Alþýðublaðið - 10.11.1959, Síða 3
SIGGA VIGGA SEGSR s
FYRIR fimm vikum voru
börn í Reykjavík að leilc í Her-
skálakampi. Voru þau með
teygjubyssu og léku sér við að
skjóta úr henni.
14 ára piltur átti þarna leið
fram hjá. Mun hann hafa verið
að bíða eftir strætisvagni. Allt
í einu fékk hann stein í vinstra
augað_ Hafði honum verið skot-
ið úr teygjuhyssunni frá krakka
hópnum.
Pilturinn var lagður inn á
sjúkrahús og dvaldist þar í mán
; aðartíma. Hann er nýlega kom
1 inn heim tii sín. Er talið, að
hann muni ekki halda sjóninni
á auganu, nema þá að litlu leyti.
Þessi hörmulegi atburður
sýnir ljóslega, hvílík hætta get-
ur stafað af teygjubyssum, sem
unglingar nota gjarnan til leiks.
Alþýðubliaðið hvetur foreldra
til þess að sjá svo um, að börn
þeirra séu ekki að leik með
þessi hættulegu tæki, enda er
það bannað samkvæmt lögreglu
samþykkt Reykjavíkur.
„Eg skal kyssa þá alla, e£
þeir bjarga Tjörninni okkar.‘{
Nýja Drang tekið m% viðhöfn
f fyrstu viðkomu á Siglufirði
Ráðhúsið
Framhald af 1. siffu.
fyrir barðinu á þeim. Komst
fundarstjóri, Pétur Benedikts-
son, bankastjóri, m. a. svo að
orði, að vafalaust hefði Thor
Thors ætlast til, að Hafmeyj-
an yrði sett í Tjörnina en ekki
á hana.
Flestir þeirra, sem móti
voru ráðhúsi við Tjörnina,
vildu hafa það í Grjótaþorp-
inu. Ýmsir höfðu þó ekki á-
kveðnar hugmyndir um stað.
Tveir ræðumenn töluðu þarna
„frelsaðir“, höfðu áður verið
með ráðhúsi við Tjörnina en
eru nú á móti því (Alfreð Gísla-
son og Jón Axel Pétursson).
Auk áðurtaldra töluðu m. a.
þessir: Auður Auðuns, S'veinn
Ásgeirsson, Gísli Halldórsson
(öll með), Ásgeir Þorsteinsson,
Skúli Norðdahl, Þórhallur Vil-
mundarson, Leifur Asgeirsson
(allir móti).
Fregn til Alþýðublaðsins.
Siglufirði í gær.
NÝI flóabáturinn Drangur kom
bingað í fyrsta sinn s. 1. laug-
ardag. Var tekið á móti honum
með viðhöfn. Baldur Eiríks-
son, forseti bæjarstjórnar,
flutti ræðu, en Steindór Jóns-
son á Akureyri, eigandi Drangs
þakkaði fyrir hönd útgerðar og
áhafnar.
Bæjarstjórn Siglufjarðar
hafði boð inni kl. 4 fyrir skip-
stjóra og áhöfn Drangs o. fl.
Sigurjón Sæmundssón bæjar-
stjóri flutti þar ræðu. Minnt-
ist hann gamla Drangs og dugn-
aðar áhafnar hans og sérstak-
lega GuSbjarts Snæbjörnsson-
ar, sem var skipstjóri á hon-
um.
Áður hafði bæjarstjórn sam-
þykkt einróma, að skora á við-
komandi ráðuneyti að veita
Guðbjarti réttindi til að
stjórna allt að 300 lesta skip-
um, í heiðurs- og virðingar-
skyni fyrir skipstjórn gamla
Drangs, en hann hefur ekki
næg réttindi til að fá tækifæri
til að sigla nýja Drang. — JM.
Fregn til Alþýðublaðsins.
Siglufirði í gær.
SKARÐIÐ lokaðist um fjögur-
leytið aðfaranótt sunnudags,
eins og vænta mátti, enda er
hér NV-harðviðri og bylur. Er
ekki bílfært um götur bæjar-
ins í dag. —- JM.
í GÆR kom Iandskjör-
stjórn saman í Alþingis-
húsinu til þess að úthluta
uppbótarþingsætum. En
þau eru 11 sem kunnugt
er. Alþýðuflokkurinn hlýt
ur 4 uppbótarþingsæti,
Alþýðubandalagið 4 og
Sjálfstæðisflokkur 3. Áð-
ur hefur verið skýrt frá
því, hverjir hljóta þessi
uppbótarþingsæti. Mynd-
in sýnir landskjörstjórn á
fundi sínum í gær ásamt
fulltrúum flokkanna.
Fregn til Alþýðublaðsins.
Húsavík í gær.
HÉRNA gerði vitlaust veður í
gærmorgun og í dag er hér
hvassviðri með fannkomu og
haugabrim. Bærinn hefur verið
rafmagnslaus síðan í gær sök-
um krapastíflu í Laxá.
