Alþýðublaðið - 07.08.1959, Blaðsíða 2
VEÐRIÐ: Rigning um land
allt.
★
☆
UISTASAFN Einars Jónsson
ar, að Elnitbjörgum, er opið
daglega kl. 1.30—3.30.
I $
MINJASAFN bæjarins. Safn
deildin Skúlatúni 2 er opin
daglega kl. 2—4. Árbæjar-
safn opið daglega frá kl. 2
—6. Báðar safndeildir eru
lokaðar á mánudögum.
'ár
HAPPDRÆTTI Háskóla ís-
lands: Dregið verður í 8. fl.
á mánudaginn. í dag er því
seinasti heði endurnýjun-
ardagurinn. í 8. flokki eru
996 vinningar að upphæð
kr. 1 255 000,00.
☆
ÚTVARPIÐ: 20.30 Samsöng-
ur: Golden Gate kvartett-
inn syngur negrasálma.
20.45 Erindi: Að hverfa í
múginn (Hannes J. Msip-
. ússon skólastjóri)! 21.10
. Tónleikar. 21.25 Þáttur af
músíklífinu (Leifur Þórar-
insson). 22.10 Kvöldsagan:
,,Tólfkóngavit“ eftir Guð-
mund Friðjónsson, XI •—
sögulok (Magnús Guð-
mundsson). 22.30 Á léttum
strengjum: Les Brown og
. hljómsveit hans leika.
☆
Kaþólska kirkjan: Síðdeg-
ismessa í dag kl. 6.15.
Höfum fengið
HJÓLBARÐA
í eftirtöldum stærðum:
520x13
590x13
450x17
550x13
670x15
710xtó
820x15
750x20
825x20
Sveinn Egilsson h.f„
Laugavegi 105,
sími 22466.
Baldur
-ti,l Sands, Skarðsstöðvar, Salt-
?hólmavíkur, Króksfjarðar,
iHjallaness og Búðardals á
Jpriðjudag.
Vörumóttaka á mánudag.
M.S' Sfíjaldhreið
vestur um land til Akureyrar
hinn 13. þ. m. Tekið á móti
flutningi á mánudaginn til
‘Húnaflóa- og Skagafjarðar-
hafna og til Olafsfjarðar.
Farseðlar seldir á miðviku-
tíag.
HALLDÓR Halldórsson, pró-
fessor í íslenzkri málfræði við
Háskóla íslands, ér á förum
utan. Fer hann í boði Lundar-
háskóla til þess að kenna þar
sem gestur á tímabilinu frá
miðjum september fram í marz.
Sænskir háskólar hafa yfir
að ráða styrkjum, sem veittir
eru til þess að bjóða erlendum
prófessorum heim, en þeir pró-
íessorar, sem styrkina fá, hafa
tiltekna kennsluskyldu á skóla-
árinu. Mun Halldór Halldórs-
son fyrsti íslenzki prófessor-
inn, sem slíkan styrk fær.
Kennsluskylda hans er 75
stundir, en hann mun fyrir jól
hafa byrjendanámskeið í nú-
tímaíslenzku, 4 tíma á viku. Á
seinna kennslutímabilinu eftir
jól mun hann halda fyrirlestra
um íslenzka hljóðfræði, og
hjólbarðar.
560x15
640x13
640x15
710x15
og 700—760x1
Gari^r
Gíslason hf«
Bifreiðaverzlun.
Hverfisgötu 4.
sennilega verður auk þess ein-
hver textalestur.
FRANSKUR DÓSENT
KENNDI ÍSLENZKÚ.
Hingað til hefur franskur
maður, Pierre Naert, verið dó-
sent við Lundarháskóla, og hef-
ur hann a.m.k. við og við kennt
nútímaíálenzku, en prófessor-
arnir í sænsku við háskólann
hafa einnig lagt stund á íslenzkt
mál. bó einkum forníslenzku.
