Alþýðublaðið - 10.01.1960, Blaðsíða 5

Alþýðublaðið - 10.01.1960, Blaðsíða 5
skýrði blaðinu svo frá í gær, að Sesar væri á förum þaðan. Það eru aðeins þrjár sýn- ingar í viðbót ráðgerðar á leikritinu, þar af ein í kvöld. — Hér er Rúrik Ilaraldsson í hlutverki Bnitusar. RÚSSNESK blöð skýra frá því, að sovézkir vísindamenn hafi nú í undirbúningi að senda mannaða geimflaug til Telja þeir að Marz sé eina plánetan í sólkerfinu, sem mönnum sé lífvænlegt á. Þar er nokkur gróður, súrefni og vatn. Förin t.l Marz tekur 275 daga >en leiðangursmenn verða að bíða þar eitt ár eftir hentugu tækifæri til þess að komast til baka. Rússar hafa vísað á bug öll- um kvíða manna varðandi væntanlegar eldflaugatilraunir þeirra á Kyrrahafi. Segja þeir að eldflaugarnar, sem á að*- skjóta þangað muni lenda milli Hawai og Fijleyja, og 400 kíló- metfa frá næstu eyjum. Virð- ist þá allt í lagi, ef menn leyfa sér ekki að efast um nákvæmni vísindatækja þeirra og ýmsa óútreiknanlega möguleika. Veiða helzt á AÐEINS fjórir togarar lögðu afla sinn á land í Reykjavík í vikunni sem leið. Samanlagð- ur afli þeirra var 665 lestir, þar af helmingurinn karfi, sem veiddist á Nýfundnalandsmið- um. Það vgj* Þorkell máni, sem landaði á sunnudaginn 330 lestum af karfa veiddum við Nýfundnaland sem fyrr segir. Hinir þrír togararnir, sem veiddu á heimamiðum og fengu blandaðan fisk, voru þessir: Jón Þorláksson landaði á mánu daginn 125 lestum, Skúli Magn ússon landaði á þriðjudaginn 118 lestum og Fylkir landaði 92 lestum á miðvikudaginn. Síðan hefur eng nn togari landað í Reykjavík og er ekki von á neinum að svo stöddu, að því er Hallgrímur Guð- mundsson hiá Togaraafgreiðsl- unni tjáði blaðinu í gær. Togaraflotinn er nú almennt að veiðum á heimamiðum. All- margir hafa verið í siglingum að undanförnu og eru um það bil að Ijúka söluferðum á er- lendan markað. Tveir togarar, Úranus og Þormóður goði, veiða á Nýfundnalandsmiðum og munu vera langt komnir að fylla. Búizt er við því, að togar- arnir sæki helzt til fanga á heimamiðum næstu vikurnar. PARÍS, 9. jan. — f dag lézt Jean Gallimard, er var í bif- reiðinni með Camus, er hún ók á tré og hinn 46 ára Nóbelshafi fórst. Með þeim í bílnum voru kona Gallimard og dóttir. Slösuðust þær mikið en eru taldar úr allri hættu. Jean Gallimard var náfrændi útgefandans Gaston Gallimard. KLUKKAN 11 í gærdag var víðast hvar 7—9 stiga hiti hér á landi. Heitast var á Galtar- vita, 10 stiga hiti, en kaldast 4 stig í Grímsey og á Kirkju- bæjarklaustri, í Reykjavík var 8 stiga hiti, suðaustan 8 vindstig, úrkoma í grennd. Laegðlr voru fyrir sunnan land. Veðurspáin: Hvass suðaust- an, skýjað en úrkomulaust að mestu. Þýðviðri. WASIIINGTON, 9. janúar. — Bandaríkjamenn hafa enn bjargað sjö mönnum af isjak- anum Charlie. Eru þá eftir 18 af 27 mönnum, sem upphaflega voru á jakanum við vísinda- störf. Fyrir 12 dögum fór jak- inn að molna og verður að flytja mennina af honum. Ekki er talin hætta' á öðru en það takist. rita- nefnd ALÞINGI samþykkti 11. maí s. i. að koma á fót nefnd til þess að vinna að endurheimt ís- lenzku handritanna í Kaupm,- höfn undir forustu ríkisstjórnar •ir.nar. Nefndin er nú fullskipuð og hélt fyrsta fund sinn s.l. þriðjudag. í nefndinni eiga þess ir sæti: Alexander Jóhannesson próf. tilnefndur af Sjálfstæðisflokkn um, Einar Ól. Sveinsson próf., tilnefndur af heimspekideild háskólans, Stefán Pétursson, þjóðskjalavörður, tilnefndur af Alþýðuflokknum, Sigurður Óla son hrl. tilnefndur af Fram- sóknarflokknum og Kristinn E. Andrésson fyrrv. alþingismað- ur af Alþýðubandalaginu. Uppboð i Paris PARÍS, 9. jan. (Reuter). — í gær var haldið upp boð í París á myndum er ýmsir frægustM málarar Frakka gáfu til aSstoð- ar við íbúana í Fréjus, sem verst urðu úti er Malpasset- stíflan brast í desember s. 1. