Alþýðublaðið - 01.08.1959, Blaðsíða 9

Alþýðublaðið - 01.08.1959, Blaðsíða 9
( ÍÞróttir""") Viðtöl við nýbakaða drengjameistara ÍÞRÓTTASÍÐUNNI þykir 189 cm í hæð „klofar hann hæð- tilhlýðilegt, að birta hér nokk- ir upp að 180 cm, eins og það ur viðtöl við nýbakaða drengja- Væri aðeins sjálfsagður hlutur. meistara í frjálsíþróttum. Sjálf- Ekki aðeins ánægðir með stökk stíl Jóns, þ.á.m. þjálfari ÍR, Ungverjinn Gabor, sem vinnur nú að því að kenna Jóni að stökkva á „grúfu“. — „Ég er viss um, að tveir metrarnir koma í framtíðinni, þegar ég er búinn að læra góðan stil,“ seg- ir Jón, um leið og hann brosir út í annað munnvikið, eins og hans er vandi. Kristján Stefánsson FH. Það urðu margir furðu lostn- ir, þegar það fréttist fyrr í sumar, að 16 ára drengur hafði kastað spjóti fullorðinna meira en 55 metra. Þetta var Kristján, sem hóf íþróttaferil sinn svona glæsilega, og í honum eygja menn hinn fyrsta 70 metra kast- ara íslands. — Kristján hefur síðan sýnt miklar framfarir í ýmsum öðrum greinum, og á ábyggilega eftir að kveða mikið að honum í framtíðinni, ef hann æfir áfram vel og skynsamlega. Páll Eiríksson FH. Það urðu margir undrandi, þegar það fréttist fyrr í ekki?“ „Jú, ég hef verið mest í handbolta, eins og allir Hafn- firðingar.“ „Spilið þið ekki báð- ir, þú og Kristján, í 2. flokki FH í handbolta?“ „Jú, en það er aðallega á veturna, á sumr- in æfum við frjálsar íþróttir mest.“ — Drengurinn, sem fréttamaðurinn talar við, Páll Eiríksson, er grannur og veik- byggður, og ef fréttamaðurinn hefði ekki séð það með eigin augum, þegar hann stökk 3.25 í stangarstökki, hefði hann aldrei trúað því, að hann gæti það. En viljafestan og ákveðn- in gneista af Palla, og það er einmitt aðalsmerki góðs íþrótta manns. Helgi Hólm ÍR. „Til hamingju með sigurinn í 800 og 1500 metra hlaupunum, Helgi, varstu ekki spenntur fyr- ir keppnina?“ „Jú, blessaður vertu, meira en það, ég var mjög óstyrkur. Jón Júlíusson, Ármanni, vann mig nefnilega í 1500 metra hlaupi á Ármanns- mótinu, og ég vissi, að hann yrði harður. Einnig er ómögu- legt að reikna Steinar frá Hafn- arfirði út. Já, ég var spenntur, en þetta blessaðist allt saman.“ Helgi, sem er mjög hlaupalegur og hefur mik'inn áhuga á hlaupunum, á áreiðanlega eftir að ná langt á hlaupabrautinni. Hann skýrir hinn góða árangur ÍR-inga á drengjamótinu með því, að það sé fyrst og fremst vegna þess, hVe þeir hafi góð- an þjálfara, Ungverjann Gabor, og Helgi vill hvetja unga drengi til þess að koma út á Melavöll og nota sér tilsögn hans, með- an þess er völ. Kristján Eyjólfsson ÍR. Það leit ekki vel út fyrir Kristjáni í þrístökkinu. Fimm umferðir voru búnar og Þor- valdur var fyrstur með betra stökk en Kristján hafði nokk- urn tíma stokkið. En Kristján var ekki á því, að gefa sig. Hann undirbjó sig vel undir síðustu tilraun sína, vandaði sig í atrennunni, og stökk síðan Tveir efnile-gir hlapuarar, Helgi Hólm, IR og Gylfi Gunnarsson, KR, sem genginn er upp í unglingaflokk. sagt munu margir hafa gaman af að heyra álit þessara ungu, efnilegu pilta, sem ef til vill eiga eftir að gera garðinn fræg- an á sviði íþróttanna. Steindór Guðjónssoji ÍR. „Heyrðu, Steindór, þú hlýtur að verða góður í tugþraut í framtíðinni,“ verður frétta- manninum á að segja, þegar hann hefur horft á Steindór vinna .5 meistaratitla, eða í 110 metra og 200 metra grinda- hlaupum, 100 m og 300 m hlaup um og 4X100 m boðhlaupi, og auk þess standa sig mjög vel í stangarstökki og kúluvarpi. — „Já, ef til vill á maður eftir að snúa sér algjörlega að tugþraut, ég veit það ekki ennþá, en ann- ars hef ég mestan áhuga á stang arstökki og grindahlaupum.“ „Þú ert 17 ára, Steindór, vegna hvers ertu þá ekki drengur næsta ár líka?