Alþýðublaðið - 29.12.1959, Síða 3
Fast Græn
landsflug
Metsala hjá ÁVR
á Þorláksmessu
REYKVIKINGAR hafa ekki
verið Þurrbrjósta um jólin, ef
dæma má eftir áfengissölunni á
Þorláksmessu. Þá var selt á-
fengi í báðum vínbúðunum í
Reykjavík fyrir samtals 2,5
milljónir króna, sem er nýtt
met á þeim vettvangi, og er þá
mikið sagt.
í Austurríki við Snorrabraut
var selt fyrir liðlega 1.350 þús.
■kr., en í Nýborg við Skúiagötu
var salan aðeins minni, eða um
1.150 þús. kr. Er þetta nýtt
met í krónutölu, sem fyrr segir,
og útlit fyrir að flöskutalan
hafi ekki verið lægri en í fyrra,
þrátt fyrir nokkra verðhækkun
á áfengi snemma á þessu ári.
Þá má geta þess, að nú fyrir
jólin var keypt óvenju mikið
af góðum vínum. T. d. fengu
menn Gordons-gin, eins og hver
vildi hafa, en það hefur sjaldan
verið fáanlegt sökum gjaldeyris
skorts.
Whisky var mjög mikið keypt
að þessu sinni sem oftar, enda
15—20 ágætis tegundir af því á
boðstólum-
Nokkuð var keypt af frönsku
rauðvíni og kampavíni, sem
ekki er alltaf fáanlegt í „rík-
inu“.
Að lokum er rétt að taka
fram, að blaðið hefur frétc að
farið sé að sjá á birgðunum af
hinum betri vínum, sem Áfeng-
isverzlunin hefur upp á að
bjóða!
Tottenham
tapaöí fyrir
Leeds
LONDON, 28. des! (NTB-Reu-
ter). — Tottenham, sem er efst
í brezku deildarkeppninni, tap-
aði í dag fyrir Leeds með 1:4.
Var þetta umkeppni eftir leik
ina á annan jóladag. Leeds er
í mikilli hættu með að falla
niður úr 1. deild.
Hlauf opið
beinbrof
UMFERIÐARSLYS varð um
klukkan 1,30 á aðfaranótt að-
fangadags á Njarðargötu, móts
við Vetrargarðinn. Maður varð
þar fyrir bifreið og hlaut opið
brot á hægri fótlegg.
Hann heitir Jörgen Sigurjóns
son, til heimilis að Seljalandi
við Seljalandsveg. Hann var
fluttur á Slysavarðstofuna.
Rannsóknarlögreglan biður
sjónarvotta að slysinu, sérstak-
lega bifreiðarstjóra sem áttu
leið þarna um, að gefa sig fram.
LÖGRÆÐINGAR
Aðalfundur
lögfræðmgafélags íslands
verður haldinn í dag í I.
'kennislustofu háskólans kl. 17,
30. Venjuleg aðalfundarstörf.
í svefni
AKUREYRI í gær.
TOGARINN Kaldbakur kom
heim umi jólin frá Englandi. —
Er togarinn átti skammt eftir
ófarið til Islands lézt einn skip-
verjanna, Sigurjón Kristinsson,
55 ára að aldri í svefni. Er ekk-
ert vitað um dánarorsök lians,
Kaldbakur hélt hið skjótasta
inn til Húsavíkur en ekkert
varð að gert. Sigurjón heitinn
var f jölskyldumaður. — G.S.
UM MARGRA ára skeið, hef
ur Flugfélag íslands annast
mjög umfangsmikil leiguflug
til Grænlands fyrir ýmis fyrir-
tæki, sem þar hafa atvinnu-
rekstur. Þessi flugþjónusta hef
ur aukizt ár frá ári og verið
sérlega farsæl. Farnar hafa ver
ið hátt á sjöunda hundrað ferð
ir án þess að nokkurt óhapp
hafi komið fyrir.
Nú hefur Flugfélag íslands á
kveðið að hefja reglubundið á-
ætlunarflug til Grænlands og
hefur þegar sótt um leyfi til
þess, til danskra og íslenzkra
stjórnarvalda.
Tvö síðastlið'n sumur hefur
Flugfélag íslands annast reglu
bundin leiguflug frá Reykja-
vík til Kulusuk og Syðri-
Straumfjarðar einu sinni í viku
fyrir danska aðila, auk annarra
leiguferða. Þá fór Sólfaxi fimm
ferðir frá Reykjavík til aust-
urstrandar Grænlands s. 1. sum
ar fullskipaður ferðafólki ís-
lenzku og erlendu og komust
færri með en vildu. Gefur þetta
nokkra hugmynd um, að hér á
landi er mikill áhugi fyrir
Grænlandsferðum. Auk þess
berast félaginu stöðugt fyrir-
spurnir frá ferðaskrifstofum og
einstaklingum erlendis um flug
för til Grænlands. Fyrir um
það bil tíu árum fór flugvélar
Flugfélags íslands fyrstu Græn
landsferðirnar. Síðan hafa þær
verið þar tíðir gestir, flutt fólk
og varning til ýmissa staða.
