Alþýðublaðið - 10.09.1959, Side 2
V e 3 r i 3 :
S-A kaldi, jigning.
☆
LISTASAFN Einars Jónsson-
ar, Hnitbjörgum, er opiö á
sunnudögum og miðviku-
dögum frá kl. 1,30—3,30.
★
ÚTLÁNATÍMI Tæknibóka-
safns IMSÍ (Ný.ia Iðnskól-
anum): kl. 4,30—7 e. h„
briðjudaga, fimmtudaga,
föstudaga og laugardaga. -
Kl. 4,30—9 e. h. mámxdaga
og miðvikudaga. — Les-
stofa safnsins er opin á
vanalegum skrifstofutímja
og útlánstíma.
☆
MINJASAFN bæjarins. Safn
deildin Skúlatúni 2 er opin
daglega kl. 2—4. Árbæjar-
safn opið daglega frá kl. 2
—6. Báðar safndeildir eru
lokaðar á mánudögum.
☆
ÚTVARPIÐ í DAG: — 12.50 §
—14.00 „Á frívaktinni“ —
sjómannabáttur. 19.00 Tón
leikar. 20.00 Fréttir. 20.30
„Á stjórnpallinum“, kafli
úr ævisögu Eiríks Kristó-
ferssonar, skipherra. Skrá-
sett hefur Ingólfur Krist.j-
, ánsson (Gils Guðmundsson
lithöfundur les). 21.00 ís-
lenzk tónlist; Tónverk eít-
ir iSigurð Þórðarson. 21.30
Útvarpssagan: Garman og
Worse eftir Karen Blixen,
: II. lestur (Arnheiður Sig-
urðardóttir). 22.30 Sinfón-
ískir tónleikar. 23.10 Ðag-
skrárlok.
★
GJAFIR OG ÁHEIT — til
Blindrafélagsins: — Til
minningar um Einar Ey.i-
ólfsson frá Stokkseyri, hafa
igefið, Guðrún Pálsdóttir,
kr. 500.00, Salvör Pálsdptt-
ir kr. 500.00 og 'Magnús
Pálsson kr. 500.00 — I til-
efni 95 ára hjónaafmælis
. kr 500.00 frá ónefndum.
Frá SS áheit kr. 1.000.00.
Frá aldraðri konu kr. 200.
00. Frá Guðríði Sigurðar-
dóttur Efri-Vík Landbroti,
kr. 2,000.00 — Með beztu
bökkum. — Stjórn Blindra
félagsins.
★
BLINDRAFÉLAGIÐ vill hér
með sérstaklega færa Unn
steini Sigurðssyni. Vestm,-
eyjum hjartanlegar bakkir
tfyrir Ihina rausnarlegu
■ gjöf hans til félagsins. —
Stjórn Blindrafélagsins.
★
SJÖTÍU ÁRA er í dag Guð-
laug Sigurðardóttir frá
Hrygg í Hraungerðishreppi
— Hún dvelst í dag á hejm
ili sonar síns, Sigurðar Ói-
afssonar. að Austurvegi 53,
Selfossi.
★
KVENFÉLAG Óháða safnað
arins. Fundur í Kirkjubæ
annað kvöld kl. 8,30. Þýð-
ingarmikil félagsmál. —
Sameiginleg kaffidr.ykkja.
Engei Lund
f GÆRKVELDI fór fram í
Tívolí úrslitakeppnin í fegurð-
arsamkeppninni um titilinn
„Ungfrú Reykjavík“. Sú spm
sigraði heitir Éster Garðars-
dótt'ir, til heimilis að Grenimel
25. Er hún því „Ungfrú Reykja
vík 1959“.
Eramhald af 1. siðu.
lokið. Benkö vann í 55 leikjum.
í dag tefla þessir saman;
hvítt hafa þeir, sem fyrr eru
taldir: Petrosjan-S'mysloff, Ke-
res—Tal, Benkö—Fischer og
Gligoric—Friðrik.
Freysteinn.