Halldór mun fara utan með
konu sína og þrjú börn, en há-
skólinn sér honum fyrir bústað.
Baldur Jónsson, magister frá
Akureyri, sem von er á heim
frá námi í Ameríku nú í sept-
ember, mun taka við kennslu
Halldórs Halldórssonar við há-
skólann hér, en kennsla í beyg-
ingafræði mun þó falla niður.
Prófessor Halldór hefur feng-
ið ársleyfi frá störfum, en eftir
dvöl sína í Lundi hyggst hann
skreppa til Síokkhólms og ef
til vill ferðast meira um Sví-.
b.ióð.
íjsrélSIr
Framhald af 9. síðu.
6 mílur: Eldon, E 28:16,2.
Merrimann, E 28:19,0. Höger, Þ
28:26,2. Konrad, Þ 29:10,4.
Lang-stökk: Molzberger, Þ
7,48. Deyerling, Þ 7,15. Whyte,
E 7,01. Brigden, E 6,82.
Kringlukast: Lindsay, E 52,75.
Biihrle, Þ 50,76. Cleaver, E
50,69. Möhring, Þ 49,93.
4X440 yds: Þýzkaland 3:09,6.
England 3:09,7 (hart!).
•k LONDON: Fulltrúar Ind-
■lands Pakistan og Alþjóða-
bankans hófu í dag viðræð-
ur um fyrirhugaðan samn-
ing um vatnið í Indusfljóti,
sem Indverjar og Pakistan-
búar hafa deilt út af í úm
12 ár.
2, 7. ágúst 1959 — Alþýðublaðið
í TILEFNI af blaðaskrifum j
um viðskipti Tékkóslóvakíu og
ísiands vill viðskiptamálaráðu-
neytið taka fram eftirfarandi:
Á árinu 1958 jókst innflutn-
ingur frá Tékkóslóvakíu mikið
og varð miklu meiri en við-
skip.tasamningurinn á milli
landanna hafði gert ráð fyrir.
Óánægja m«ð
kattadráplS
KONA nokkur hringdi í
Alþýðublaðið í gær og lét í
ljós hina megnustu óánægju
sína yfir því, að unnið væri
að kattadrápi í Reykjavík á
vegum opinberra aðila. —
Kvaðst konan hafa ástæðu
til að ætla, að ekki væru ein
■göngu villikettir drepnir,
heldur einnig húskettir,
enda hefði þeim fækkað ó-
eðlilega mlikið í seinni tíð.
Sagði konan, að margir ung-
lingar hefðu mikið yndi af
köttunum og því væri það
rangt að taka frá þeim þá á-
nægju, er kettirnir veittu
þeim. Kvaðst konan ekki
trúa því, að Dýraverndunar-
félögin legðu blessun sína
yfir kattadrápið. Alþýðublað
ið skýrir ef til vill síðar frá
afstöðu dýrverndunarsam-
takanna í máli þessu.
Þar sem útflutningurinn jókst
ekki að sama skapi, jukust
skuldir íslenzkra banka við
Tékkóslóvakíu hröðum skrefuna
og höfðu náð 19 millj. ísl. króna
(að meðtöldum ábyrgðum) um
sl. áramót. Á árinu 1959 hefur
innflutningur frá Tékkóslóva-
kíu verið minni en á sl. ári, en
þó fyllilega eins mikill og við-
skiptasamningurinn milli land
anna gerir ráð fyrir. Þessi samn
ingur, sem gildir fyrir tímabil-
ið 1. sept. 1958 til 31. ágúst
1959, gerir ráð fyrir innflutn-
ingi að upphæð 34,5 millj. tékk
neskra króna. Á fyrstu tíu mán
uðum tímabilsins, eða fram til'
júníioka, hafði gjaldeyrissala
bankanna vegna innflutnings
frá Tékkóslóvakíu numið 32
millj. tékkneskr akróna, eða
meira en 90% af þeim innflutn-
ingi, sem samningurinn gerir
ráð fyrir á tímabilinu öllu.
