Alþýðublaðið - 27.08.1959, Page 6

Alþýðublaðið - 27.08.1959, Page 6
í GÆR SÖGÐUM við frá skoðanakönnun um líðan og hagi fólks í Danmörku og þar kom meðal annars í ljós, að fimmta hver kona í land- inu er of feit. Þetta hefur að líkindum valdið mörgum húsfreyjum nokkrum á- hyggjum og ef ekki áhyggj- um þá kvíða fyrir framtíð- inni. í dag getum við fullvissað blessað kvenfólkið um, að það er ekkert að óttast í þessum efnum, — ef rétt er að farið. Og þær sem þegar eru orðnar í digrara lagi eru heldur ekki vonlausar. Það er nú eitthvað annað! Nýtt líf bíður þeirra, — ef rétt er að farið. Myndirnar hér á Opnunni eru af fimm konunum, sem ugglaust eru hamingjusöm- ustu konur á jarðríki þessa stundina. Allar eiga þær það sameiginlegt að hafa megr- að sig mjög mikið, — allt upp í 100 pund. Þær beittu allar sömu að- ferðinni, svonefndri Stauf- fer-aðferð, og er hún ekki 'yyy/y/. mm iwm ... ■.'.. . . Wm r Aður 198 pund -- nú 135 einasta fólgin í sérstöku mataræði, heldur einnig megrunartækjum. Því mið- ur er ekki unnt að skýra frá aðferðinni lið fyrir lið, því að sérstakt fyrirtæki í Bandaríkjunum hefur einka leyfi á henni og konur, sem vilja reyna, verða að skrifa fyrirtækinu og fá síðan all- ar nauðsynlegar upplýsing- ar — auðvitað gegn háu gjaldi. Hvað vill ekki kven- fólkiðjgefa fyrir þó ekki sé nema örlitla bót á útliti sínu og fegurð? Og skyldu ekki fjármálaspekingarnir í henni Ameríku kúnna að notfæra sér það? Konurnar, sem myndirn- ar sýna, eiga hver um sig sína harmsögu, sem endaði giftusamlega, af því að þær gátu losað sig við spikið og orðið nettar og grannar. Flestar eru þær sammála um, að síðan þeim tókst þetta, hafi þær'í raun og veru endurfæðzt — byrjað nýtt líf, hamingjuríkt og auðvelt. Þær eru í sjöunda himni, eins og nærri má geta og hafa allar fengið viðurkenn- ingu frá megrunarfyrirtæk- inu fyrir frábærarTarangur. — Þegar ég gekk með dóttur mína, þyngdist ég um 60 pund, segir ein, •—• Vir- ginia Brevans frá Ohio (sjá efstu myndirnar). — Eg hélt eftir 40 pundum og gat ekki losnað við þau, bætir hún við. Og það sem hræði- legra var: Ég hélt áfram að fitna og þegar dóttir mín var um fermingu var ég al- veg búin að gleyma, hvernig er að vera grönn og létt á sér. — Virginía iéttist um 63 pund. Hún var áður 198, en er nú 135. — Mig hefur alltaf dreymt um að geta faríð í tizkuverzlun og keypt mér kjól númer 14. Ég var orð- in úrkula vonar um að sá draumur minn rættist — en viti menn: Nú get ég farið í búð og keypt mér kjól númer'14! Þetta segir Lois Berg- man frá Minnesota (neðst til hægri) , en hún var áður 180 pund, — er nú aðeins 147 pund. Hinar þrjár hafa svipaða sögu að segja. Þær voru Áður 180 puud Nú 147 pund Áður 230 pund Nú 139 pund orðnar svo feitar og þungar á sér, að þær gátu varla. unnið ærlegt handtak. Nú eru þær eins og unglömb, — mittisgrannar og fisléttar á sér. Einu má bæta við að lok- um: Því aðeins næst árang- ur í þessum efnum, að fólk sé ákveðið og einbeitt og leggi hart aÓ1 sér. ☆ BRETAR hafa valið beztu leikara ársins og urðu úr- slitin þessi: -£• 1. Dirk Borgarde. 2. Alec Guinness. -&• 3. Marlon Brando. -jjj- 4. Rock Hudson. 5. Tony Curtis. ■Jr 6. Kenneth More. -&• 7. Sidney Poitier. Beztu leikkonur ársins voru kjörnar: -^- 1. Virginia McKenna. -^- 2. Ingrid Bergman. -jir 3. Sylvia Syms. 4. Yokko Ta 5. Elizabeth -jfc- 6. Diana Var -&• 7. Doris Day -&- 8. Annie Ba: -^f- 9. Kim Nova Einnig voru kjörni: ustu dægurlagasöng og sá listi hljóðar s 1. Pat Boorn -£- 2. Frank Sin -jfe- 3. Elvis Pres -£- 4. Frankie 1 -^- 5. Tommy S 6. Doris Day •ýr 7. Mario Lai 8. Johnny M -jjj- 9. John Rait -^s-lO. Danny Ka ilr -*- HIÐ BEZTA, menningin iæðir a fólk, sem getur þol Franklin I -ár SJÁLFSÆVIS^ óviðjafnanlega tæl þess að segja san um alla aðra en sj: Philip G Aður 196 pund FANGAR FRUMSKÓGARINS Frans er lengi að jafna sig eftir undrunina yfir því að mæta prófessornum á þess- um stað. Hann tekur til við að útskýra málið fyrir hon- um, hvað sig sjálfan snertir: ,,Þannig er mál með vexti, að mér áskotnaðist fé með óvenjulegum hætti. Það voru laun fyrir að hjálpa íil við að klófesta háskalega demanta ■ég skal seinna segj því ævintýri . . . ! hitti ég vin minn, og við tveir höfun 0 27. ágúst 1959 — Alþýðublaðið

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.