Alþýðublaðið - 06.10.1959, Page 9
( lfc»röttlr Q
Knattspyrnan um helgina:
Á SUNNUDAGINN var fóru
fram þrír kappleikir. Tveir í
Haustmótinu og úrslita-
leikur í íslandsmóti II. flokks.
Fyrri leikur Haust
mótsins var á milli Þróttar og
Vals; en sá síðari milli Víkings
og Fram. Úrslitaleikurinn í II.
flokki var svo milli KR og Ak-
urnesinga.
Veður var mjög gott og á-
horfendur allmargir.
VALUR — ÞRÓTTÚR 2:1,
Leiknum lauk með -naumum
sigri Vals að því er til mark-
anna tekur. En þá sögu hafa
fleiri félög að segja eftir viður-
eign sína við Þrótt í mótinu,
sem yfirleitt hefur sýnt dugnað
og baráttuvilja. Hins vegar átti
Valur mörg góð tækifæri í báð-
um hálfleikium, sem sannar-
lega hefðu átt að endast til að
skora úr nokkur mörk í viðbót.
Hins vegar eru misnotuð tæki-
færi lítið betri en engin tæki-
færi, nema þá til þess að færa
viðkomandi heim sanninn um
eigið getuleysi.
Þrotti tokst að skora fyrst.
Var það gert úr aukaspyrnu. Há
sending sveif að markinu og
knötturinn datt niður á mark-
teig. Hver varnarleikmaðurinn
virtist ætla hinum að bægja
hættunni frá, en knötturinn
skoppaði síðan inn í markið.
Það var ekki fyrr en á 44. mín-
útu að Val tókst að jafna. Það
var Albert Guðmundsson, sem
jafnaði. Hann fékk knöttinn á
vítateigi, lék svo á hvern varn-
arleikmenn Þróttar af öðrum
og síðast á markvörðinn og
renndi knettinum svo örugglega
í markið. Albert lék miðherja
og lagði hann hvað eftir annað
knöttinn eins vel fyrir fram-
herja sína í framlínunni og frek
ast var unnt að gera bezt, en
ekkert dugði.
Er 16 mínútur voru af síðari
hálfleiknum skoraðj Valur
mark sitt. Það gerði Bergsteinn
Magnússon og næsta óvænt, úr
hinni erfiðustu aðstöðu, með
skáskoti frá hægri. Markvörð-
urinn kom út á móti, en knött-
úrinn skauzt yfir hann. Á 36.
mínútu sækir Þróttur fast á og
Guðmundur Axelsson kemst í
skotfæri og skýtur fast o gvel,
en Björgvin Hermannsson
bjargaði ágætlega. Aftur hafði
Þrótti nær tekizt að jafn stuttu
fyrir leikslok, er Árni Njálsson
hyggst gefa markverði knött-
inn úr þröngri stöðu og af
stuttu færi. En allt slampaðist
þó af á elleftu stunlu. Leiknum
lauk svo eins og fyrr segir með
sigri Vals. Gunnar Aðalsteins-
son dæmdi og hefði að ósekju
mátt vera röggsamari.
FRAM — VÍKINGUR 8:1.
Þarna tókst Fram loks að
nýta tækifærin, sem buðust,
skjóta og skora. Já, og svo um
munaði. Átta sinnum lá knött-
urinn í neti Víkings. Flmm sinn
um í fyrri hálfleiknum og þrisv
ar í þeim síðari. Áður en 15 mín
útur voru af leik höfðu þeir
skorað þrjú fyrstu mörkin. Guð
mundur Óskarsson, sem lék
miðherja, skoraði það fyrsta.
Reýnir Karlsson stuttu síðar
annað og svo Guðmundur aftur
á 15. mínútunni. Síðar í hálf-
leiknum bættu þeir Gretar og
Karl Bergmann, sem nú lék aft
ur á sínum gamla stað sem h.
útherji, sínu markinu hvor við.
í fyrri hálfleiknum komst
mark Fram aldrei í neina hættu
og Geir fékk aðeins einu sinni
að snerta knöttinn eftir send-
ingu frá samherja. Sókn Fram
var nær algjör og mark Víkings
í stöðugri og yfirvofandi hættu,
sem Jóhanni Gíslasyni mark-
verði og Pétri Bjarnasyni mið-
framverði tókst oft að bægja
frá. En þeir voru beztu menn
Víkingsvarnarinnar.
Er fimm mínútur voru af
síðari hálfleik kom sjötta mark
ið. Dagbjartur naut Þar hraða
síns og skaut varnaimönnum
Víkings ref fyrir rass, brunaði
inn fyrir og skoraði. Var nú upp
stytta á markaregninu um 15
mínútna skeið, en þá kom sjö-
unda markið, upp úr snöggum
samleki, og sendingu Karls til
Reynis, sem skaut þegar óverj-
andi. Skömmu síðar bætti svo
Dagbjartur enn einu við og skor
aði þar með áttunda markið.
Þrátt fyrir ofui'eflið og ósigur-
inn máttu Víkingarnir eiga það
að þeir létu engan bilbug á sér
finna, en börðust eins og þeir
gátu. Og á 27. mínútu uppskáru
þeir loks dálítil laun barátfu
sinnar, er þeim tókst að skora
eitt mark, eftir hornspyrnu.
Það var h. innherji þeirra,
Skúli Jóhannsson, sem það
gerði. En hann var leiknasti
maður framlínunnar og sá, sem
mest reyndi að halda uppi sam
leik Þar með nokkrum árangri.
Bergsteinn Pálsson, sem lék út-
vörð, átti oft góð tilþrif og gerði
það, sem hann gat til að byggja
upp sóknina hverju sinni, þó
oftast yrði lítill árangur af.
Fram-liðið lék allt af miklum
hraða og sýndi oft, eins og áður,
ágætan samleik úti á vellinum
að viðbættu því að nú nýttust
skottækifærin eins og útkoman
sýnir, miklu betur en nokkru
sinni fyrr í sumar. Má vera að
tiltölulega opin vörn Víkings
hafi og átt sinn þátt í mark-
sælni Fram að þessu sinni, en
takist þeim á annað borð að sigr
ast á vaskleika sínum í skot-
um, sem hingað til hefur verið
þeirra Akkillesarhæll í leik,
getur liðið í heild horft björtum
og sigurstranglegum augum til
framtíðarinnar,
Dómari var Einar Hjartar-
son.
STAÐAN í Haustmóti Mfl.
Ein umferð er eftir.
Lið
1. KR
2. Valur
3. Fram
4. Þróttur
5. Víkingur
L UJ T
3 3 0 0
3 3
4 2
3 0 0
3 0 0
0 0
0 2
3
3
M s
7:1
7:2
11:5
2:6
2:15
UNGVERSKA félagið
Honved í Búdapest setti
heimsmet í 4x1 ensk míla
fyrir helgina. Tíminn var
16:25,2 mín., eða 4/10 úr
sek. betra en gamla metið,
sem áströlsk sveit átti._
Hlaupararnir voru: ______
Kovacs 4:07,4, Szekeres
4:07,6, Ihlaros 4:09,2 og
Roszavölgyi 4:00,9, sem er
frábært afrek algjöudega
keppnislaust. Sennilega
hefur „Rosza“ aldrei verið
í eins góðri æfingu og nú.
Gaman væri a® sjá hann í
keppni við Waern hinn
sænska.
KR íslandsmeisfari í II. fl„ vann í A 30
Þetta eru fimmtarþrautarkapp-
arnir: Björgvin Hólm t. v. kast-
ar spjótinu — en fyrir ofan er
Ólafur Unnsteinsson, sem seíti
unglingamet.
tti glæsileg
í fimmfarþrauf
BJORGVIN HOLM, IR, setti
glæsilegt íslenzkt met í fimmt-
arþraut á laugardaginn. Hann
hlaut alls 3206 stig, en gamla
metið, sem Björgvin og Pétur
Rögnvaldsson áítu saman, var
3090 stig. Ólafur Unnsteinsson,
UMFÖ, setti nýtt unglingamet,
hann hlaut 2550 stig, sem er á-
gætt öfrek.
Einstök afrek Björgvins voru
—- langstökk: 6,97 m., spjótkast:
55,97 m., 200 m.: 23,1 sek.,
kringlukast: 42,28 m. og 1500
m.: 4:46,8 mín. Árangur Björg-
vins í langstökki og kringlu-
kasi er sá bezti, sem hann hefur
náð. Hann var mjög öruggur í
langstökkskeppninni/hin stökk
in tvö voru 6,85 og 6,92 m. Þeg-
ar Björgvin stökk 6,97 m. hitti
hann ekki vei á plankann og
stökkið mældist 7,10 m. fiá tá.
Úrslit urðu þessi:
1. Björgvin Hólm, ÍR, 3206 st.
(íslandsmet)
2. Ólafur Unnsteinsson, UMFÖ
2550 st.
