Alþýðublaðið - 24.12.1959, Síða 3

Alþýðublaðið - 24.12.1959, Síða 3
í DAG fer fram fyrsti dráttur í HAB — happ- drætti Alþýðublaðsins. Þá er dregið um auka- vinningana — jólaglaðn- inginn. Við birtum vinnings- númlerin í fyrsta blaði eftir jól. TEHERAN, 23. des. (NTB— REUTER). Deildir úr orustu- flugvéladeild íranska flughers- ins voru í dag fluttar að landa- mærum fraks til að styrkja þær skriðdrekaherdeildir og stór- skotaliðc, sem fluttar voru þang að fyrr í vikunni. Spenna hefur myndazt á landamærum þess- ara tveggja landa vegna kröfu íraks til fimm kírómetra breiðr ar landsspildu við olíuhöfnina Abadan við Persaflóa. Segir í fréttum frá Bagdad, að sterkur írakskur her hafi verið fluttur til. landamæranna. WASHINGTON, 23. des. — (NTB—AFP). Eisenhower for- seti var setztur við skrifborð sitt í Hvíta húsinu kl. 9 í morg- un, þótt hann hefði ekki komið til borgarinnar fyrr en um mið- nætti sl. nótt úr ferðalagi sínu til 11 landa. Segir Reuter, að for setinn hafi orðið svo hrifinn af ínóttökum þeim, er hann fékk alls staðar, að hann hyggist fara fleiri ferðir eftir nýár. Þetta eru JÓLIN! Sjáið bara jólagleðina, sem skín úr augum barnanna, sem voru — á isíðustu stundu í þokka- bót — að kaupa jóla- tréð! Þarna hafið þið stærstu jólin: í AND- LITUM BARNANNA. (Alþýðublaðsmynd). JOLÁTRES- SPUTNIKAR NÚ fyrir jólin voru fluttar inn 200 pólskar jólatrésseríur, sem eru eftirlíkingar af hinum rússnesku spútnikum. Innflytjandinn sendi eina seríu til Rafmagnseftirlits rík- isins. Við tilraunir þar kom í ljós, að vara þessi fullnægir ekki þeim öryggiskröfum, sem gerðar eru. Á sama tíma og innflytjand- inn sendi seríuna tii rafmagns- eftirlitsins hóf hann sölu á þeim. Þetta var kært til caka- dómara, sem gerði „sputnik- ana“ upptæka. RIKISST J ÓRNIN hef- ur nú 'lokið fyrsta þætti í undirbúningi sínum undir tillögur þær, er hún hyggst leggja fyrir alþingi um efnahagsmálin. Er svo 'komið, að stjórnin hefur gert sér sikýra heildar- mynd af þeim leiðum, sem hugsan'legt er að fara, svo og hver megináhrif þeirra á efnahag landsmanna mundu verða. í gærdag voru haldnir fundlr í þingflokk og framkvæmda- stjórn Alþýðuflokksins og þing flokk Sjálfstæðisflokksins. ráðamönnum stjórnarflokk- anna og bornar undir þær stofn. anir innan flokkanna, sem eiga að taka ákvarðanir um stefnu- mál þeirra. Þegar niðurstaða er þannig fengin innan stjórn- arinnar, munu sérfræðingar enn taka til starfa og semja hin endanlegu frumvörp um þær ráðstafanir, sem stjórnin ákveður að beitg sér fyrir. segja, að ráðherrar og þing- menn stjórnarflokkanna muni liggja undir feldi um jólin, enda þurfa þeir að taka örlaga- ríkar ákvarðanir f byrjun næsta árs. Ríkisstjórnin hefur setið á löngum fundum hvern dag, síð- an þingi var frestað, og fjallað um efnahagsmálin með sér- fræðingum sínum. Þar munu vera fremstir í flokki þeir Jón- as Haralz, Jóhannes Nordal og Klemenz Tryggvason, en marg- ir aðrir hafa komið við sögu í einstökum þáttum málanna. Það, sem vænta má að ger- ist næstu fjórar vikurnar, er í stórum dráttum þetta: Þær Gullbrúðkaup eiga annan jóladag hjónin Evlalía Ólafsdóttir og Biörn Guðmundsson Njálsgötu 56. Munu ráðherrar þar hafa gefið yfirlit um þessi mál, en senni- heildartillögur, sem nú liggja fet undir jörðu. Harmoníkuleik fyrir, verða frekar ræddar af. ari lék undir söngnum. — 24. des. 1959 3. Alþýðublaðið

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.