og frumvarpinu síð ,an vísað til þriðju umræðu, — einnig með 19 atkvæðum gegn 13. Stóð fundurinn í neðri deild á fimmtudag stutta stund. Stjórnarskrárnefndir beggja þingdeildanna hafa unnið sam- eiginlega að athugun á frum- varpinu um kosningalögin und anfarna daga, en hún er mikið verk, þar sem hér er um að ræða lagabálk í 146 greinum. I TVEIR Á HEIMAMIÐUM. í dag er togarinn Geir vænt- anlegur með afla. — Marz var á heimamiðum og Askur einni- ig. Aðrir togarar hafa verið við Grænland og á Nýfundnalandg miðum. / SEINT í gærkvöldi byrjaði stóri borinn að bora á ný eftir nokkurra vikna hlé meðan lát- ið var á hann nýr útbúnaður til að bora enn dýpra en áður og getur hann nú farið niður á 2500 metra dýpi •— eða með öðr um orðum —■ tvo og hálfan km, niður í jörðina. Undanfarna daga hefur staðið til að hefja borun, en Það hefur tekið lengri tíma en búizt var vio_að koma pípunum niður í 750 metra dýpi, sem áður var búið að bora, en þessi hola er vi Undraland. Eftir að þessi hola hefur veriíj dýpkuð er ætlunin að dýpka þær aðrar holur, sem ekki hef- ur fengizt hiti úr til þess að ganga úr skugga um, hvort ekldl sé að finna heitt vatn á neðri hæðunum. , ÚTVARPIÐ í ÐAG: — 13.00 Óskalög sjúklinga (Bryndís fíigurjónsdóttir). 14.00 Um- ferðarþáttur (Gestur Þor- grímsson) 14.15 Laugar- dagslögin. (16.00 Fréttir og tilkynningar). 19.30 Sam- söngur: Leikbræður syngja. 20.30 Upplestur: „Hálend- ingur í heimsókn", smásaga eftir William Saroyan, í ■þýðingu Málfríðar Einars- dóttur (Guðmundur Páls- son leikari). 20.55 Tóna- regn: Svavar Gests kynnir lög eftir dægurlagahöfund- inn Hoaygy Carmiehael, — Síðan leikrit: „Dansinn okk ar“ eftir Peder Sjögren. — Þýð.: Óska.r Ingimarsson. 22.10 Danslög (plötur). 24. 00 Dagskrárlok. Safna rimum TVEIR Reykvíkingar eru nú iiffl það bil að leggja af stað í ferg vestur á firði í þeim til- gaitígi að safna rímum. Hafa þeir meðferðis segul- band. Gera þeir ráð fyrir, að vera á annan mánuð í ferðinni. Tvímenningarnir eu Þrándur Thoroddsen og Hallfreður Örn Eiríksson, j ívi LONDON: Hópur brezkra vís- indamanna hefur borðað stront- ium — hið hættulega efni, sem finnst í geislavirku ryki — til þess að komast að skýrari nið- urstöðu um, hvaða áhrif það hefur á líkamann, segir tals- maður brezka lækningarann- sóknaráðsins. Sjálfboðaliðar þessir starfa allir við rann- sóknastofu ráðsins í Harwell. Hættulegasta efnið, sem finnst í geislavirku ryki er strontíum 90, en -sjálfboðalið- arnir hafa borðað strontíum 85, sem hagar sér nákvæmlega eins og strontíum 90, en missir geislavirkni sína miklu fyrr. Sumir vísindamannanna hafa fengið strontíum í mat og drykk, en í aðra hefur því verið sprautað í æð, svo áð hægt væri að fylgjast með ferðum þess um líkamann í blóðinu. Sumir hafa fengið daglegan skamn%, en aðrir hafa fengið skammta með vissu millibili. Er þeir hafa fengið í sig Strontíum, annaðhvort með mat eða í æð, hafa þeir verið settir inn í stóran geigex’- teljara, sem sýnir hvernig þetta hættulega efni breiðist I út um líkamann, hvar það sezt fyrir og hvernig það1 safnast fyrir í beinunum. Strontíum hefur það eðli að safnast í beinin og með því að fylgjast með ferðum þess um líkamann geta vísindamennirn- ir komizt að raun um hve lang- an tíma „prócessinn“ tekur. Bifreiðasalan og íeigan fngóifsstræli 9 Sími 19092 og 1896« Kynnið yður hið stóra ú> val sem við höfum af all* konar bifreiðum. Stórt og rúmgott sýningarsvæði. SNreiðasalan Ingólfssiræti 9 og ieigan Sími 19092 og 18966 Snœfellingar ! Félag Snæfellinga og Hnappdæla ráðgerir skemmti- ferðalag að Bjarkai’lundi. 15. og 16. ágúst, ef næg þátttaka fæst. Áskriftalisti liggur frammi í Raf- lampagerðinni, Suðurgötu 3, sími 11929, ásamt frekí- ari upplýsingum til laugardagsins 8. ágúst. | STJÓRNIN. -i TiikyiinlH'i m afvinnu- | iefiisikrániniy 1 Atvinnuleysisskráning samkvæmt ákvörðun lagai nr. 52 frá 9. apfíl 1956, fer fram í Ráðningarstofu Reykjavíkurbæjar, Hafnarstræti 20, dagana 4., 5. og 6. ágúst þ. á., og eiga hlutaðeigendur. er óska að skrá sig samkvæmt lögunum að gefa sig frarn kl. 10—1? f. h. og kl. 1—5 e. h. hina tilteknu daga. , Óskað er eftir að þeir sem skrá sig séu viðbúnir að svara meðal annars spurningunum: / 1. Um atvinnudaga og tekjur síðustu þrjá mánuði. 2. Um eignir og skuldir. | Reykjavík 30. júlí 1959. | Borgárstjórinn £ Reykjavík. ] 2 1- rgúst 1959 — Alþýðublaðið

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.