“ „Ég er því mið- ur einum degi of gamall, ég verð 18 ára 31. desember, og þar sem ég verð 18 ára á þessu ári, telst ég til unglinga næsta ár.“ Jón Ó.lafsson ÍR. íslandsm. drengja í hástökki hefur ekki mikið fyrir því að stökkva upp í loftið. Með sína fniiiiiiiiiiiimiiiiiit-iiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiimmimiiiiiiii ( KR lapaði | | 1:5 og 1:3 1 | EINS og skýrt hefur verið = | frá hér í blaðinu, eru meist- I | araflokkur og 2. flokkur KR | | í keppnisferð í Danmörku. 1 | Báðir flokkarnir kepptu í § | fyrrakvöld. Meistaraflokkur I | lék gegn úrvali JBU, en í því I | léku fjölmargir danskir f | landsliðsmenn og fóru leikar | | þannig, að Jótar sigruðu með 1 | 5 mörkum gegn 1. Mark KR | | inga skoraði Þórólfur Beck. | | Tæpir sex þúsund áhorfend- | | ur sáu leikinn. KR leikur i | næst í kvöld ge-gn liði, sem | | heitir Ikast. | Annar flokkur keppti 1 | gegn úrvali frá Sjálandi og | 1 urðu úrslit þau, að Danir | | sigruðu með 3:1. 'niiiiiiiiiimmiimmiimiimiimiiiimiiimiiiiiiiiiiiiiiir með allri þeirri orku, sem hann átti til. Stökkið var langt, en var það nógu langt? Meðan dóm ararnir mældu stökkið, stóð hjartað kyrrt í Kristjáni, en þegar þeir tilkynntu, að Krist- ján hefði stokkið 13 metra og 23 sentímetra og væri þar með fyrstur, þá hamaðist hjartað í br jósti Kristjáns. „Þú stóðst þig vel í þrístökkinu, Kristján, til hamingju.“ „Þakka þér fyrir, sigurinn var mér kærkominn. því að mér gekk svo illa í lang- stökkinu. Ég hef stokkið 6,22 fyrr í sumar, en nú kemst ég ekki einu sinni í úrslit af ein- tómri óheppni. „Þú vinnur það næsta ár, því þá ertu drengur líka.“ „Ég vona það.“ Þorvaldur Jónasson KR. ,,Já, hann Kristján sló mér við í þrístökkinu, en ég varð meistari í langstökkinu í stað- inn, svo að það má segja, að það hafi verið jafnt skipt. Auk þess vann ég kúluvarpið, svo að ég er ánægður með minn hlut.“ Myndirnar eru af tveim fræknustu íþróttamönnum V.-Þýzkalands, grinda- hlauparanum Martin Lau- er og spretthlauparanum Manfred Germar. Eins og skýrt var frá hér á síðunni fyrr í vikunni, sigraði Eau- er í tveim,greinum á þýzka meistaramótinu, 110 m. grindahlaupj og 200 m. grindahlaupi. Hann náði tímanum 14,0 sek. í mikl- um mótvindi. Germar sézt hér sigra í 100 m. hlaup- inu á 10,5 sek., í mótvindi hann sigraði einnig í 200 m. hlaupinu. — Báðir eru kapparnir í félaginu ASV Köln, en það varð meistari í 4x100 m. og auðvitað voru Germar og Lauer báð ir í sveitinni. wuwwwwwwnwwnw ÞEIR örfáu og áhugasömu áhorfendur síðasta keppnis- dags meistaramóts Reykja- víkur urðu vitni að einu leið inlegasta og ömurlegasta frjálsíþróttamóti, sem fram hefur farið hér í bænum lengi. Á því sannaðist, að lengi getur vont versnað. Við skulum rekja atburði kvöldsins í stuttu máli, en upphafið var, að flestir kepp endanna héldu að mótið ætti að hefjast kl. 8, en venja hef ur verið að hef ja keppni eins snemma og hægt er, þegar háð er fimmtarþraut, því að hún tekur venjulega nokkuð langan tíma og einnig mátti búast við nð margir yrðu með, þó að aðeins þrír væru á skrá. En kl. var 8 og hún var stundarfjórðung yfir 8 og enginn starfsmaður sást. Það var ekki fy.rr en tæplega hálfníu, að þeir fyrstu fóru að tínast á völlinn, en sjálf keppnin hófst ekki fyrr en kl. að ganga tíu. Er þetta hægt? Allt gekk stórslysalaust í tveim fyrstu greinunum, en Þegar hefja átti keppni í fimmtarþraut kl. rúmlega hálftíu, fór fyrst að draga til tíðinda. Venja hafði verið, að keppendur fengju að ganga inn í keppni í hinar ýmsu greinar mótsins, þó að þeir væru ekki skráðir í þær og meira að segja þó að þeir væru ekki skráðir í neina grein, en nú var allt í einu