(Viðskiptamálaráðuneytið,
6. ágúst 1959.) !
Krislín Ófafsdóffr
lálin
FRÚ Kristín Ólafsdóttir, Langa
gerði 50, koná Guðlaugs Gísla-
sonar úrsmiðs, lézt í fyrra-
morgun. Hún hefur áratugum
saman starfað mjög í verka-
lýðshreyfingunni og Alþýðu-
flokknum. Kristín lézt af heila-
blóðfalli. Hún var þá að störf-
um í barnaheimilinu að Laug-
arási í Biskupstungum. Þessar-
ar ágætu konu verður nánar
getið síðar.
Framhald af 1- síðij.
RAUFARHÖFN í gærkvöJdi.
HÉR liefur ekki komið
branda á land í dag. Öll skipiu
eru suður á f jörðum. ÞistilfjörS ■
urinn er fullur af síld, en húa
stendur mjög djúpt og. er því
erfið viöfangs. Eru mjög fá skip
hér norður frá. G.Þ.Á.
mál. Heildarsöltun mun u*i 600
i tunnur.
Skipin, sem lagt hafa uppi
síðastliðinn sólarhring, erú
þessi: Víðir með 177 t. í salt og
220 mál í bræðslu, Jón Kjárt-
ansson með 147 t. í salt, en 120
mál í bræðslu, Hólmanes með
885 mál í bræðslu og 80 t. f
frost. Snæfell kom í morguii
með 860 mál í bræðslu, Hrafn-
kell er nýlagztur að með tals-
verðan slatta, og eitt hvað er
byrjað að salta úr honum. Vois
er á fleiri skipum og heyrzt hef-
ur m.a. frá marz, að hann hafi
þegar fengið 600 mál, en ætli
að fá meira, áður en Lonn kem-
ur að landi.
Síldin veiðist mest út af Gerp
isflaki og á Tangagrunni.
DAGANA 4. og 5. ágúst
fóru fram í Reykjavík við-
ræður um framkvæmd nokk
urra atriða í gildandi við-
skiptasammingum milli Sov-
étríkjanna og íslands, sér-
staklega varðandi viðbótar-
sölur á saitsíld og fiskflök-
um.
Af hálfu Sovétríkjanna
tóku þátt í viðræðunum þeir
Alexander M. Alexandrov
ambassador, I. S. Stepanov,
forstjóri Prodintorg, L. N.
Krassilnikov viðskiptafull-
trúi og N. Kiselev, aðstoðar-
viðskiptafulltrúi. Af hálfu ís
lands tóku þátt í viðræðun-
um Gylfi Þ. Gíslason við-
skiptamálaráðherra og al-
þingismennirnir Gísli Guð-
mundsson, Jóhann Hafstein
og Lúðvík Jósepsson, ásamt
Jónasi H. Harálz, ráðuneyt-
isstjóra.
I Viiðræðunum staðfestu
fulltrúar Sovétríkjanna að
Prodintorg myndi kaupa 80
þús. tunnur af saltsíld til við
bótar þeim 40 þús. tunnum,
sein áður hafði verið samið
um. Samningur þessi um
kaup var undirritaður í dag
af fulltrúum Prodíintorgs og
síldarútvegsnefndar. — Þá
lýstu fulltrúar Sovétríkj-
anna því yfir, að Prodintorg
myndi taka til uthugunar til-
boð um sö'lu á 6000 tonnum
af fiskflökum til viðbótav
því magni, sem áður hafði
verið samið urn. Jafnfranit
voru ræddir möguleikar á
atiknum innflutningi frá Sov
étr.íkjunum tii Islands og ráð
stafanir, er hægt væri að
gera af hálfu íslands til þess
að greiða fyrir slíkum inn-
flutningi.
(Viðskiptamálaráðuneytið,
5. ágúst 1959.)