Þessir flutningar hafa, sem fyrr
segir vaxið ár frá ári, og er
nú svo komið, að Flugfélag ís-
lands telur sig geta leyst verk
efni sín í Grænlandsflug'inu
betur og hagkvæmar bæði fyr-
ir sig og viðskiptavini sína, á
þann hátt, að stofnað verði nú
til reglubundinna áætlunarflug
ferða til hinna helztu staða þar,
jafnhliða einhverju leiguflugi.
SAMKEPPNI FER HARÐN
ANDI.
Önnur ástæða þess, að Flug
félag íslands hefur fyrir sitt
leyti ákveðið að stofna til áætl
u.narflugs til Grænlands er sú,
að samkeppni um flugfluttning
ana þangað fer stöðugt harðn-
andi.
Flugfélag íslands hefur nú
um tíu ára skeið leyst Græn-
landsflug af hendi á þann hátt,
að aflað hefur íslenzkri flug-
liðastétt aðdáunar þeirra
manna erlendra, sem aðstæður
þekkja.
Flugfélag íslands sækir um
leyfi til áætlunarflugs á flug-
leiðunum Reykjavík—Kulusuk
—Syðri-Straumfjörð fram og
aftur og einnig um flugleiðina
milli Reykjavíkur og Narssars
suaq.
Ef umbeðin leyfi til bessa
fyrirhugaða áætlunarflugs til
Grænlands fást, sem fastlega
má vænta, er ráðgert að hefja
vikulegar ferðir milli Reykja-
víkur, Kulusuk og Syðri-
Straumfjarðar í byrjun maí-
mánaðar næsta árs. Ekki hefur
ennþá verið ákveðið, hve tíð-
ar ferðir milli Reykjavíkur og
Narssarsuaq verða. — Myndin
er úr Grænlandsflugi.
IMMMWMMMMWMMMMMM
Happdrætti
SUJ
DREGIÐ var í Heimilis-
happdrætti SUJ á að-
fangadag. Voru númerin,
er upp komu, innsigluð og
verða birt þegar skil hafa
borizt frá öllum, er fengu
miða senda en eiga enn
óuppgert. Eru menn hvatt
ir til að gera skil sem
fyrst svo að unnt verði að
birta númerin hið fyrsta.
Skrifstofa happdrættisins
er £ . Alþýðuhúsinu við
Hverfisgötu.
Hafnfirðingar. f dag kl.
5—7 e. h. verður tekið við
greiðslu fyrir miða í
Heimilishappdrættinu í
Alþýðuhúsinu við Strand-
götu.
WMMWMWWWWMMMOWM
/ faðmlögum inn um gluggann
MAÐUR nokkur fór hinn 3.
i jólurn í veitingahúsið Röðul
tij þess að lyfta sér upp eftir
kyrrstöðu jólahelginnar. Mað-
urinn mun hafa fengið sér all
duglega í staupinu. Er ekki
betur vitað, en að hann hafi
glaðst og skemmt sér lengi vel.
Um kvöldið kom að því, að
maðurinn fann hiá sér hvöt til
þess að hringja út í bæ. Hann
sneri sér því að hinum svo-
nefnda útkastara veitingahúss
ins og bað um að fá lánaðan
síma. Útkastarinn kvað erfitt
um það, þar sem síminn væri
í notkun. Maðurinn greip þá
símtólið og skellti Því svo
harkalega á borðið, að litlu
munaði að það brotnaði.
Útkastarinn ályktaði, að
kom þyrfti í veg fyrir frekari
óspektir. Dreif hann því mann
inn út fyrir dyr veitingahúss
ins. Að því loknu hugðist út-
kastariitn fara inn aftur, cn
maðurinn sem vildi mótmæla
meðferðinni á sér, hrinti hon-
nm, Þar sem sá vildi ómögu-
lega falla einn, greip hann í
manninn. Féllu þeir báðir í
faðmlögum inn um stóran
glugga veitingahússins.
Gesturinn skarst illa á hendi
og hné. Hann var fluttur á
slysavarðstofuna til aðgerðar.
Útkastarinn skrámaðist lítil-
lega, en föt hans munu hafa
eyðilagst.
Alþýðublaðið — 29. des. 1959 J