Alþýðublaðið - 10.09.1959, Side 4
Útgefandi: Alþýðuflokkurinn. — Framkvæmdastjóri: Ingólfur Kristjánsson.
— Ritstjórar: Benedikt Gröndal, Gísli J. Ástþórsson og Helgi Sæmundsson
<áb.). — Fulltrúi ritstjómar: Sigvaldi Hjálmarsson. — Fréttastjóri: Björg-
vin Guðmundsson. — Símar: 14 900 — 14 901 — 14 902 — 14 903. Auglýs-
ingasími 14 906. — Aðsetur: Alþýðuhúsið. — Prentsmiðja Alþýðublaðsins,
Hverfisgata 8—10.
A ustfjarðasíldin
SÍLDARVERTÍÐINNI norðan lands og
austan er lokið að þessu sinni. Aflinn hefur orðið
það mikill, að íslendingar hljóta framvegis sem
hingað til að binda vonir við síldveiðarnar, þó að
undanfarin sumur hafi einkennzt af veiðileysu.
Síldin hefur löngum þótt duttlungafyllsti fiskur-
inn í hafinu umhverfi's ísland. Hún lætur ekki sjá
sig langa hríð, en kemur svo allt í einu fljótt og
óvænt eins og happdrættisvinningur. En vísindi
nútímans ættu að gera fiskifræðingum okkar
mögulegt að fylgjast betur með háttum hennar
og athæfi hér eftir en hingað til. Og þá er komið
að þeirri nauðsyn að hagnýta aflann sem bezt. Á
það verðum við íslendingar að leggja ríka á-
herzlu.
Nú eins og stundum áður lauk síldarvertíð-
inni úti fyrir Austfjörðum, og var þar um mik-
inn og góðan afla að ræða. Hins vegar skortir
mjög á, að aðstæður þar til hagnýtingar aflans
séu viðunanlegar. Þess vegna er í senn tíma-
bært og eðlilegt, að Austfirðingar hyggi á um-
bætur í þessu efni. Virðist sjálfsagt að reisa nýja
síldarverksmiðju sunnan 'Gerpis og hæta að-
stæður til síldarsöltunar víða um Austfirði.
Auðvitað kostar þetta peninga, en verksmiðju-
skorturinn kostar þó mun meira. Og hér er ekki
aðeins um málefni Austfirðinga að ræða, þó að
áhugi þeirra sé skiljanlega mestur. Þetta verk
þarf þjóðin öll að vinna. Árangurinn kemur svo
beint og óbeint í hlut allra landsmanna.
Aflaleysið á síldarvertíðunum undanfarin ár
hefur valdið því, að margir voru orðnir vantrú-
aðir á framtíð þessa atvinnuvegar, sem í gamla
daga skipti okkur svo miklu. Vertíðin í sumar
hefur hins vegar leitt í ljós, að síldarinnar er enn
von, og hún er „silfur hafsins,“ þegar aflinn berst
á land dag eftir dag í hrotunum. Þess vegna ríð-
ur á því, að íslendingar séu sem bezt undir það
búnir að taka við þessum verðmætum og hag-
nýta þau sem bezt. Sú saga má ekki endurtaka
sig, að „silfur hafsins“ komi ekki að gagni úti
fyrir Austfjörðum. Austfirðingar munu vafalaust
halda máli sínu myndarlega til streitu, og þeir
eiga að ganga að fulltingi annarra landsmanna vísu.
Sundhöll Keflavíkur
Vill ráða sundkennara frá 1. október n.k.
Umsóknir um starfið, sendist skrifstofu
minni fyrir 20. sept. n.k.
Bæjarstjórinn í Keflavík.
fyrirliggjandi.
MAR5 TRADING (OMPANY.
Klapparstíg 20. — Sími 1-73-73-
KOLI hefur aukizt veru-
lega fyrir Norðurlandi undan-
farin ár og telja menn það
árangur af útfærslu fiskveiði-
markanna árið 1952. Nú er
svo komið, að margir leggja
stund á kolaveiðar jafnhliða
línuveiðinni og leggja þá
kolanet meðfram ströndum,
að því er Þorsteinn Hjálm-
arsson, oddviti á Hofsósi tjáði
blaðinu, er hann leit inn á
ritstjómarskrifstofuna í fyrra
dag. Hafa menn á Hofsósi
haft töluvert upp úr kolaveið-
inni en kolinn er frystur bæði
heill og flakaður til útflutn-
ings. Eru nokkrar raddir uppi
um að snurvoðabátum yrði
leyfð kolaveiðin, en varlega
telja menn að þurfi að fara í
slíkar veiðar fyrst um sinn,
en víst er um það, að mikið
er orðið af kola meðfram
ströndum norðanlands.
