Alþýðublaðið - 01.08.1959, Qupperneq 7
Temple
ma. Hún
í hverri
ri við ó-
1 Það fór
mörgum
i/arð ekk
tækkaði.
Shirely
nú fyrir
LÚn kom
rnatíma.
:kuð vin-
/AUG-LÝS-
and.
leikkona)
kom til
;g prins-
m ástæð-
kki leyfi
Le er nú
g á með
sem er
DOKTORINN var númer
kvöldsins á síðasta klúbb-
fundi.
Einhvern veginn barst
talið að skemmtilegum aug
lýsingum, sem birzt hafa í
dagblöðunum, og þar sem
prentvillupúkinn hefur gert
sín stykki. Og þá var ekki
aldeilis komið að tómum
kofunum hjá doktornum.
Því hagar þannig til, að
á heimili hans hefur það
verið siður alla tíð að nýta
hlutina til hins ýtrasta.
Þannig verður soðin ýsa um
hádegið að plokkfisk á
kvöldin hjá vesalings dokt-
ornum, og ekki nóg með
það: Plokkfiskurinn verður
að heimatilbúnum fiskaboll
um í hádeginu daginn eftir.
Dagblöðunum pr til dæm
is ekki fleygt á því heimili,
þótt búið sé að lesa þau
spjaldanna á milli. Þau eru
sett' á salernið til fullkom-
innar og endanlegrar nýt-
ingar. Og doktorinn hefur
haft það fyrir sið í fjölda-
mörg ár að lesa smáauglýs-
ingar dagblaðanna til þess
að stytta sér stundirnar á
salerninu. Hugmyndinni
hefur hann áreiðanlega
stolið frá Þórbergi, sem hér
einu sinni las ævinlega bibl
íuna á esperanto á salerninu
— og gafst vel.
Fyrsta auglýsingin, sem
doktorinn sagði okkur, var
svona:
„Kvenfélag . Neskirkju
heldur aðalfund sinn í dag
klukkan 8.30 í Tjarnarkaffi
uppi. Venjuleg aðalfundar-
störf. Kaffidrykkja. Bólu-
setning."
Við þurftum ekki að
spyrja að því, hvers vegna
doktornum var þessi auglýs
ing minnisstæðari en allar
hinar, sem á eftir fylgdu.
Konan hans er nefnilega ein
af aðglforustukonunum í
þessu ágæta kvenfélagi og
auglýsingar frá því geta
haft alvarlegar afleiðingar,
sérstaklega ef í þeim stend
ur: Félagskonur mega taka
með sér gesti!
Tvær næstu auglýsingar
urðu til þess, að Skari
plöntufótur fékk óstöðvandi
hláturskast. Þær birtust
báðar í Tímanum, en Fram-
sóknarfyndni er sú bezta
fyndni, sem Skari heyrir:
„Vetrarmaður í Skálm-
holti í Villingaholtshreppi
er jarpur hestur fullorðinn.
Mark tveir bitar aftan
vinstra."
„Eyfirðingar. Kynbóta-
hesturinn Nökkvi frá Hól-
um í Hjaltadal verður að
Auðbrekku frá 16. maí til
15. júní næstkomandi til af
nota fyrir héraðsbúa.“
Að lokum dró doktorinn
þessa úr pokahorninu:
„Skrifstofustúlka, sem
kann vélritun, óskast.
Enskukunnátta nauðsynleg.
Laun samkvæmt launalög-
um. Jarðarförin auglýst síð
ar. Atvinnudeild háskól-
ans.“
En nú var plöntufóturinn
búinn að þegja of lengi.
Hann varð að láta ljós sitt
skína, þó ekki væri nema
rétt undir lokin. Hann lagði
til, að eftirfarandi auglýsing
yrði birt í öllum dagblöðum
bæjarins og þar að auki les
in þrisvar sinnum í útvarp-
ið. Hann tók út úr sér vind-
ilinn ti'l þess að ekkert orð
af snilldinni færi forgörð-
um:
„Tek að mér að skemmta
fólki í heimahúsum. Hef
engan húmor. Dokt,orinn.“
En bragðið. hreif ekki. Ég
var búinn að vera í kosn-
ingabandalagi við doktor-
inn allt kvöldið og datt ekki
í hug að svíkja hann, þegar
mest á reyndi.
Nilli.
□PNUNNRR
ann aug- spæjarinn okkar kominn,
særður. herra minn,“ heyrir Frans
upp að að annar mannanna segir:
ru rifnar „Flugvélin hans hrapaði til
r ýtt inn jarðar og enda þótt hann sé
[ér er þá þungt haldinn, þá hefur
hann þó varla misst máiið.“
En líðan Walraven er þó
verri en þeir hyggja. Hann
fellur saman og eflir andar-
tak liggur hann meðvitund-
arlaus á gólfinu. Anna
þekkir hann þegar í stað,
rekur upp óp og beygir sig
yfir hann. „Nú, það er þá
svona,“ heyrir Frans sagt
inni í herberginu. „Stúlkan
þekkir þá manninn.“
MOCO
>
A
Tékkneskir
Peysufafaskór
kr. 351,15.
Vinnuskór
karlmanna
kr. 170,85 — 246,75.
ASalstræti 8
Laugavegi 38
Laugavegi 20 A
Snorraliraut 38
UHiöN
f y r 1 r 1 i g g j a H d i .
Helgi IVBagnússon & Co.
Hafnarstræti 19. — Sím>ar: 1-3184 og 1-7227.
Glænýtt heilagfiski oi
LAX
Húsmæður ath.
Lokað mánudaginn 3. ágúst.
Fiskhöllin
og útsölur hennar — Sími 1-1240.
5 herhergja íbúð
í Hafnarfirði
Til sölu ný og glæsileg 5 herhergja efri hæð raci
geymslupláss, í risi, á mjög fallegum stað í suðaustur
bænum.
Sériimgangur — Sérhiti.
Árni Gunnlaugsson
Austurgötu 10 — Hafnarfirði.
Sími 50764, 10—12 og 5—7.
Skálholfskirkja.
Þeitr, sem enn hafa ekki vitjað uppdrátta að tillcg-
um sínum í samkeppni um steinda glugga í Skálholts
kirkju, eru heðnir um að sækja þá á teiknistofu húsa
meistara ríkisins, Borgartúni 7, fyrir 10. ágúst n.fc.
Húsameistari ríkisins.
Alþýðublaðið — 1. ágúst 1959 J