á- kveðið að stöðva það. Þetta hleypti illu blóði í marga f- þróttamenn, sem langaði að keppa í fimmtarþrautinni. Stöðvaðist nú öll keppni í í- þróttum í bili, en í Þess stað fengu þessir 5 eða 6 áhorfend ur, sem sátu í stúkunni, að horfa á flesta starfsmenn og keppendur mótsins hópast saman og rífast í 10 til 15 mínútur. Sanngjarnt hefði verið gagnvart áhorfendum að endurvarpa þessum um- ræðum gegnum hátalakerfi vallarins, svo að þeir fengu eitthvað fyrir aðgangseyri sinn, en áhorfendur gleymd- ust nú eins og svo oft áður. Meðan deilur stóðu sem hæst út af fimmtarþrautinni, létu þeir starfsmsenn, sem stóðu utan við deilurnar, hef ja keppni í 3000 m hlaupi. Þá kom í Ijós, að einn af þrem keppendu mhlaupsins hafði ekki verið skráður í greinina og enginn úr hans félagi. Náðu nú deilurnar út af fimmtarþrautinni há- marki, sem von var, því að þarna var verið að beita svo augljósu misrétti. Leikstjóri mótsins var forfallaður, en sá eða þeir, sem tóku að sér hans hlutverk, sátu fastir við sinn keip og leyfðu engum að ganga inn í keppnina í fimmítarþrauíinni, nema í staðinn fyrir einhvern annan úr sama félagi. Að loknum þessum deilum, þar sem t. d. stjórnarmeðlimir frjáslí- þróttaráðsins rifust eins og kettir, liófst keppnin í fimmt endum og var henni liespað irþrautinnj með tveim kepp- af á m'ethraða eða tæpri klukkustund. Það. lá t. d. svo mikið á, að keppendur höfðu tæpast lokið keppni í kringlu kosti, þegar þeim var til- kynnt, að 1500 m hlaupið, síð asta greinin, ætti að hefjast strax, en í einhverjum lög- um stendur þó :að líða eigi á- kveðinn lágmarkstími milli greina. Að lokum kemur rúsínan í pylsuendanum: Þegar átti að fara að reikna út stigin kom í Ijós, að enginn áf for- ráðamönnum mótsins hafði tekið með sér stigatöflu, en í vienjulegri fimmtarþrautar- keppni eru stigkeppenda gef in upp eftir hverja grein! Ekki verður f jölyrt frekar um þetta að sinni, en allir unnendur frjálsíþrótta hljóta að sjá a ðsvona getur þetta ekki gengið lengur. ezfa frjálsíþrótta- vfkur 1959 SÍÐUSTU greinar meistara- móts Reykjavíkur í frjálsíþrótt um fóru fram í fyrrakvöld, en það voru boðhlaup, fimmtar- þraut og 3000 m hlaup. Enda- lok mótsins urðu allsöguleg og er skýrt frá því á öðrum stað á síðunni. Fimm sveitir tóku þátt í 4X 100 m boðhlaupi og sigraði Ár- mannssveitin. Eftir fyrsta sprett voru Ármann og ÍR nokk uð svipuð, en á öðrum tók Ár- hann örugga forustu og hélt henni í mark, en í sveit Ár- manns voru Grétar Þorsteins- son, Þorkell St. Ellertsson, Þór- ir Þorsteinsson og Hilmar Þor- björnsson. í 4X400 boðhlaupi kepptu aðeins Ármann og KR og sigruðu Þeir fyrrnefndu með yfirburðum, en tími var ekki sérstakur. Sigursveit Ármanns var skipuð sömu mönnum og voru í 4X100 m sveitinni, nema að Hörður kom í stað Hilmars. Það var ekki hægt að búast við góðum tíma í 3000 m hlaup inu, þar sem veður var ekki upp á það bezta, en að sjá Kristleif og Svavar hlaupa á tæpum 10 mínútum var eitthvað skrýtið. Annars botnar enginn í því, að 3 km skuli vera orðnir meist- aramótsgrein — það er víst eina landið í veröldinni, sem það er, en nóg um það. Valbjörn sigr- aði í fimmtarþrautinni með bros á vör. HELZTU ÚRSLIT: 4X100 boShlaup: Sveit Ármanns 44,5 Sveit ÍR _ 45,2 Sveit KR (a) 46,1 Sveit KR (b) 47,9 ' Drengjasveit ÍR 48,3 4X400 m boðhlaup: Sveit Ármanns 3:33,9 Sveit KR 3:44,2 3000 m hlaup: Kristleifur Guðbj.s., KR 9:56,4 Svavar Markússon, KR 9:57,6 Jón Júlíusson, Á 9:57,8 Fimmtarþraut; Valbjörn Þorláksson.ÍR 2390 st. (6,02; 55,08; 22,9; 34,33) Þorvaldur Jónsson, KR 1973 st. Úrslit stigakeppninnar: KR 213; ÍR 160; Á 59. Alþýðublaðið — 1. ágúst 1959 0

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.