ÚTGERÐ ÞILFARS-
BÁTA EYKST.
Frá Hofsósi eru gerðar út
nálægt tíu trillur og tveir
litlir þilfarsbátar, 17 og 22
tonn, og hefur afli þeirra ver-
ið allsæmilegur, enda gæftir
góðar. Gera menn sér vonir
um að útgerð lítilla þilfars-
báta aukizt verulega á næst-
unni og virðist margt benda
til þess að svo verði. Eitt
frystihús er í þorpinu í eigu
kaupfélagsins og vinna í því
20—30 manns, aðallega kven-
fólk.
STEINKER f SMÍÐUM.
„Við erum á Skagaströnd
að láta steypa 10x10 metra
steinker, sem ætlunin er að
setja niður næsta sumar og
lengja með því bryggjuna um
15—17 metra“. Verður að
þessari lengingu mikil bót.
Síðast þegar bryggjan var
lengd átti að lengja hana um
60 metra, en svo illa tókst þá
til, meðan á verkinu stóð, að
15 metrar brotnuðu framan
af járnþili, sem rammað
hafði verið niður, svo það
skemmdist og varð ekki af
frekari lengingu í það skipt-
ið, en mikla vinnu kostaði að
bjarga því, sem bjargað varð.
Með lengingu bryggjunnar
fæst viðlegupláss fyrir stærri
skip og möguleikar opnast á
því að gera bátakví innan við
bryggjuna. ,
HAFIN BYGGING
FÉLAGSHEIMILIS.
Hafin er bygging félags-
heimilis á Hofsósi og er ætl-
unin að fullgera grunninn í
sumar. Húsl5 verður 3000 rúm
metrar að stærð, myndarlegt
og gott hús. Ráðgert er að
taka í notkun kjallara, sem
steyptur verður í sumar, svo
fljótt sem auðið er, því hrein
vandræði eru með samkomu-
hús í þorpinu, því þar er ekk-
ert húsrými til skemmtana né
félagslífs. Félagsheimilið verð
ur því til að bæta úr brýnni
börf.
Góð heyskapartíð hefur ver-
ið í sveitinni í sumar og gras-
spretta ágæt, en margir íbú-
ar á Hofsósi hafa nokkrar
kindur og jafnvel kýr, þótt
þeim fari óðum fækkandi.
IHHmUMHWHHHVMmHHHMMIHmHMMUUIMMHW
MMMMMUHMMHMMHMMHHMMHMMMIHHMIUMmW
H a n n es
á h o r n i n u
ýý Fáfarið í Heiðmörk á
þessu sumri.
ýV Slæmur vegur og
hættuleg beygja.
'y? Jafnrétti í launa-
málum.
'k’ Laun, sem þarf að
bæta.
FÓLK HEFUR EKKI fjölmennt
í Heiðtm.örk í sumar. Astæðuna
vita allir. Það hefuir varla kom-
ið sá dagur, að hægt væri að
hreiðra um sig í laut. Á sunnu-
daginn var har hins vegar mjög
f jölmennt og hef ég varla séð
þar fleiri í einu Fólk vav að j
leita berja. Þar varr fremur lítið j
af berjum og veit ég ekki hvort
bað stafar yfirleitt af berjaleysi
á þessu sumri eða af því að
Heiðmörk sé ein snauð af berj-
um.
ÞAB ER EKKI GOTT að aka
um Heiðmörk. Það er lítið hugs
að um að laga vegin og afleggj-
arana og er þó ekki vanþörf á
því. Hár hr.yggur er kominn upp
úr veginum og ^u menn Því í
erfiðleikum með að forða litl-
um bílum frá skemmdum. Það
er eins dags verk .fyrir veghefil
að fara yfir veginn. Þá er nauð-
synlegt að taka af stórhættu-
lega beygju Jaðarsmegin við
mörkina. Hún hefur ekki vald-
ið slysi enn, en þarna er slysa-
hætta.
