Alþýðublaðið - 16.12.1959, Blaðsíða 11

Alþýðublaðið - 16.12.1959, Blaðsíða 11
Ritstjóri: Örn Eiðsson Golfklúbbur Reykja- víkur 25 ára Saga Golfklúbbs Reykjavík- ur hefst með því að 11 Reyk- víkingar koma saman að Htel Borg 30. nóv. 1934. Verkefni þessara manna er að hefja und- irbúning að stofnun golfklúbbs í Reykjavík. Fundarboðendur voru tveir læknar, þeir Gunnlaugur Ein- arsson og Valtýr Albertsson, sem báðir höfðu kynnst golfí- þróttinni erlendis. Á þessum undirbúningsstofn fundi var samþykkt að stofna golfklúbb í Reykjavík og kos- in þriggja manna nefnd sem átti að sjá um allar nauðsyn- legar framkvæmdir. í þessari nefnd voru: Gunnlaugur Ein- arsson, 'Valtýr Albertsson og Gunnar Guðjónsson. Hinn e'ginlegi stofnfundur var svo haldinn í Tjarnarcafé 14. desember 1934 og höfðu þá bætzt við 46 menn, svo að stofn endur voru 57 að tölu. Samþykkt var að klúbbur- inn skyldi heita Golfklúbbur íslands, (nafni klúbbsins var breýtt árið 1947 í Golfklúbb Reykjavíkur) og sjö manna stjórn kosin. í fyrstu stjórn klúbbsins voru: Gunnlaugur Einarsson, for- maður, Helgi H. Eiríksson, vara formaður, Gunnar Guðjónsson, ritari, Gottfred Bernhöft, gjald keri, Valtýr Albertsson, Eyjólf- ur Jóhannsson, Guðmundur Hííðdal. í hópi stofnenda voru marg- ir þekktir menn. Sveinn Björns son, sem þá var sendiherra, og síðar forseti íslands, sat báða fundina og einnig núverandi forseti, herra Ásgeir Ásgeirs- son. þann tilgang að æfa golf, leik sem aðeins er hægt að æfa á stóru svæði utanhúss, og vöidu þann tíma ársins til að stofna klúbbinn þegar allt var á kafi í snjó og í mesta skammdeginu. j En þeir vissu alveg hvað þeir voru að gera. Þann tíma er leið þar til að jörð yrði auð og grös færu að gróa, notuðu þeir til þess að læra golfsveiflur og fleira leiknum tilheyrandi, fengu þeir sér húsnæði, strengdu þar net milli veggja og æfðu sig í að slá bolta í net þetta. Þegar voraði var svo lagt af stað í leit að svæði undir golf- völl. Eftir allmikla leit og marga leiðangra fundu þeir hentugt tún inn við Sundlaug- ar, svonefnt Austurhlíðarland, það var tekið á leigu og þar út- búinn bráðabirgðavöllur og hann vígður 12/5 1935. Á bess- um 6 holu velli var leikið t l 1. júní 1937. Þá var flutt á annan bráða- birgðavöll, inn í Sogamýri, en ekki fengu þeir að halda þeim velli lengi. í Kylfing segir svo: „... Eftir hálfan mánuð hurfu i öll flögg og merki af vellinum í súldarveðri, en í staðinn j komu 20 kýr. En þar sem þær ; voru á sífelldu iði, og auk þess j fleiri en holur áttu að vera á vellinum, voru sumir kylfing- ar óánægðir með skiptin. Við rannsókn kom í ljós, að lands- drottinn klúbbs'ns hafði landið á leigu fyrir kýr sínar, en ekki til framleigu né golfleika. 'Varð hanri því skelkaður mjög er landeigandi kom og sá hóp manna að leikum, og hvað land ið ætlað öðrum til beitar, en þeim fénaði, er þá hafðlst þar við. Tókst ekki að fá landið leikhæft aftur og varð þar frá ag hverfa“. Stjórn G. R. gerði sér fljót- lega ljóst að hún varð að fá land undir völl, land sem hægt væri að hafa til lengri tíma. Sótti hún því um land til bæj- arstjórnar Rvíkur snemma árs 1936. Fékk klúbburinn land. þar sem núverandi golfvöllur er, voru þar skurðlr gerðir, plægt, herfað og margt fleira og völlurinn tekinn til leika sumarið 1937. Á þessum velli voru 9 holur, en hugmyndin var að þar yrðu seinna bætt við 9 holum til viðbótar. Þessi völlur hefur síðan verið not- aður, að vísu með ýmsum breytingum, tll þessa dags. GOLFSKÁLINN. Á aðalfundi 1937 var sam- bykkt að heimila stjórninni að bvggja Golfskálann eftir teikn- ingu Sigmundar Halldórssonar, húsameistara. Þegar þetta gerð ist s"óð klúbburinn í stórfram- kvæmdum við golfvöllinn. Bygg!ng Golfskálans á þessum tíma va rmikið happ fyrir G. R. og sýnir bezt þann stórhug, sem ríkti í klúbbnum ájfyrstu ár;*m hans. . Fyrir riokkrum árum síðan varð stjórn G. R. lióst að sú hugmynd að gera 18 holu völl á Bústaðahálsi, eins og hugsað var í upnhafi væri ekki fram- kvæmanleg, af ýmsum ástæð- um. fór hún því að vinna að bví að fá larid er gæti verið til frambúðar, 0g þar sem hægt væri að gera fullkominn 18 holu völl, er uppfyllti kröfur þær er gerðar eru til slíkra valla. Voru margar ferðir farnar tjl að skoða nágrenni Revkja- víkur og staði er helzt kæmu til greina, var síðan sótt um land upp við Grafarvog. Hefur klúbburinn nú fengið þarna I landsvæði og er hafinn undir- bún'ngur undir vallargerð. Á næstu árum mun væntanlega koma þarna fullkominn 18 holu völlur, sem fullnægir þeim I kröfum er gerðar eru til slíkra I valla. Var völlurinn teiknaður af sænskum golfvallararkitekt, og hafa þeir er skoðað hafa landjð, látið í ljós það álit að hqrna væri hæ?t að gera fyrsta flokks völl að öllu leyti. KENNARAR. Til að leggja grundvöll að starfi klúbbsins og kunnáttu félagsmanna í golfi fékk stjórn in strax fyrsta veturinn kenn- ara að nafni Walter Arneson, dvaldi hann hér fram á mitt árið 1936. Árið 1938 kom bróð- ir hans Rube Arneson og var hér í tvö ár. Meðan á stríðinu stóð voru miklir erfiðleikar á að fá kennara, þó var stundum hægt að fá kennara sem dvöldu hér í hernum, aðallega eftir að Ameríkumenn komu hingað. Eftir stríðið voru hér ýmsir brezkir kennarar, sumir í tvö ár, ýmist á vegum G. R. eða Golfsambandsins, eða allt fram til ársins 1955, árin 1956 og 57 leiðbeindu ýmsir félagar G. R. Árið 1958 kenndi hér amerísk- ur maður, Gil Gillespie, en ár- ið 1959 tókst ekki að fá neinn kennara, þrátt fyrir tilraunir í þá átt. HEIÐURSFELAGAR. Golfklúbbur Reykjavíkur hefur kjörið eftirfarandi menn heiðursfélaga: Sveinn Björnsson, forseta. Var hann einn af brautryðj- endum og hvatamönnum að stofnun golfklúbbsins. Halldór Hansen. Á sextugs- afmæli hans, en Halldór er vafalaust vinsælasti og iðnasti golfleikari hér á landi. Valtýr Albertsson. Á 20 ára afmæli klúbbsins, fyrir for- göngu að stofnun golfklúbbsins ásamt Gunnl. heitn. Einarssyni. KAPPLEIKIR VIKULEGA. Stjórn G. R. skipar fimm manna kappleiksnefnd, sem Framhald á 14. síðu. GOLFVELLIR. Það voru bjartsýnir menn sem stofnuðu félag sem hafði NÚVERANDI stjórn Golf klúbbs Reykjavíkur. Frá vinstri: Jón Thorlacius, Ólafur Ág. Ólafsson, Helgi H. Eiríksson, for- maður, Jóhann Eyjólfs- son, Guðmundur Hall- dórsson 0g Guðlaugur Guðjónsson. MWWWWWMWWWWmWV 7% skuldabréfaián vegna ) Skagfirðinga, ') Út hafa verið gefin af sýslunefnd Skagafjarðarsýslu og bæjarstiórn Sauðárkróks handhafaskuldabréf fyiir krónur 1.000.000.00 vegna Héraðssjúkrahúss Skagfirð- inga á Sauðárkróki. Skuldabréfin eru géfiri ú&ttþBíárá'og' verða greidd með jöfnum afborgunum samkvæmt árlegum útdraetti á næstu 5 árum 15. júlí ár hvert, í fyrsta sinn 15. júlí 1960. Þau bera 7% ársvexti og eru tryggð með eignumj og tekjum Skagafjarðarsýslu og Sauðárkrókskaupstað ar in solidum. Skuldabréfin eru að fjárhæð kr. 100.00, kr. 200.00, kr. 500.00 og kr. 1000.00, og eru þau til sölu hjá eftirtöldum aðiljum: 1. Á Sauðárkróki: í sýsluskrifstofunni, bæj arskrifstofunni, Sparisjóði Sauðárkróks og Kaupfélagi Skagfirðinga. 2. í hreppum Skagafjarðarsýslu hjá sýslunefndar- mönnum. 3. í Reykjavík, hjá Sigurði Hafstað deildarstjóra, Skólabraut 11 á Seltjarnarnesi, og Pétri Hannes- syni póstafgreiðslumanni, Ásvallagötu 9. 4. Á Akureyri, hjá Albert Sölvasyni forstjóra, Eiða- vallagötu 28, og Eyþóri Tómassyni forstjóra, Brekkugötu 3. 5. í Siglufirði hjá frú Halldóru Jónsdóttur, Hverfis- götu 31. Skagfirðingar og aðrir velunnarar Skagafjarðar! —< Styðjið gott málefni með því að kaupa nú þegar skulda bréf Héraðssjúkrahússins og flýtið með því, að unnt verði að gera rekstrarhæft sjúkrahúsið, sem ætlað er að ljúka á þessum, vetri. Sauðárkróki, 10. des. 1959. F. h. sjúkrahússtjórnar, Jóh. Salberg Guðmundsson. Alþýðublaðið — 16. des. 1958 ££

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.