Dansmey verð-
ur nunna
LONDON, 9. sept. (Reuter). —
Nektardansmær í London hef-
ur tilkynnt, að hún ætli sér að
gerast nunna. Frétt þessi hef-
ur vakið mikla athygli, en dans
mey þessi er víðþekkt bæði sem
dansmær, en einnig fyrir það,
að hún sat fyrir hjá ítalska
listamanninum Pietro Anni-
goni í stað Margrétar prinsessu
en prinsessan gat aldrei verið
kyrr.
Til vandræða horfði með mál
un myndarinnar af Margréti,
þar til kom í Ijós, að þessi dans-
mær hafði nákvæmlega sömu
líkamsmál og prinsessan.
Dansmeyjan sagði í dag í
sambandi við þessa ákvörðun
sína: „Ég veit að það verður
erfitt að hverfa frá „ljósköst-
urunum". En ég er viss um að
ég hef sanna köllun. Nú hef ég
verið fyrirsæta, dansað og sýnt
mig nakta. Nú vil ég gera eitt-
hvað, sem máli skiptir11.
KOMIN er út á vegum Iðn-
aðarmálastofnunar íslands ný
bókaskrá yfir allar bækur í
tæknibókasafni Iðnaðarmála-
stofnunar íslands.
Ester er 24 ára gömul. Hún
vinnur í snyrtivöruverzluninni
Hygea í Reykjavíkurapóteki.
Verðlaunin sem hún fær, er 10
daga fer'ð til Mallorca. Foreldr
ar hennar eru Garðar Kristjáns
son, útgerðarmaður, og Guð-
björg Guðmundsdóttir
Önnur var Heiða Guðjór.s-
dóttir, til heimilis að Stórholti
14. Hún er 23 ára gömul. Hún
vinnur í vefnaðarvörudeild SÍS
í Austurstræti. Foreldrar henn-
ar eru Guðjón Guðnason, toll-
vörður, og Klara Eggertsdóttir.
Verðlaun hennar eru ferð til
London eða Kaupmannahafn-
ar, eftir eigin vali.
Sú þriðja í röðinni er Sigríð-
ur Clausen, til heimilis að
Snekkjuvogi 15. Sigríður er að
eins 17 ára gömul. Hún vinnur
í Drengjafatastofunni að Óðins
götu 14 A, sem móðir hennar
er eigandi að. Foreldrár hennar
eru Axel Clausen, verzlunar-
maður og Ólöf Jónsdóttir, verzl
unarkona. Sigríður hlýtur 1000
króna peningaverðlaun.
ENGEL LUND, hin ágæta
þjóðlagasöngkona, hélt í gær-
kvöldi söngskemmtun á vegumi
Tónlistarfélagsins í Austurbæj-
arbíói. Á efnisskránni voru þjóð
lög frá níu löndum, hvert öðru
skemmtilegra og athyglisverð-
ara og öll sungin með þeirri
snilldar túlkun, sem menn eiga
að venjast hjá þessari söng-
konu.
Við fáum því miður of sjald-
an að heyra í Engel Lund og
kynnast þeim aragrúa af þjóð-
lögum frá ýmsum löndum, senai
hún- hefur r.afnað, en því meiri
verður kannski ánæjjan, þegar
hún loksins kemur og flytur
okkur lögin sín, sungin með inn
lifun, mímik og framburði, sem
sjaldgæf eru, að ekki sé minnzt
á „huggulegt rabbið11 inn á
milli urn efni kvæðanna.
Að síðustu vil ég þakka kær
lega fyrir skemmtunina og
hvetja menn til að sitja ekki
af sér þetta tækifæri tq að
hlusta á listræna túlkun þjóð-
laga víðsvegar að úr heiminum.
Dr. Páll ísólfsson aðstoðaði
á píanóið með ágætum og af
mikilli smekkvísi.
G.G
MIKLAR annir voru hjá
Flugfélagi íslands í gær við
flutning farþega og varnings
milli Vestmannaeyja og „meg-
inlandsins11. Hafði leiðin ekki
verið flugfær í 10 daga eða frá
29. ágúst, nema hvað þrjár
ferðir voru farnar um síðustu
helgi.
Loks varð flugfært í gær,
eins og fyrr segir, og fór Flug-
félagið alls sjö ferðir. Fluttir
voru- samtals 230 farþegar fram
og aftur og munu margir hafa
verið fegnir að komast leiðar
sinnar. Meðan flugsamgöngur
lágu niðri fóru að sjálfsögðu
Sextfu og fimm ára í dag
KNÚTUR KRISTINS
margir á milli með mjólkur-
bátnum, en farþegarými hans
er þó mjög takmarkað. Sýnir
þetta dæmi um hinar stopulu
flugsamgöngur til Eyja veðura
vegna glöggt, hve brýnt hags-
munamál Ej'-jaskeggja kemst f
höfn við komu Eyjabátsins Her
jólfs, sem verið er að ljúka
smíði á. j:
i
ÓFÆRT TIL GRÆNLANDS.
Þá hefur Flugfélag íslanda
orðið að fresta flugi til Græn-
lands í tvo daga vegna lélegra
veðurskilyrða þar. Bíða nú una
60 farþegar flugfars til Meist-
aravíkur og Narsaksúak, auk
þess sem einhverjir bíða á þeim
stöðum.
Callas skilnr en
I árslok ml
voru 513.474
bindiíeign
bókasafnanna
Á ÁRINU voru 26 bæjar- og
héraðsbókasöfn orðin starfhæf,
en aðeins 17 árið 1956. Ö31 bæj-
arbókasöfnin lánuðu út bækur
nema söfnin í Keflavík, Hafn-
arfirði og Seyðisfirði. Sömu-
leiðis ræktu öll héraðshókasöfn
in útlánastarfsemi nema fjög-
ur. Aðeins 5 bæjarbókasöfn
höfðu opinn lestrarsal á árinu.
Það voru söfnin í Reykjavík,
á ísafirði, Siglufirði, Akur-
eyri og í Vestmannaeyjum.
Bókaeign bæjar- og héraðs-
bókasafna nam í árslok 1957
248.585 bindum, og hefur orðið
mikil aukning á árinu, enda ný
söfn keypt .allmikinn bóka-
stofn. Nemur aukningin 21.101
bindi. Lánuð voru als 278.219
bind-i, og er aukningin 16,7%.
205 sveitarbókasöfn og lestr-
arfélög nutu ríkisframlags - á
árinu, alls kr. 377.575. í árslok
1957 nam bókakostur allra
sveitarbókasafna og lestrarfé-
laga 214.889 bindum, en 205.
694 bindum ári fyrr. Út voru
lánuð í 177 söfnum 113.572
bindi; aukning 13,7%.
Bókaeign heimavistarskóla
og hæla nam ca. 50.000. Sam-
tals voru því í árslok 513.474
bindi í almenningsbókasöfnum
í árslok 1957, eða rúmlega 3
bindi á hvem íbúa landsins.
Guðrún frá Lundi
Framhald af 12. síðu.
ekki hálfdrættingur á' við Guð-
rúnu, talan er 982 á móti 411.
Hvernig farnast þá ljóðskáld-
unum hjá bókaþjóðinni miklu?
Davíð Stefánsson er 43, í röð-
inni í skýrslu Bæjarbókasams
Reykjavíkur, Tómas kemst ekki
á skrá. í skýrslunni um söfnin
utan Reykjavíkur er Davíð
hinsvegar 26.
Konurnar standa sig með á-
gætum í vinsældakeppninni. —
Af 17 vinsælustu höfundunum
hjá Bæjarbókasafni Rvíkur
1957 eru fimm konur (Guðrún
frá Lundi, Ragnheiður Jóns-
dóttir, Elinborg Lárusdóttir,
Þórunn Elfa og Jensína Jens-
dóttir).
Sörnu konur skipa fimm af
fimmtán efstu sætum útiána-
lista bæjarbókasafnanna utan
höfuðstaðarins.
