Alþýðublaðið - 08.08.1959, Blaðsíða 9

Alþýðublaðið - 08.08.1959, Blaðsíða 9
( ÍÞróttir ) segir Karl Guðimimbson IÞROTTASÍÐAN hefir átt 'tal við Karl Guðmundsson, Iandsliðsþjálíara um Færeyja- för B-Iandsliðsins. En liðið lék, svo sem kunnugt er landsleik við Færeyinga hinn 29. júlí s. I. ■og var leikurinn einn liður há- tíðahalda Ólafsvökunnar, sem er þjóðhátíðardagur Færeyja. A Ólafsvökunni er jafnan mik- ið um dýrðir í Færeyjum, þó auðvitað séu hátíðahöldin hvað stórfenglegust í höfuðborginni, Þórshöfn, en áætlað var að um 10 þús. manna hafi tekið þátt í Ólafsvökufagnaðinum þar, að þessu sinni. Hátíðahöldin stóðu í 2 J/2 sólarhring samfleytt, — með dansi úti og inni og márg- víslegum öðrum •skemmtunum. Við fórum með m. s. Heklu og komum með henni aftur, sagði Karl, og gekk förin að heiman og heim mjög vel. Við vorum gestir Færeyska íþrótta sambandsins, en forseti þess er, Martin Holm, íþróttasamband Færeyja er stofnað árið 1902 og innan vébanda þess eru mörg félög. Móttökur allar voru með mikilli prýði og gestrisnin með eindæmum. Við bjuggum allir saman í stóru timiburhúsi, sem er eign Nordisk film.kompani, en félagið, sem hafði unnið að kvikmyndagerð í Færeyjum að undanförnu, hafði nýlokið verk efnj sínu þar, og stóð húsið því autt, en var fengið af hálfu móttökunefndarinnar, sem sá um komu okkar, til að hýsa okkur í, en við borðuðum hins- vegar í Hotel Föroyar, sem er nýasta hótelið í Þórshöfn. Að- búnaðurinn í húsi kvikmynda- félagsins og viðurgjörningur allur í hótelinu, var hvort- tveggj a með ágætum. Á Ólafsvökudaginn kl. 4 e. h. hófst svo landsleikuinn. Knatt- spyrnuvöllurinn í Þórshöfn er ekki sem beztur, en þar er nú í undirbúningi bygging fullkom inns leikvangs, með hlaupa- brautum og öðrum aðbúnaði til frjálsra íþrótta, auk knatt- spyrnuvalla. Eins og er, er gengi frjálsra íþrótta ekki mik ið í Færeyjum. Aftur á móti eru knattspyrna og handbolti í miklum metum. Sérstök hand- boltafélög eru þar starfandi, — auk þess sem önnur íþróttafélög einkum þó knattspyrnufélög — hafa sérstakar handknattleiks deildir innan vébanda sinna. En sú íþrótt sem þó á kvað mestrar hylli nýtur, er róður. Er sú í- þróttagrein einn meginþáttur þeirra íþrótta, -sem fram fara á Ólafsvöku, og taka þátt í henni, bæði karlar og konur, ungir og gamlir, og er róið á 4 til 10 manna fórum. Færeying- ar sækja fast róðurinn og er keppni hinna mörgu flokka mjög hörð. „kaupa sig inn“. Lið okkar sigr aði með 5 mörkum gegn 2. En eftir tækifærunum hefði sá sigur átt að vera meiri. Bezti maður Færeyinga var h. útherj inn Magnús Thorsteinsen. •— Færeyska liðið hafði þol og hraða, en skortir á í leikni. — Áhorfendur voru yfirleitt vin- samlegir, og klöppuðu lof í lófa þeim, sem hverju sinni sýndi góðan leik og snjallt viðbragð. Þó þeir auðvitað héldu með sínu liði. Guðjón Einarsson dæmdi leikinn og voru allir mjög ánægðir með hann. Dag- inn eftir leikinn fórum við í heimsókn að Kirkjubæ til Páls Paturson. Var sú för mjög á- nægjuleg. Páll skýrði okkur frá Stærsta myndin er af ísl. B-3 Iandsliðinu um borð í Heklu,! sú tveggja dálka er tekin í| kveðjuhófinu og sýnir for- mann íþróttasamhands Fær-| eyja afhenda Ragnari Láíus-| syni fararstjóra stórt og'J glæsilegt málverk að gjöf. Minnsta myndin sýnir lög-| mann Færeyja, Peter Mohrl Dam, halda ræðu í kveðju-| hófinu. ('Ljósm. Karl Guð- j mundsson). ★ Úrslit landsleiksins er þegar öllum kunn, svo óþarfi er að fjölyrða mikið um hann. En aðsókn að leiknum var mjög mikil, áætlað var aþ nær 4 þús. manna hafi sótt hann. í aðgangs eyri kom inn um 8 þúsund kr., sem mu-n vera algjört met. Þó greiddu ekki nærri allir að- gangseyri, því aðstaða var góð til að sjá leikinn án þess að sögu staðarins jafnframt sem hann sýndi okkur hann. ★ Þá lék okkar lið aftur í Þórs höfn, tveim kvöldum síðar, við sameinað lið þann leik unnum við einnig, með 5:1. Var þetta ekki síðri leikur en landsleik- urinn, einkum af hálfu Færey- (Framhald á 10. síðu.) Mf í frjáfsíþróttum: Hverjir verða íslandsmeistarar? NÚ verður haldið áfram með spádómana um væntanlega ís- landsmeistara í frjálsíþróttum og rætt um keppnisgreinar 2. mótsdagsins. 