Alþýðublaðið - 16.12.1959, Blaðsíða 3

Alþýðublaðið - 16.12.1959, Blaðsíða 3
BOLABROGÐ HELGA BEN. löglegum aðgerðum til að koma Ungverjunum út úr húsum sín- um, hvað hann ekki gerði. Ekki tókst blaðinu þó í gærkvöldi að fá staðfest, hvort kæra hafi verið lögð fram. Hins vegar mun aftur hafa verið opnað fyrir Ijós og hita í húsnæði Ungverjanna, og má vera að draga megi af þvi þá ályktun, að batnandi manni sé bezt að lifa. BLAÐIÐ hefur fregnað, að Helgi Benédiktsson útgerðar- niaður í Vestmannaeyjum hafi ekki alls fyrir löngú gripið til leiðinlegra holabragða í því skyni að flæma nókkra Ung- verjá, sem vinna í Eyjum, úr húsnæði, er þeir hafa búið í, emer eign Helga. Leigusamningurinn mun hafa fallið úr gildi fyrir nokkru, en eirjhverra hluta vegna munu Ungverjarnir ekki hafa flutzt úr húsnæðinu. Þá var það sem Helgi Ben. tók til bragðs m. a., að taka bæði ljós og hita af húsnæðinu, sem Ungverjarnir búa í, og gera þeim sitthvað fleira til miska. Eftir þessar aðgerðir mun hafa staðið til að kæra athæfi Helga fyrir bæjarfógeta, enda bar honum skylda til að beita HINN nýi ambassador Bretlands á íslandi, herra Andrew C. Stewart, af- henti í gær forseta íslands trúnaðarbréf sitt við há- tíðlega athöfn á Bessa- stöðum. Viðstaddur at- höfnina var Emil Jónsson ráðherra, sem-fer með ut- anríkismál í fjarveru ut anríkisráðherra. Að . athöfninni lokinni snæddi sendiherrann há- degisverð í boði forseta- hjónanna. HAPPDRÆTTI Alþýðu-! blaðsins um bílana sex (ogj alla hina vinningana) fór! feiknvel af stað í gær. j Það mátti heita að sím-! inn þagnaði ekki hjá happ-j drættisskrifstofunni og stöðj Ug ös var hjá miðasölunni! í afgreiðslu blaðsins. Eins og blaðið sagði frá; í gærmorgun, eru hvorki] meira né minna en sex; Volkswagen bílar í boði —J og að auki fjöldi annarra! vinninga, sem samtals eru; tugþúsunda virði. Hér eru helztu stað-i reyndirnar um HAB,J stærsta happdrættið, sem íslenzkt dagblað hefur efntj til: ! 1) Það eru aðeins 5.0001 miðar gefnir út. J 2) Þó kostar miðinn að-« eins hundrað krónur. 3) Vegna þess hve núm-j erin eru fá, eru vinnings-J möguleikar margfalt meirij en í venjulegum happdrættj um. 4) Alþýðublaðshapp-j drættið nær yfir eins árs! tímabil og það verðurj dregið sex sinnum á næstaj ári. 5) Það er sérstakur „jóla; glaðningur11 (25.000 króna! virði), sem dregið verðurj um á aðfangadag. , ! 6) SÁ SEM Á ÁRSMIÐAj I AFBORGUNARHAPP-! DRÆTTI ALÞYÐU-J BLAÐSINS HEFUR ÞAR; MEÐ TRYGGT SÉR SEX! MÖGULEIKA TIL AÐ; EIGNAST SPÁNYJAN; VOLKSWAGEN. Umboð Alþýðublaðshapp! drættisins eru á eftirtöld-! um stöðum: ; Afgreiðslu Alþýðublaðs-! ins, Skrifstofu Alþýðu-! flokksins, Öndvegi, Drang- ey, Ritföngum á Laugavegi 12 og í Bókabúð Olivers í Hafnárfirði. túns og Laugavegar. Slysið varð um klukkan 2 e. h. í fyrra dag. Þórir brotnaði á báðum handleggjum við fallið, og skrámaðist illilegá í andliti. Hann var þegar fluttur á Slysa varðstofuna, þar sem gert var að meiðslum hans. Þórir Snorrason er til heim- ilis að Landakoti í Fljótshlíð og er innan við tvítugt að aldri. Byggðasafn SUDUR-Borgfirðingar hafa nú eignazt ágætt byggðasafn, sem komið hefur verið fyrir í elzta steinhúsi landsins að Görðum, skammt utan við Akraneskaupstað. Séra Jón M. Guðjónsson, sókn- arprestur á Akranesi, er frumkvöðull þessa merki- lega safns og hefur fórn- -að miklu starfi til að- koma því upp. Ber safnið glögg merki hinnar list- t'ænu handar séra Jóns, sem meðal annars hefur gert teikningar og líkön af bæjum og kirkjum á safnsvæðinu. Nú liefur níu manna nefnd, skipuð af sveitastjórnum sunnan Skarðsheiðar, tekið við stjórn safnsins, en séra Jón mun helga því áfram krafta sína. Safnið var vígt s. 1. sunnudag að við- stöddu fjölmenni. í jólablaðinu og munu verða í blaðinu eftirleiðis. í Kliíbbnum birtast innlendar og erlendar skopsögur af merkisfólki mynd skreyttar af Halldóri Péturs- syni. í Pokahorninu verður veitt Pokaorða hverju sinni, —• þar er Margt skrýtið í kýrhausn um, þar hefur Felix aðsetur sitt og síðast en ekki sízt er efnt til vísnasamkeppni. Verð- laun verða veitt fyrir bezta botninn, sem blaðinu berst. Þátt ur kvenfólksins heitir Sunnu- dagur húsfreyjunnar. í hverju blaði verður hálfsíðu mynda- krossgáta, og loks er Hvutti, nýjasta myndasaga Walt Disn- ey um son Hefðarmærinnar og umrenningsins. Af öðru efni í jólablaðinu má nefna ljóð eftir Hannes Péturs- son, „Jólin eru hátíð kaup- manna", fimm lesendur segja álit sitt á jólum og jólahaldi, Skylmingar og látbragðsleikur, sagt frá heimsókn í Leikskóia Þjóðleikhússins, Iivernig verða menn hundrað ára, fróðleg grein um meðalævi fólks í hin- um ýmsu löndum með skýrínga myndum, Eiðurinn, gömul kín- versk saga, Næturgalinn, fyrsti hluti spennandj framhaldssögu eftir Agatha Christie, Svip- myndir úr lífi Ingrid Bergman, Sagt frá Bernadotteskólanum, þar sem leyfi úr skóla er hegn- ing — og ótal margt fleira. Jólablað Sunnudagsblaðsins er vandað að frágangi og prýtt fleiri og stærri myndum en áð- ur. SUNNUDAGSBLÁÐ Alþýðu- blaðsins kemur út í dag í nýj- um búningi. Fyrstar tölublað er veglegt jólahefti, 52 síður í Al- þýðublaðsbroti, prýtt litprent- aðri kápu. Auk þess fylgir blað- inu litprentað jólasþil, sem er jólagjöf til yngstu lésendanna. Blaðið verður selt í lausasölu í dag, en borið út til fastra á- skrifenda upp úr næstu helgi. Sunnudagsblaðið mun koma út reglulega frá og með næstu áramótum 12 síður að stærð og verður eftir sem áður fylgirit Alþýðublaðsins. Ritstjóri er Gylfi Gröndal. Nokkrir fastir þættic hefjast Blaðið hefur hlerað Að tveir menn frá SIS séu komnir til Eyja *í því skyni að rannsaka fjár- reiður Kaupfélags Vest mannaeyja. Bæjar- gjaldkerinn fyrrver- andi, sem liggur undir ákæru um fjárdrátt, tók nefnilega við stjórn kaupfélagsins, næst á eftir bæjarsjóðnum. HLERAÐ Alþýðublaðið — 16. des. 1959 J

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.