Alþýðublaðið - 26.11.1959, Page 1
8£?88á$S8$S$888£í$3£3
x':';::
Verður ekkert til
á flöskurnar?
40. árg. — Fimmtudagur 26. nóvember 1959 — 253. tbl.
Esso-málið:
ALÞÝÐUBLAÐIÐ skýrði
frá því, fyrir nokkru, að Bene
dikt Sigurjónsson, lirl., sem er
lögfræðingur Hauks Hvann-
bergs í Essomálinu, hafi kært
til Hæstaréttar úrskurð rann-
sóknardómaranna, Gunnars
Helgasonar og Guðmundar
Ingva Sigurðssonar, um það, að
Hauki Hvannberg sé óheimilt
að hverfa úr landi, að svo
sjtöddu. Hélt Benedikt því fram,
að Haukiir þyrfti að fara til út
lánda til þess að leita sér lækn
inga.
í gær kvað HæStiréttur upp
dóm sinn. Var úrskurður rann
sóknardómaranna staðfestur.
Fær Haukur Hvannberg því
ekki að fara úr landi. Hér á
eftir fer dómur Hæstaréttar í
málinu „'Valdstjórnin gegn
Hauki Hvannberg“:
„Með kæru 12. nóvember
1959, sem hingað barst 19. s. m.,
hefur varnaraðili samkvæmt
3. tl. 173. gr. laga nr. 27/1951
skotið 11 Hæstaréttar hinum
kærða úrskurði og krafizt þess,
að úrskurðinn verði felldur úr
gildi og honum verði heimiluð
brottför úr landi til lækninga.
Með skírskotun til forsenda
hins kærða úrskurðar ber að
staðfesta hann.
Dómsorð: Hinn kærði úr-
skurður áað vera óraskaður“.
NEW YORK, (NTB—
REUTER). Frú Anthina
Mary Onassis sótti í dag um
skilnað frá manni sínum
Aristótelesi Onassis.
Vatninu hleypt á
eftir 2-3 vikur.
FRAMKVÆMDUM við Efra-
Sog hefur miðað vel áfram und
anfarið. Er nú lokið við að
„fóðra“ göngin og þau því til-
búin að öllu leyti. Eftir er að
steypa í síðasta skarðið í þróna,
að því er Árni Snævarr verk-
fræðingur tjáði blaðinu í gær.
Árni sagði, að líklega yrði
vatninu hlevpt á til reynslu eft
ir 2—3 vikur. Áætlað var að
virkjunin yrði tilbúin um há-
tíðar og sagði Árni, að vonir
stæðu til, að sú áætlun stæðist.
Um 170 menn vinna nú að
framkvæmdunum eystra. Hef-
ur ekki verið ne.nn hörgull á
mönnum undanfarið og því
unnt að vinna að virkjunar-
framkvæmdunum af fullum
krafti.
Blaðið hefur hlerað
Að Jónas Haralz ráðuneytis-
stjóri verði aðaln'æðumað
ur stúdenta 1. desember.
Að benzínsölustöð Skeljungs
h.f. við Miklubraut, sem
reist var í fyrra, verði senn
flutt þaðan. Ástæðan:
Miklabrautin nýja á að
verða þar sem stöðin er!
FYRIR nokkrum dögum síð-
an kom hingað til lands sænsk
bókasending til bóksala eins.
Var hún stöðvuð í Pósthúsinu í
Reykjavík, þar eð Póstmeistari
taldi efni bókanna eða tímarit-
anna brjóía í bág við almennt
velsæmi og um leið í bág við al
þjóðlegar póstamninga. Samn-
ingar þessir munu kveða svo á,
að ekki skuli þær bækur eða
tímarit flutt í pósti, sem eru
siðspillandi á einhvern veg.
Alþýðublaðið átti í gær tal
við Magnús Jochumsson, póst-
meitsara, um þetta mál. Kvaðst
t hann hafa stöðvað þessa send-
ingu, þar sem hann liti svo á
að innihaldið væri siðspillandi.
Hefur hann ritað lagadómara
If'éf um mál þetta og bíður nú
úrskurðar þess.
BLAÐIÐ skýrði frá því í
gær, að maður hefði ruðst inn
í Landsbankann á þriðjudags-
morgun með bægslagangi mikl
um og hótað að lífláta banka-
stjórana. Var maðurinn kom-
inn inn í herbergi Péturs Bene
diktssonar, bankastjóra, þegar
dyravörðurinn, Björn Vigfús-
son, náði honum og tókst að
koma honum út úr bankanum.
Rannsóknarlögreglan tók að
sér málið í gærmorgun. Jón
Halldórsson, rannsóknarlög-
reglumaður, yfirheyrði starfs-
fólkið í bankanum, sem gaf hon
um lýsingu á manninum. Hálf
tíma síðar hafði Jón handteklð
Framhald á 5. síðu.
Reykvíkingar munu
drekka mjólk fyrir um
700,000 krónur á dag. Til
efni myndanna hérna —
sem teknar voru í Mjólk
urstöðinni í gær — er at-
kvæðagreiðsla Stéttar-
sambands bænda (sjá 3.
síðu) um það, hvort bænd
ur eigi að hætta að selja
neytendum mjólk. Verði
það ofan á, mun stúlkan
á efri myndinni hætta að
handleika mjólkurflösk-
urnar, maðurinn á þeirri
neðri hætta að sveifla
mjólkurgrindunum.
iiiiiiiiiiiiiiiiiiiiHiiiiiiiiluiiiiiiiiiiiuiiimiiiiimiuiiiiiiimiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiuiiiiiMiiiiiiiiitmmumiiiiiiiiiiiiiiimiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiitiitiiiiiiiiiiiir
Loítíeiðaflugvél vestur m haf - - ?
SVARIÐ ER
I OPNUNNI
.................................... a|||||H!llllUIIIIIIIIIIIIIUIIIIIIUIIIIIIIIIIIUIHIIIIIIIIIIHIIIIIIIIIIIIIIII[IIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIUIIIIIIIIIIIimill