Alþýðublaðið - 28.08.1959, Síða 11
niUIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIllUllllllllllllllllUIUimilllllillHI
7. da$ur
niUIHIUIIIIIIIIIIIUIIIHIUIimilllllllllllHUUIIUUUUII
hvar faðir hennar væri.
Hún fór nið'ur á skrif-
stofu herra Sehmirlt og bað
hann um heimilisfang Davíðs
Holden. Hann leit umdrandi á
hana: „Þekkið þér herra
^ Holden?“
Hún kinkaði kolli. „Já, ég
sat við sama borð oig hann
og horfði á skemmtiatriði'n í
igærkvöldi. Hann skýrði mér
frá því að sig vantaði dans-
mær.“ Hún hikaði og gat
ekki tengur hor'ft í undrandi
augu hans. „Eg ætlaði að
tata við hann um það.“
„Vitanlsga. Eg skal láta
yður fá heimilisfang herra
Holdens, fyrst þér viljið endi
lega tála við hann. „Rödd
hans var kuldaleg og form-
leg.
Hann fann heimilisfangið í
ispjaldskránni. Davíð Ho-lden
bjó hjá vini sínum, sem var
blaðámaður.
„■Viljið þér að ég hringj og
segi honum að þér séuð á
leiðinn?" spurðj hr. Schmidt.
Hún flýtti sér að hr.ista
höfuðið. ^sNjdi1, itakk, ég
hætti á að hann sé heima.“
„Allt í laigi. ungfrú Red-
fern,“ en hann elti hana
-með auguinum, þeiga.r hún
fór út.
Hún sótti kápuna sína og
hljóp niður stigann og fékk
sér leiguhíl. Það er einn mögu
leiki af milljón, hugsaði hún,
en jafnvel svo litlum mögu-
leika má ég ekki kasta á glæ,
ef ég á að hitta pabba aftur.
Byggingin, -sem Davíð Hold-
en bjó í var ekki langt frá hó-
telinu,. en í mjög glæsilegu
hverfi. Hún hafði verið reist
eftir stríð og var skrautleg.
Einkennisklæddur dyravörð-
ur opnaði stórar glerdyrnar
fyrir henni. Hún reyndi að
veita því eftirtekt, sem hún
sá og vinna bug á taugaó-
styrknum, sem greip hana.
En því var hún taugaóstyrk?
Hún þurfti ekki að óttast Da-
víð Holden monthana með ó-
þolandi framkomu!
Hún hugsaði um það hvað
hann var ólíkur herra Sell,
um dökk, segulmögnuð augu
hans og róna, sem streymdi
frá honum. Ósjálfrátt fannst
henni að hún gæti treyst hon-
um. En því gerði hún það
ekki núna? Hann hafði beðið
hana að gera ekkert fyrr en
hann hefði talað við hana.
„Tólfta hæð, miss“, sagði
lyftuvörðurinn. „Ef þér gang-
ið eftir ganginum komið þér
að stiganum, sem liggur upp
á efstu hæð“.
Hún rétti úr bakinu og rak
nefið út í loftið, þegar hún
gekk eftir ganginum og fann
fyrir forvitnislegu augnaráði
hans á eftir sér. Hún leyfði
sér ekki að hika við að hringja
á dyrabjölluna á efstu hæð-
inni. Það leið stutt stund, svo
opnaði Davíð Holden dyrnar.
Hann starði á hana eins og
hann þekkti hana ekki aftur.
„Já?“ sagði hann, svo bætti
hann við á þýzku: „Eruð þér
að selja eitthvað Fraulein?“
„Þekkið þér mig ekki, herra
Holden?“ sagði hún. „Við hitt
umst í gærkvöldi á hótelinu.
Ég er Linda Redfern“.
„Fyrirgefið þér, ungfrú
og við . gæfi ég hvað sem er
til að geta sofnað klukkan
tíu“.
„Já, ég býst við að lífið sé
ekki vanabundið í svona
flokk“, viðurkenndi hún.