EF TIL VILL segja menn, að
óþarfi sé héðan -af á þessu
sumri að laga veginn og taka
beygjuna af, og það getur ver-
ið. því að gera má ráð fyrir, að
fólk fjölmenni ekki í mörkina
héðan af. En þetta er þá til um-
hugsunar fyrir þá. sem þessu
ráða, til næsta vors.
KENNARI utan af landi skrif
ar: „Ég er jafnaðarmaður og vil
að allt vinnandi fólk njóti rétt-
lætis í kaupgjaldsmálum, hvort
sem bað klæðist buxum eða
pilsum Álit mitt er að dálkar
þínir í Albýðublaðinu hafi kom
ið mörgu góðu til leiðar. Og vil
ég því leyfa mér að biðja þig
góðfúslega að koma eftirfarandi
línum á framfæri í dálkum þín-
um við fyrsta tækifæri.
UM NÆSTU mánaðamót fara
heimavistarskólarnir í sveitum
landsins að hefja starf sitt. Und
anfarin ár hefur gengið allmis-
jafnlega að fá ráðskonur að
barnaskólunum. Orsakirnar
munu vera þær, að kaup ráðs-
kvennanna er svo lágt, saman-
borið við ábyrgð þá og erfiði,
sem starfinu fylgir. að atvinn-
an bykir ekki eftirsókparverð.
Síðastliðinn vetur frá áramót-
um. var ráðskonukaupið fyrir
að hafa milli 20 og 30 manns
í fæði kr. 3052,20 á mánuði.
Vinnutími ráðskonunnar mun
yfirleitt vera frá kl. 8 að
morgni til kl. 10 að kvöldi. —
Hvexnicf mundu ungar stúlkur
í Reykjavík kunna við svona
kjör? Efast ég um að þær
mundu una vetrarlangt í vist-
■ MENNINGAR- og vísinda-
stofnún Sameinuðu þjóðanna
(UNESCO) gefur öðru hverju
út yfirlit yfir menntunar-
ástandið í heiminum. Nefnist
það „Basic Facts and Figures“
og tekur síðasta heftið til árs-
ins 1958.
í yfirlitinu segir, að milli
43 og 45 hundraðshlutar af í-
búum heimsins séu enn ólæsir
inni Ennfremur er ráðskonan
jafnbundin flesta sunnudaga.
MÉR er ekki kunnugt, að enn
sé nokkur fastur grundvöllur
urn kaupgjald til þessara stétt-
ar. Enda eru ráðskonurnar
dreifðar um allt land og hafa
því ekki haft tækifæri til að
stofna sitt eigið stéttafélag. —
Einhverjar uppbætur fengu
ráðskonurnar á s. 1. ári. Enn-
fremur skal þess getið, að s. 1.
skólaár fengu ráðskonurnax*
ekki greitt kaup sitt fyrr en
síðustu daga desembermánaðr
ar af þeim ástæðum að þaar
voru ekki komnar á gjaldskrá
til ríkisféhirðis fyrr. En á starf-
inu munu flestar hafa byr (að
fyrstu dagana í október.
AÐ ENDINGU vil ég benda
á. að ráðskona við heimavistar-
skóla þar sem börn dvelja á
aldrinum 8—13 ára verður að
sinna fleiru en matreiðslunni.
Hún er húsmóðirin, sem vinri-
ur að því að gjöra dvöl barn-
anna í skólanum sem ánægju-
legasta og í vissum tilfellum
getur komið fyrir að hún þurfi
að sinna móðui'störfunum. —
Góð xáðskona, sem sýnir börn-
unum umhyggjusemi, má ekki
bera minna úr bítum á mánuði
en kennarar. Finnst mér að
kaup ráðskonunnar megi ails
ekki vera minnan en kr. 4000.00
á mánuði. þann tíma sem hún
starfar við skólann. Kr. 32.000.
00 fyrir 8 mánaða starf.
-Hannes á horninu.
og óskrifandi. Afríka hefur
hæstu hlutfallstöluna, en þar
munu 80—85 hundraðshlutar
íbúanna vera ólæsir og óskrif-
andi. í Asíu er hundraðstalan
milli 60 og 65, en í Evrópu
milli 7 og 9.
f BANDARÍKJUNUM ERU
BLÖÐIN ÞYKKARI!
Tölurnar sýna, að Banda-
Framhald á 10. síðu,
4 10. sept. 1959 — Alþýðublaðið