Er verið að reyna að skipta
rafmagni niður á bæina frá
hjálpar-dieselrafstöð við hrað-
! frystihúsið hér til þess að fólk
; hafi einhverja hlýju í húsun-
í um.
Tvær trillur hafa farið í of-
viðrinu í dag. Önnur slitnaði
upp á legunni, rak upp og brctn
aði í spón, en hin sökk á leg-
unni.
Sjórinn hefur hreinsað allt
lauslegt af bryggjunni og sfeol-
að því upp í fjöru. Má búast
við, að sjórinn gangi mjög hátt
við flóðið í kvöld. Vindur er
hvass norðan og norðaustsn,
sem er versta áttin hér, og
stendur illa á höfnina.
Framhald á 5. síðu.
Fregn til Alþýffublaðsins.
AKUREYRI í gærkvöldi.
f GÆRDAG skall á norðan
stórhríð hér á Akureyri og hef-
ur verið ofsaveður og iðulaus
byl'ri.- síðan. Er ófært um allar
götur bæjarins og alla vegi í ná
grenni bæjarins og sitja bílar
tenptir í sköflum eins og hrá-
viði.
Krapastífla við Laxárvirkjun
ina olli rafmagnstruflunum í
gær og var tekin upp rafmagns-
skömmtun á virkjunarsvæðinu,
en í gærkvöldi fór i'afmagnið
alveg. Síðan situr fólk í myrkri
og kulda eða notast við kerta-
og lampaljós, eins og í gamla
daga.
Símasambandslaust er við
marga bæi í sýslunni.
Um -tvö-leytið í gær lögðu
tveir litlir fólksbílar- af stað
vestur yfir Vaðlaheiði, þrátt
fyrir eindregnar aðvaranir um
að leggja á heiðina. Vestan við
háheiðina varð bílstjóri sá, er á
undan fór, ekki var við hinn,
enda skollin á stórhríð, sem fór
harðnandi. Beið hann átekta
góða stund, en fór síðan gang-
andi til næsta bæjar, Austur-
hlíðar, og skýrði frá tíðindum.
Leiðangur var þegar gerður út
í ieppa, en náði ekki til Austur-
hlíðar fyrx en kl. tvö í nótt. Var
SSgUjarSar*
skarð ófærf
þar numið staðar um sinn. Árla ■ son, Akureyri, og Arnfríður
í morgun lagði flokkur manna Indriðadóttir, Torfalæk í Köldu:
úr Flugbjörgunarsveitinni á Ak kinn, setið heilan sólarhring í
ureyri af stað undir stjórn bílnum. þarna á heiðinni. Var
Tryggva Þorsteinssonar í snjó- þeim orðið allkalt, eins og von
bíl og jeppa. Einnig fór ýta úr var, en ekki mun þeim hafa orð-
Fnjóskadal áleiðis á heiðina. ið meint af volkinu. Er leiðang-
Um þrjú-leytið í dag fann ýtan urinn væntanlegur með stranda
bílinn á Vaðlaheiðinni og nokkr ' glópana til Akureyrar- á hverri
um mínútum síðar kom Flug- stundu. Bíllinn, sem sat fastur á
björgunarsveitin á vettvang. heiðinni, er austur-þýzkur plast
Höfðu þá þau Reynir Frímanns bíll. G.S.
HELLISHEIÐI Iokaðist um
helgina. Krýsuvíkurleiðin hef-
ur einnig verið mjög þungfær
undanfarið en bó tókst að koma
mjólkurbílunum yfir þá leið-
ina. Margir bílar festust á
Hellisheiði og brotnuðu.
Það var siðdegis á laugardag
að Hellisheiði lokaðist. Voru
þá margir bílar á ferð yfir heið
ina. M. a. var þar á ferð stór
mjólkurþíll frá Flóabúinu.
Festist hann algerlega og brotn
aði. Margir smærri bílar fest-
ust einnig en það tókst að draga
þá flesta yfir.
ÞUNGFÆR
KRÝSUVÍKURLEIÐIN.
Aðeins stórum bílum tókst
að komast Krýsuvíkurleiðina.
Varð að veita þeim aðstoð íil
þess að komast yfir. Aðrar leið-
ir í nágrenni Rvíkur voru einn-
ig mjög þungfærar. T. d. var
Hvalfjarðarleiðin mjög erfið
yfirferðar.
KL. 20.30 Daglegt
mál. Kl. 20.35 tJt-
varpssagan. Kl. 21
Minnzt 200 ára af-
mælis skáldsins
Friedrichs vcn
Schiller (erindi,
Ijóðalestur, leik-
þáttur', sönglcg).
Kl. 22.10 Hæsía-
réttarmál. Kl.
22.30 Lög unga
fólksins. Kl. 23.25
Dagskrárlok.
Alþýðuhlaðið — 10. nóv. 1959 3.