„Rétt er það“, samsinnti
hann. „En þetta er bara góð-
ur leikflokkur. Fannst yður
það ekki? Hvað fannst yður
bezt?“
Hún reyndi að einbeita sér
að því sem hún hafði séð, en
hún hafði verið svo hrædd um
kvöldið að það var erfitt. „Ég
sá ekki mikið, en mér fannst
stúlkurnar tvær, sem sungu
og dönsuðu saman, mjög
góðar“, sagði hún.
„Lill og Lou. Já, þær eru
duglegar. Þær eru amerískar,
en eins og ég kannske sagði
yður, erum við alls staðar að.
Má ég ekki bjóða yður kaffi?
Jemíifer Ámes:
Redfern. Jú, ég man eftir yð-
ur. Fyrirgefið“. En rödd hans
bað ekki -um fyrirgefningu, í
henni var sami stríðnislegi
undirtónninn sem hafði farið
svo mjög í taugarnar á henni
síðast þegar hún talaði við
hann. Hún vissi að hún hefði
snúið við og farið ef henni
hefði ekki legið svo mjög á að
komast til Austur-Berlínar.
Hann brosti. „Verið ekki
svona móðguð á svipinn, ung-
frú Redfern, ég bið yður að
fyrirgefa. Þegar þér hringduð
vöktuð þér mig. Viljið þér
ekki koma inn?“
Hún varð að viðurkenna,
að hánn var sennilega að
segja satt. Hann leit út eins
og hann væri nývaknaður.
Hár hans var úfið og ekki
skánaði það við að hann
strauk fingrunum gegnum það
til að slétt-a það. Blá augu
hans voru enn syfjuleg og
hann var í bláum silkislopp
yfir gráum buxum og sport-
skyrtu.
„Náttuglur eins og ég verða
að nota hvert augnablik til
að sofa“, sagði hann. Hann
teigði sig og geispaði. „Við
„Heyrðu, heldurðu að þú hafir ekki
fengið nóg núna?”
Ég ætlaði einmitt að fá mér
kaffi“.
Án þess að bíða svars, gekk
hann út um hálfopnar dyr.
Hún heyrði vatn buna og glað
legt, en ómúsíkalskt flaut.
Hún var alltof æst á taugum
til að setjast niður og fór að
ganga um í rúmgóðri dag-
stofunni og dást að málverk-
unum á veggjunum. Öll stof-
an var mjög nýtízkuleg, næst-
um einum um of nýtízkuleg,
en hún kunni vel við það, þó
það væri gjörólíkt því sem
hún hafði lært um stíl og hús-
gögn af föður sínum. Það var
mjög gott útsýni yfir Berlín
frá stórum gluggunum. Já,
hún kunni vel við þessa íbúð.
Eftir augnablik kom Davíð
aftur inn, hann hafði greitt
sér og skipt á sloppnum og
tvíd-j akka. Hann bar bakka
með kaffikönnu, tvo mokka-
bolla og fagurt krystalsSett
með sykri og rjóma.
Hann hellti í bolla fyrir
hana og henti sér niður í sóf-
ann og stakk fótunum undir
sig. Svo bragðaði hann á kaff-
inu og sagði ánægður: „Ef
það er eitthvað sem ég get,
há er það að búa til kaffi!“
Hann er svo sjálfumglaður,
hugsaði hún. Er það þess
vegna, sem hann fer svona í
taugarnar á mér? Hún bragð-
aði á kaffinu og varð að við-
urkenna, að það var gott.
„En hvað það var fallegt
af yður að koma að heim-
sækja mig“, sagði hann. „Ég
bað yður um að líta inn við
tækifæri — eða var það
ekki?“ Blá augun horfðu ’
stríðnislega á hana yfir kaffi-
bollann.
Hún fann að hún roðnaði
og hún fyrirleit sjálfa sig fyr-
ir að roðna. „Þér buðuð mér
ekki í heimsókn. Ég fékk
heimilisfangiö hjá herra
Schmidt“.
Hann lyfti annarri augna-
brúninni lítið eitt. „Ja, so,
var það herra Schmidt! Fal-
legt af yður að spyrja hann.
Ég hlýt að hafa haft mikil á-
hrif á yður, þó að athuga-
semdir yðar um kvöldið
bentu ekki til þess að yður
fyndist ég sérlega aðlaðandi.“
Rödd hans var alltaf jafn
ertandi.
Hún fann að hún roðnaði
enn meira. „Þetta er engin
skemmtiheimsókn, herra Hol-
den“.
„Ekki svo?“ Augnabrúnir
hans lyftust á ný. „Það
finnst mér leiðinlegt, en samt
var ég viss um að svo væri“.
Andlit hans sem var meira
aðlaðandi en laglegt. varð al-
varlegt. ,,Hvað er að, ungfrú
Redfern?“
„Það er pabbi —“ Hún and
aði djúpt og tók fast um kaffi
bollann. ,,Hann er horfinn.“
Hann svaraði ekki. Hann
sat og starði niður í bollann
sinn og snéri honum vélrænt
í hringi. „Það var leitt, ung-
frú Redfern. En hvernig hald-
ið hér að ég geti hjálpað yð-
ur? Hví farið þér ekld til lög-
reglunnar?“
„Ég er búin að leita til lög-
reglunnar og þeir lofuðu að
gera sitt bezta, en mér fannst
þeir ekki taka þetta sérlega
alvarlega eða kannske þeir
séu bara svona vanir að menn
hverfi hér í Vestur-Berlín.“
„Og betta hafið þér aðeins
sagt lögreglunni og mér?“
spurði hann lágt.
Hun hikaði. „Jú, einum til,
vini föður míns, manni að
nafni Sell. Hann lofaði að
hjálpa mér, en nú hef ég ekk-
ert heyrt frá honum.“ Hún
hló titrandi hlátri. „Kann-
ske þér haldið að ég sé rugl-
uð, en hann virðist vera horf-
inn líka, þegar lögreglan fór
með mig heim til hans, var
íbúðin. tóm og það leit ekki
út fyrir að neinn byggi þa,r“.
Aftur þagði hann um stund.
„Kannske hefur hann nauð-
synlega þurft að fara“.
„Það getur verið“, sam-
sinnti hún. „Og ég er viss um
að hann talar við mig, þegar
hann kemur aftur. En á með-
an —“, hún þagnaði.
„Eruð þér hrædd?“
í fyrsta sinn fannst henni
hann aumkandi. Og hún not-
aði sér það: „Viljið þér ekki
hjálpa mér?“
Hann bandaði frá sér hend-
inni. „Kæra ungfrú, ekki veit
ég hvað ég ætti að gera. Ég
vorkenni yður að vísu, en get-
ur ekki verið að faðir yðar
hafi farið eitthvað? Er þessi
herra Sell góður vinur föður
yðar? En það er hann vitan-
lega, fyrst þér leituðuð til
hans“.
„Nei, það er hann ekki, en
ég held að hann vilji okkur
vel“, sagði hún dræmt. „Satt
að segja hitti faðir minn hann
fyrst hér í Berlín“. Hún sagði
honum frá því hvernig hann
hefði aðvarað föður hennar
•við að kaupa fölsuðu glösin
og um áhuga föður hennar og
herra Sell á fornum glösum.
„Smávegis kunningsskap-
ur“, sagði hann, þegar hún
hafði lokið máli sínu. Hann
lagði tóman kaffibollann frá
sér, greip sígarettuhylki, sem
lá á borðinu og bauð henni
sígarettu. Hún afþakkaði og
hann kveikti sér í einni. „Og
Hún leit niður og fann að
hún roðnaði á ný. „Já, það
held ég“.
„Það finnst mér leitt“. Og í
þetta skipti virtist hann meina
það. „Ég er hræddur um að
það sé einn af göllum mínum
að ég hlæ að svo til öllu. En
þér hafið ekki enn sagt mér,
hvernig ég get hjálpað yður“.
Hún kreppti hnefana og
hélt áfram: „Ég held að ef ég
kæmist inn á austursvæðið
gæti ég gert eitthvað til að
finna föður minn. Sjáið þér
til, við pabbi höfum aðeins
hvert annað — en þó hann
væri veikur myndi hann gera
eitthvað til að finna mig *g
kannske gæti ég hjálpað hon-
um að komast hingað. Ég hélt
að þér gætuð kannske sagt
mér hvernig ég kemst til
flugvéíarnart
Flugfélag íslands.
Millilandaflug: Millilanda-
flugvélin Hrímfaxi fer til
Glasgow og Kaupmannahafn
ar kl. 8 í dag. Væntanleg aft-
ur til Reykjavíkur kl. 22.40 í
kvöld. Flugvélin fer til Glas
gow og Kaupmannahafnar kl.
8 í fyrramálið. Millilandaflug
vélin Gullfaxi fer til Oslóar,
Kaupmannahafnar og Ham-
borgar kl. 10. Innanlandsflug:
í dag er áæt/að að fljúga tit
Akureyrar (2 ferðir), Egils-
staða, Fagurhólsmýrar, Flat-
eyrar, Hólmavíkur, vHorna-
fjarðar, ísafjarðar, Kirkju-
bæjarklausturs, Vestmanna-
eyja (2 ferðir) og Þingeyrar.
Á morgun er áætlað að fljúga
til Akureyrar (2 ferðir),
Blönduóss, Egilsstaða, Húsa-
víkur, ísafjarðar, Sauðár-
króks, Skógasands og Vest-
mannaeyja (2 íerðir).
r
Loftleiðir.
Hekla er væntanleg frá
London og Glasgow kl. 19 í
dag. Fer til New York kl.
20.30. Leiguvélin er væntan-
leg frá Hamborg, Kaupmanna
höfn og Gautaborg kl. 21 í
dag. Fer til New York kl.
22.30. Edda er væntanleg frá
New York kl. 10.15 í fyrra-
málið. Fer til Amsterdam og
Luxemborgar kl. 11.45.
Sklplns
i
Skipadeild SÍS.
Hvassafell er væníanlegt
til Reykjavíkur á rnorgun frá
Stettin. Arnarfell fór 24. þ.
m. frá Raufarhöfn áleiðis til
Finnlands, Leningrad, Riga,
Ventspils, Rostock og Kaup-
mannahafnar. Jökulfell er í
New York. Fer þaðan vænt-
anlega í dag áleiðis til Is-
lands. Dísarfell er á Húsavík.
Litlafell kom til Reykjavíkur
í nótt að vestan. Helgafell los
ar kol á Húsavík. Hamrafell
fór 25. þ. m. frá Reykjavík
áleiðis til Baj;Um-
Ríkisskip.
Hekla fer frá Gautaborg í
kvöld áleiðis til Kristiansand.
Esja fór frá Reylcjavík í gær
austur um land í hringferð.
Herðubreið er væntanleg til
Raufarhafnar í kvöld á aust-
urleið. Skjaldbreið fer frá
Reykjavík í dag vestur uni
land til Akureyrar. Þyrill er
á leið frá Austfjörðum til
Hjalteyrar.
Eimskip.
Dettifoss kom til Lenin-
grad 26/8, fer þaðan til Hels-
ingfors, ‘aftur til Leningrad
og Reykjavíkur. Fjallfoss fer
frá Hull í dag til Reykjavík-
ur. Goðafoss kom til Akureyr
ar í gærmorgun, fer þaðan til
Ólafsfjarðar, Húsavíkur,
Hofsóss, Skagastrandar, ísa-
fjarðar, Flateyrar og Faxa-
flóahafna. Gullfoss kom til
Reykjavíkur í gær frá Leith
og Kaupmannahöfn. Lagar-
foss kom til Riga 26/8, fer_
þaðan til. Hamborgar. Reykja
foss kom til Rvíkur_25/8 frá
New York. Selfoss kom til
Riga 25/8, fer þaðan til Vent
spils, Gdynia, Rostock og
Gautaborgar. Tröllafoss fór
frá Rotterdam í gær til Ham-
borgar. Tungufoss kom til
Reykjavíkur 25/8 frá Ham-
borg.
Alþýðublaðið — 28. ágúst 1959