(6,64 — 42,04 — 23,9 — 33,64
— 4:41,8)
(ísl. unglingamet)
3. Unnar Jónsson, UMSK, 2009
Þess má geta, að Norðurlanda
met í fimmtarþraut er 3300 st,
og það á Svíinn Göran Waxgardi
frá 1944. Til marks uir\ afrek:
Björgvins má einnig geta þess,
að á nýafstöðnu Heimsmeistara
móti stúdenta, þegar Rússinn
Kuznetsow setti heimsmet, —<
hefði Björgvin orðið 3. með
þennan árangur.
gær
RIKHARÐUR JONSSON, —
fyrirliði íslenzka landsliðsins í
knattspyrnu tók sér far með
flugvél Loftleiða um hádegis-
bilið í gæir, áleiðis til London,
þar sem hann hyggst æfa og
jafnvel keppa með hinu þekkta
LEIKUR Akurnesinga og KR
var aukaleikur í íslandsmóti II.
flokks. Leikurinn fór fram
vegna kæru Akurnesinga í sam-
bandi við úrslitaleik þessa
móts, sem fram fór í júlímánuði
í sumar. Þá sigruðu KR-ingar
með 3:1. Kæru sína byggðu Ak-
urnesingar á því, að línuverði
vantaði, en Það mun vera
skylda að hafa línuverði á lands
mótum. Málið gekk svo sinn
gang og var leikurinn frá því í
sumar dæmdur ógildur og nýr
leikur látinn fara fram. En
hann var svo ákveðinn á sunnu-
daginn.
Leikurinn fór fram á Háskóla
vellinum, sem íæpast er hæfur
sem æfingavöllur. hvað þá sem
keppnisvöllur. Grjótharður og
hallur. Með áhorfendur stand-
andi á hliðarmörkum og jafnvel
inni á leikvanginum sjálfum,
svo línuvei'ðir geta tæpast unn-
ið starf sitt þannig að vel sé.
Væri sjálfsagt hægt með réttu
að kæra slíka framkvæmd, ekki
síður en þó línuverðina vatni.
Leikurinn fór svo að KR sigr-
aði aftur og nú með þrem rnörk-
um gegn engu. Fyi'sta mark var
sjálfsmark Bar það að með þeim
hætti, þegar í byrjun ieiks, að
einn varnarleikmanna Akurnes
inga kom við knöttinn þegar
markvörðurinn var búiiin að
setja sig í stellingar til að taka á
móti honum, brevtti það stefnu
knattarins svo óverjandi varð
fyrir markvörðinn. Annað
markið gerði Svo v. innherjinn
Halldór Kjartansson, eftir góða
sendingu inn fyrir og fast skot,
sem einnig varð markverði Ak-
urnesinga, sem annars sýndi oft
góð tilþrif, ofviða að verja. —
Fyrri hálfleiknum la.uk þannig
með 2:0 fyrir KR, en þeim síð-
ari 1:0, en þá skoraði Jón Sig-
urðsson innherji.
Þrátt fyrir þessi úrslit sýndi
lið Akurnesinga q£t góð ti’þrif,
einkum úti á vellinum, en
skorti snerpuna uppi við mark-
ið. En slíkt er ekki einsdæmi og
stendur til bóta er stundir líða
Framhald á 2. síðu.
knattspyrnusérfræðingunum
hjá Arsenal lízt á mig.
— Hlakkar þú ekki til að
kynnast ensku knattspyrnunni?
— Ekki er því að neita, jEng-
land hefur lengi verið forystu-
þjóð i knattsgyrrru og þó að aðr
ar þjóðir standi Englendinguim
framar, — eru fáir, sem draga
í efa þekkingu og kunnáttu
enskra knattspyrnumanna. —
Nú var kallað á farþegana, svo
að samtalið gat ekki orðið leng-
ra. Íþróttasíða Alþýðublaðsina
óskai' Ríkharði góðrar ferðar,
og góðs árangurs í landi knatt-
spyrnunnar. — Ríkharður mun.
senda íþróttasíðunni bréf unœ
dvölina ytra við fyrsta tæki-
færi. j
Ríkharður t. v. heilsar fyrirliða
Bandai.'íkj. fyrir leikinn 1955.
félagi Arsenal, ef tækifæri
gefst.
Tíðindamaður íþróttasíðunn-
ar var staddur út á flugvelli —
og spú^ði Ríkharð, hvað iengi
hann ætlaði að dvelja ytra?
— Það er allt óákveðið ennþá
— ég mun koma heim um jól-
in — en kannski fer ég utan aft
ur, en það fer eftir því, hvernig
V-Þýikaland
Pólland 14:10
í handknatlleik
VESTUR-Þjóðverjar signifto
Pólverja í handknattleik fyrir
nokkru með 14:10 (6:6) í Opp-
eln. Á þessum úrslitum sézt, oSi
Pólland er í framför í hancU
knattleik, en í vor töpuðu þeir’
fyrir Þjóðverjum með 11:22. —«
í landsleik kvenna í handknatfr"
leik sigraði A.-Þýzkaland Ausá*
urríki með 10:3 (7:2). j
AlþýðublaðiS
6. okt, 1959