100 m hlaup: Hilmar virðist vera kominn í allgóða æfingu, en hann hljóp 100 m á 10,7 sek. á æfingu í fyrradag. Það er því varla hægt að búast við þvý að Valbirni og Einari Frímannssyni takist að ógna honum. Spá: Hilmar Þorbjörnsson, Á. Kringlukast: Keppnin verður geysihörð í kringlukastinu, eins og verið hefur á meistaramótum undan- farinna ára, en þar hafa þeir orðið meistarar á víxl, Hall- grímur Jónsson, Friðrik Guð- mundsson og Þorsteinn Löve. Hallgrímur sigraði á síðustu tveim mótum sumarsins, en Löve hefur sigrað á öllum öðr- um opinberum mótum, en Frið- rik náði bezta árangri sumars- ins á innanfélagsmóti í vor, 50,30 m. Spá: Þorsteinn Löve, ÍR. Stangarstökk: Þetta er ein af þeim grein- um, sem vitað er fyrirfram, hver verður meistari. Spá: Valbjörn Þorlákss., ÍR. 1500 m hlaup: Það sama er að segja um ☆ ÞAR sem Olympíuleikunum árið 1964 hefur verið úthlutað til Tokio, eru ýmsar borgir þeg ar farnar að líta til leikanna 1968. Nýlega samþykkti t. d. Olympíunefnd Argentínu, að sækja um 1968 leikana — og hefur sennilega Buones Aires í huganum sem keppnisborg. FRAM og VALUR lelka í dag TUTTUGASTI leikur knatt- spyrnumóts íslands í I. deild fer fram á Melavellinum í dag kl. 2. Þá leika FRAM og VAL- UR síðari leik sinn. Fyrri leik- urinn, sem háður var í vitlausu veðri, endaði 0:0. þessa grein og þá næstu á und- an. Spá: Svavar Markússon, KR, Þrístökk: Þar sem Vilhjálmur Einars- son mun vera kominn til lands- ins eða rétt ókominp og verður því með, er víst litilí vafi á því hver verður meistari. Spá: Vilhjálmur Einarss., ÍR. 110 m grindahlaup: Aðalkeppnin verður milli Inga Þorsteinssonar og I\iörg- vins Hólm, sá síðarnefndi hefur átt við veikindi að stríða og Ingi hefur lítið keppt, en trú- lega sigrar Björgvin. Spá: Björgvin Hólm, ÍR. Sleggjukast: Undanfarin ár hefur Þórður B. Sigurðsson verið ósigrandi í þessari grein og lítill vafi er á því, að hann sigrar einnig nú. Spá: Þórður B. Sigurðss., KR. 400 m hlaup: Okkar ágæti hlaupari Hörð- ur Haraldsson er meðal þátt- takenda og enginn vafi er á því, að hann verður meistari og sigr ar með yfirburðum. Spá: Hörður Haraldsson, Á. ■ ■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■ntina> 1 Hæifir eflir | i 0L í Róm ef... j ■ HINN kunni, ítalski « : kringíukastari, Adolf Con : ; solini, fyrrverandi evrópu : ; og olympíumeistari, sagði ; ■ nýlega í blaðaviðtali, að > : 60 m. komi bráðlega, en. 5 : mikið lengra verður ekki : ; kastað. Tæknin er ekki ; allt, sagði þessi 43 ára ■ gamli meistari. Það þarf : líka kraft. ; — Bezti kastari, sem ég * hef séð, er BandaríkiamaS • urinn Bahka. Eg held, að : hann kasíi fyrstur yfir 60 : m. Bahka er mjög vel ; byggður og tæknin er j fyrsta flokks, en meiðsli : í fæti há honum mikið. : — Takmark mitt er að ; komast í keppni Olympíu- « leikanna í Róm, en síð- : an held ég að það sé kom- I ið nóg, sagði Consolini að ; likuni. * ; Anderson brennd- ur í Herjálfsdal VESTMANNAEYJUM, um miðnætti í gærkvöldi. EKKI blaktir hár á höfði í Herjóífsdal. Gestafjöldinn á þjóðhátíðinni hefur aldrei ver- ið meiri og sérstakur hátíða- svipur er á öllu hér. í dag hafa farið fram ýmis skemmtiatriði. Má til dæmis nefna, að Lúðrasveit Vest- mannaeyja lék, en Oddgeir Kristjánsson stjórnaði henni nú í 20. sinn á þjóðhátíð. í íþrótta- keppni stökk Heiðar Georgsson 4,20 m og fleira gerðist mark- vert. Nú á miðnætti er kveikt í miklum bálkesti, sem yfir er strengdur hvítur dúkur, en á þá hlið dúksins, sem að fólkinu snýr, er máluð 2 m há mynd, sem ber svip Andersons skip- herra. Dans er stiginn á tveim pöll- um, og það er leikið og sungið út ura allan dal, en í kvöidhúm- inu glyttir í 400 tjöld. Þrír Júgóslavar, sem komu hingað sem laumufarþegar með hraðlestinni milli Aþenu og Haag, hafa verið fluttir úr landi segir í tilkynningu hér í dag. Sagði þar enn fremur, að dóms málaráðherrann hefði ekki fundið neina réttlætingu fyrir lengri dvöl þeirra í landintt. Þeir munu ekki hafa farið frá Júgóslavíu af pólitískum ástæð um, heldur af því að þeim þóttu lífskjör þar of léleg. Alþýðublaðið — 8. ágúst 1959 0

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.