Alþýðublaðið - 18.10.1959, Blaðsíða 4
Gtgefancu. AlþýBuflokkurmn. — Framkvœmdastjorl. cugomir KrlMJinanta.
— Ritstj’órar: Benedikt Gröndal, Gísli J. Ástþórsson og Helgi Sæmnndim
(éb.). — Fulltrúi ritstjómar: Sigvaldi Hjálmarsson. — Fréttastjóri: Björg-
vin Guðmundsson. — Símar: 14 900 — 14 901 — 14 902 — 14 903. Augiýa-
IngaKlml 14 908 Aðsetur: Alþýðuhúsið. — Prentsmiðja AlþýðublaBilu.
Hverfisgata 8—10.
Baráttusœtið í Reykjavík
REYKVÍKINGAR kjósa um aðra helgi tólf
þingmenn í stað átta. Urslit kosninganna í sumar
hefðu orðið þau um skiptingu tólf þingsæta milli
flokkanna, að Sjálfstæðisflokkurinn hefði fengið
sjö, Alþýðubandalagið tvö, Alþýðuflokkurinn tvö
og Framsóknarflokkurinn eitt.
Morgunblaðið vill, að Sjálfstæðisflokkurinn
fái átta þingsæti í höfuðstaðnum, Tíminn þykist
vongóður um, að Framsóknarflokkurinn fái tvö,
og Þjóðviljinn nefnir, að Alþýðubandalagið vilji
gjarna fá þrjú. Úrslit sumarkosninganna sýna hins
vegar og sanna, að Alþýðuflokkurinn hefði fengið
baráttusætið, sem glíman stendur um. Fylgisaukn
ing hans verður áreiðanlega nóg til þess, að hann
haldi því sæti örugglega. Þá verða Gylfi Þ. Gísla-
son og Eggert G. Þorsteinsson kjörnir þingmenn
Reykvíkinga, en Sigurður Ingimundarson uppbót-
arþingmaður.
Annar maður á lista Alþýðuflokksins í
Reykjavík fékk í sumar 2350 atkvæði, áttundi
maður á lista Sjálfstæðisflokksins 2243, annar
maður á lista Framsóknarflokksins 2223 og þriðji
maður á lista Alþýðubandalagsins 2199 atkvæði.
I Hér eru því allir frekari útreikningar óþarfir.
j Alþýðuflokkurinn á að vera öruggur um að fá
S tvo menn kjörna.
Kommúnistar og Framsóknarmenn geta enga
l von gert sér um sameiginlegan meirihluta eftir
1 kosningarnar aðra en þá fráleitu óskhyggju, að
annar hvor flokkur^nn vinni mikinn sigur í Reykja
vík. Tíminn og Þjóðviljinn geta auðvitað ekki kom
* .
% ið sér saman um, hvor flokkurinn eigi að hreppa
hnossið, en tilmælin eru samt á þá lund, að Reyk
í víkingar kjósi yfir sig samstjóm kommúnista og
I Framsóknarmanna, þegar Tíminn biður um tvo
í kjörna Framsóknarmenn í höfuðstaðnum og Þjóð
viljinn um þrjá Alþýðubandalagsmenn. En þau til
mæli bera áreiðanlega ekki árangur. Alþýðubanda
lagið heldur áfram að tapa í þessum kosningum,
í og Framsóknarflokknum helzt engan veginn á at-
ý kvæðum sínum frá í sumar, hvað þá að hann bæti
við sig. Reykvíkingar munu hins vegar fá Alþýðu-
flokknum úrslitavald á alþingi með því að tryggja
A-listanum tvo menn kjörna í kosningunum um
aðra helgi.
KOSNINGASKRIFSTOFA Alþýðuilokksins í R>eykjavík
er í Alþýðuhúsinu, onin kl. 9—7 og 8—10 hvern virkan dag,
símar 15020 og 16724. Alþýðuflokksmenn eru beðnir að líta
inn og veita allar þær upplýsingar sem að gagni mega koma.
Gylfi Þ. Gíslason,
menntamálaráðherra.
Fggert G. Þorsteinsson,
múrari, varaforseti A.S.Í.
Sigurður Ingimundarson,
efnafræðingur, form. B.S.R.B.
Katrín Smári,
húsfreyja.
Garðar Jónsson, Ingimundur Erlendsson,
verkstj., form. Sjóm.fél. Rvíkur varaformaður Iðju.
Sverrir Þorbjörnsson,
forstjóri.
Ellert Ág. Magnússon,
prentari, form. H.Í.P.
Jón Hjálmarsson,
verkamaður.
mm
Einkum er áríðandi að láta vita af þeim, sem fjarverandi verða ^
á kjördag, hvort heldur þeir eru úti á landi eða erlendis. —
Kosningasjóðurinn hefur aðsetur sitt á flokksskrifstofunni og
er þar veitt viðtöku framlögum í hann. — utankjörstaðat-
kvæðagreiffsla stendur nú ypfir og eru allir Alþýffuflokksmenn
minntir á að kjósa, sem búast við að vera fjarverandi á kjör-
dag. Þeir sem þurfa á fyrirgreiðslu að halda í þessu samhandi
eru beðnir að hafa tal af stafsmönnum flokksskrifstofunnar.
Kosið er daglega í nýja Fiskifélagshúsinu við Skúlagötu
kl. 10—12, 2—6 og 8—10. Á sunnudögum er opið þar 2—6 og
8—10.
Baldur Eyþórsson,
prentsmiðj ust j óri.
Guðbjörg Brynjólfsdóttir, Kári Ingvarsson,
húsfreyja. húsasmiður, varaformaður
Trésmiðafélags Reykjavíkur.
4 18. okt. 1959. — Alþýðublaðið
f