'í almenningsbókasöfnum á
öllu landinu er Guðrún frá
Lundi efst (3817 bindi), Guð-
mundur Hagalín annar (2882)
og H.K.L. þriðji (2542).
Davíð Stefánsson er tuttug-
asti. . t '
Framhald af 1. síðu.
aður við laun verkamanna á
árinu á undan, þ. e. frá hausti
til hausts. Nú telja bændur sig
eiga kröfu á 'hækkunum vegna
launahækkana hjá verkamönn-
um, sém urðu áður en lögin um
niðurfærslu verðlags og launa
tóku gildi. Hækkun þessi nem-
ur samkvæmt útreikningi Hag-
stofunnar 3,18%, sem fyrr
segir.
héraðstœknir
SEXTÍU OG FIM'M ÁRA er.
í dag Knútur Kristinsson héraðs
læknir í Flatey á Breiðafirði.
Knútur er fæddur að Söndum
í Dýrafirði 10. sept. 1894, son-
ur hins merka kennimanns, —
Kristins Daníelssonar, og konu
hans, Idu Halldórsdóttur, yfir-
kennara Friðrikssonar. Ætt
hans er óþarft að rekja nánar.
Hinar styr-ku stofnar, sem að
honum standa, eru landskunnir.
Knútur ólst upp í foreidrahús-
um ogð naut hollrar leiðsögu
hins merka föður. Hann varð
stúdent 1914, iauk ernbættis-
prófi í læknisfræði 1922, stund-
aði framhaldsnám í Danmörku.
Hann var skipaður héráðslækn-
ir í Höfn í Hornafirði 1931 og
dvaldist þar í 12 ár. Síðar var
hann læknir að Reykhólum,
svo í Laugarási í Biskupstung-
um og nú síðast að Flatey á
Breiðafirði.
1932 kvæntist Knutur Huidu
Þórhallsdóttur Daníelssonar
kaupmanns í Höfn í Hornafirði,
hinni mestu dugnaðar og ágæt-
iskonu. Þau hjón eiga eina kjör
dóttur, gifta Ragnari Bjarna-
syni hér í bæ. Auk þess hafa
þau alið upp tvö fósturbörn. —
Heimili þeirra læknishjóna er
alþekkt fyrir einstaka gestrisni
og glæsibrag, og kemur þar
gleggst fram stjórnsem húsmóð
urinnar og ljúfmennska og vel-
vild heimilisföðurins.
Knútur er trúr málsvari jafn
aðarstefnunnar og traustur Al-
þýðuflokksmaður. Hann hefur
nokkrum sinnum verið í fram-
boði fyrir flokkinn. Vinir Knúts
og konu hans, en þeir eru marg-
ir, senda honum hughéilar árn-
aðaróskir í tilefni þessa merkis-
dags, sem marka engin tíma-
mót í lífi hans, því að Knútur
Kristinsson er og vevður ungur
og framsækinn á meðan heiis-
an leyfir. Vinur.
í sáll vtS Scala
MÍLANÓ, 9. sept. (Reuter). —i
Tilkynnt hefur verið, að María
Callas muní nu skilia við mann
sinn. Endanlega hefur þó ekki
verið gengið frá skilnaðinum
cnn.
María Cailas dvaldi í dag f
lúxusíbúð sinni í Míianó, neit-*
aði að tala við blaðamenn og
afþakkaði boð um forlíkun
í máli þeirra hjóna.
Skipakóngurinn Onassis, sem
sagður var eiga sök á uppi-
standinu, flaug í gær frá Míl-
anó til Feneyja, þar sena
skemmtisnekkja hans liggur og
siglir áleiðis til Nice með frú
sinni.
Deilan milli frú Callas og Lá
Scala óperunnar hefur aftur á
móti fallið niður og búizt er
við að hún hefji þar aftur söng
í janúar n. k., en deilan hefuT
staðið yfir í ár og söngkonau
sagði skilið við allt þar, þegar
missættin upphófust. j
2 10. sept. 1959 — Alþýðublaðið