Alþýðublaðið - 15.08.1959, Side 12
Ovísi hvort ég reyni aflur vi'
Ermarsund í ár segir Eyjólfur
Var hress, er Alþýðublaðið álti símlal
við hann í gærmorgun
ÞAÐ er óvíst hvort ég reyni
aftur í ár, sagði Eyjólfur Jóns-
son, er Alþýðubiaðið ræddi við
'hann í gær í símtali til Dover
'En ég er ákveðin í að reyna afí-
ur næsta sumar. Kvaðst Eyjólf-
"ur hinn hressasti og ekkert eft-
' lr s*g eftir sundið.
Eyjólfur kvað veðrið hafa ver
ið sæmilegt, er-hann hefði lagt
upp í sundið. Hefði verið heið-
sldrt en dálítill vindur. Hins
vegar hefði verið spáð lygnanai
veðri. Þetta hefði Þó reynzt
þveröfugt, þar eð veðrið hefði
versnað og farið að hvessa
rneira.
MYNDAVÉLIN FÓR FYRIE
BORÐ.
Sundið gekk mjög vel fyrstu
10 tímana, sagði Eyjólfur en þá
var rokið orðið svo mikið og
öldugangurinn að sjóveikin
náði tökum á mér. Varð nú æ
eriðara að halda stefnu vegna
strauma og öldugangs. Hrakti
Eyjólf mjög af réttri leið næstu
þ>rjár stundirnar eiró og sést
toezt á því, að hann hafði synt 35
milna vegalengd, er hann gafst
upp en styttsta vegalengd yfir
Brmasund er 21 míla. Þegar
Hyjólfur gafst upp átti hann
' eftir 6 mílur til lands og sá
ffiann Englandsströnd greinilega
fyrir sér.
Til marks um það liversu
rokið var rníiklð, sagði Pétur
Eiríksson þjálfari Eyjólfs, er
Alþýðublaðið ræddi einnig við
hann, tað ýmislegt lauslegt
hristist úr bátnum og þar á
meðal myndavélin mín svo, að
myndir verða engar frá sund-
inu.
ÓÞREYTTUR EFTIR
SUNÐÍÐ.
Pétur sagði, að Eyjólfur
hefði verið_ óþreyttur eftir
sundið. Venjulega gefast
menn upp vegna kulda og
þreytu. En Eyjólfi Var vel
heitt er hann hætti sundinu
enda vanur að synda í heitari
sjó heima. Pétur kvað fylgdar
mann Eyjólfs hafa reynzt vel.
Hann sagði, að það sem ylli
mestum erfiðleikum í sam-
handi við sundið væru straum
arnir, er kæmu úr öllum átt-
um.
vona að þetta kveiki
ÁHUGA.
Eyjólfur Jónsson sagðijað lok
um ,að hann vonaðist til þess
að þolsund hans hefði orðið til
þess að vekja áhuga annarra
ungra Íslendinga á þessari grein
íþróttanna. Að lokum það hann
fyrir kveðjur heim og kvaðst
halda heimieiðis í næstu viku.
vegur og SVR-ferðir
að farþegaafgreiðslu
Flugfélags íslands á Reykjavíkurvelli
BRÁTT verður hafizt handa
nrn lagningu nýrrar akbrautar
að farþegaafgreiðslu Flugfé-
lags fslands á Reykjavíkur-
flugvelli, en holótti malarveg-
tirinn af Njarðargötunni lagð-
ur niður. Þegar því verki verð-
ur lokið, munu Strætisvagnar
Keykjavíkur — Skerjafjarðar-
BOIZANO, 14. ág. (Reuter). —
Fjalla-Ieiðsögumenn hófu í
dag, með aðstoð þyrla, tilraun
til að bjarga þrem ítölskum
fjallgöngumönnum, sem hafa
verið tepptir í þrjá daga í hlíð-
um Marmolada (3400 m.) í Dó-
► Iómítafjallgarðinum.
Þyrluflugmaður, sem komizt
hefur næstum að mönnunum,
segir, að annar þeirra hangi í
kaðii fram af ; syllu, en hinn
hafi leitað sér skjóls þar rétt
hjá á bak við klett. Ástand
í>eirra er talið „alvarlegt, jafn-
vel örvæntingarfullt“. Skýja-
þykkni hindrar aðgerðir.
vagnar — leggja leið sína heim
undir hlað á farþegaafgreiðsl-
unni.
Mun vegur verða lagður út
af gömlu Þorragötunni og það-
an inn á völlinn, en liggja út
aftur á Hörpugötuna. Verður
þetta til mikils hagræðis fyrir
farþega flugfélagsins, auk þess
sem hinn nyi vegur verður mal
bikaður og sómasamlegur yfir-
ferðar. Vélaverkstæði ríkisins
á Reykjavíkurflugvelli sér um
framkvæmdirnar.
BRAUTARENDI
MALBIKAÐUR.
Unnið að malbikun á enda
flugbrautar 02 úti í Fossvogi.
Er það verk um það bil hálfn-
að. Leúgist brautin, sem er sú
lengsta á flugvellinum, bá um
137 metra. Er það helzta braut-
arvinnan í sumar, en í fyrra
var mikið malbikað yfir braut-
irnar. í ár þarf því aðeins að
fylla í holur, eins og jafnan er
nauðsynlegt,
Auglýst var eftir mönnum í
vinnu um daginn og fengust
nægilega margir. í fyrra á sama
tíma vantaði menn í malbik-
unai’vinnuna, en þá fékkst
enginn.
Loks má geta þess, að mikið
er að gera við nýju flugturns-
bygginguna.
Eyjólfur Jónsson
Sumardvölmæðra
í Hafnarfirði
UNDANFARIN 4 sumur hef-
ur verið gengizt fyrir þvf að
hálfu Hafnarfjarðarbæjar, að
konur í Hafnarfirði, sem þess
hafa óskað, gætu notið sumar-
dvalar, sér að kostnaðarlausu í
vikutíma, með eitt barn. Nú hef
ur verið ákveðið að bjóða kon-
um, sem ekki hafa átt kost á
sumardvöl í ár, að dvelja viku-
tíma á Laugarvatni. Þær kon-
ur, sem vildu sækja um þessa
dvöl gefi sig fram á skrifstofu
Verkakvennafélagsins Framtíð
arinnar í Alþýðuhúsinu, mánu-
dags- og þirðjudagskvöld n.k.
kl. 8,30—10,30 e.h. eða í síma
50307.
ÞINGSLIT fara fram í dag
kl. 1,30 og verður útvarpað frá
athöfninni.
Næsta reglulegt alþingi kem
ur saman í síðasta lagi 20. nóv-
ember samkvæmt lögum, sem
samþykkt voru í gær.
40. árg. — Laugardagur 15. ágúst 1959 — 171 tbl.
ÞAÐ er fremwr rólegt hjá
fangavörðunum í fangahúsinu á
Skólavörðustíg 9 þessa dagana-
Flestir þeirra fanga, sem sitja
þar eru í gæzluvarðhaldi, hin-
ir eru drykkjumenn, sem sitja
!nni nokkra aaga, en er síðan
sleppt. Og flestir þeirra koma
aftur. 493 hafa gist fangaklef-
ana þar frá síðustu áramótum,
á nákvæmlega sama tíma í
fyrra, var talan heldur hærri,
eða 494.
Árið 1953 er eitthvert mesta
glæpaár, sem fangaverðir muna
— Á því ári gistu 1112 manns
fangaklefana.
Tíðindamaður þlaðsins fékk
þessar upplýsingar í gær hjá
yfirfangaverði. Sagði hann, að
flestir drykkjumannanna
kynnu vel að meta það að
koma, Þegar þeir væxu aðfram-
komnir af hungri, kulda og ves-
öld, fá að dvelja í nokkra daga,
fá hreinsuð föt sín og nóg að
borða. Síðan væru þeir jafn-
fegnir að sleppa út — í sama
sukkið og áður.
Fangahúsið getur rúrnað um
26 manns. Hefur það oft hent,
að það sé yfirfullt, en algeng-
asta tala fanganna er 16—20
mnns. Jafnan er minnst um af-
brot um hásumarið, þegár flest-
ir eru í einhverri vinnu.
ÁNÆGÐIR MEÐ AÐ
SOFA OG BORÐA-
Fangarnir hafa lítið fyrir
stafni, nema sumir stytta sér
Framhald á 2. síðu.
Flugfélag íslands úlvegar
bifreiðir á leigu erlendis
Á SÍÐUSTU árum hefur það
mjög farið í vöxt, að ferða-
menn í öðrum löndum Ieigi sér
bíla og aki sjálfir til þeirra
staða, er þá fýsir að sjá.
Nú hefur Flugfélag fslands í
samvinnu við flugfélagið SAS
tekið að sér milligöngu um út-
vegun slíkra bifreiða handa
þeim farþegum sínum, sem
þess óska og sem koma til er-
lendra flughafna.
Væntanlegir farþegar geta
pantað slíka þjónustu t. d. um
; WWHWVVUUWWWVWWWWWMWWHWWWiWtVWWV
mm
erra ran
ÞJÓÐVILJINN gerði í gær mikið veður út af „fuvðu
legum ummælum forsætisráðherra í viðtali við brezka
blaðamenn“ og liefur það eftir ráðherranum, að íslend-
ingar muni sætta sig við Genfarsamþykkt um landhelg-
ismálið, hvað sem aðrir gera.
Hér er að sjálfsögðu ekki rétt farið með ummæli
forsætisráðherra. Morgunblaðið aflaði sér frétta af við-
tali hans við blaðamennina, og hefðu Þjóðviljamenn get
að lesið þar, hvað forsætisráðherra sagði. en hann tók
leinmitt skýrt fram, að íslendingar mundu telja sig
bundna af alþjóða samþykkt, SVO FRAMARLEGA
SEM ÖNNNUR RÍKI, SEM EINS STENDUR Á FYR-
IR BEYGÐU SIG LÍKA. Morgunblaðið hélt áfram frá-
sögn sinni og sagði, að við þessi ununæli hefðu brezku
blaðamennirnir kímt og haft orð á því, að varla væri
þess að vænta, að Rússar beygðu sig fyrir slíkri ákvörð-
un.
Það er þvf þegar skjalfest, livað forsætisráðherra
sagði, en auðvitáð trúa kommúnistar því frekar, sem er-
lend blöð segja en íslenzk, ekki sízt ef hægt er að sví-
virða pólitíska andstæðinga með því.
mMMMMMMWntMWMmmMMUMMHMMMUMMIMIMII
leið og þeir sækja farmiða
sinn í afgreiðslu félagsins £
Lækjargötu 4.
Þar er einnig hægt að greiða
fyrir bílaleiguna, ef þess er
óskað, en leiguna má einnig
greiða við móttöku bílsins. Að
sjálfsögðu fer greiðslan franá
í erlendum gjaldeyri.
Um margar gerðir bifreiða
er að ræða og er verð nokkuð
misjafnt eftir því í hvaða landi
er. Alls staðar er þó lágmarks-
leigutími einn dagur.
Sem dæmj um kostnað við
leigðan bíl má nefna, að í Kaup
mannahöfn kostar Volkswagen
þrjá og hálfan Bandaríkjadal á
dag yfi.r sumartímann,-ef um
eins til sex daga leigu er að
ræða. Ef bíllinn er leigður 7—
20 daga er dagsgjald þrír dalir,
en ef leigutíminn er yfir tutt-
ugu og einn dag er dagsgjald
2V2 'dalur á dag. Auk þess
greiðast 4 eent fyrir hvern ek-
inn km. og benzín.
í Kaupmannahöfn er hægt
að velja um 16 gerðir bifreiða,
og er Volkswagen ódýrastur
en Cadillac automatic dýrast-
ur: kostar fjórtán og hálfaii
Bandaríkjadal á dag, auk ben-
zíns.
Að samanlögðu annast Flug-
félag íslands milligöngu um
slíka bílaleigu fyrir farþega
sína í. eitt hundrat? og ellefu
borgum í tuttugu og fjórum
löndum. Alls er um 98 gerðír
bifreiða að velja og auk þess
eiga viðskiptamenn völ á tveim
gerðum húsvagna.
Sem fyrr segir er hægt að
panta bifreiðir í afgreiðslu
Flugfélags íslands í Lækjar-
götu 4, sem veitir allar nánari-
upplýsingar.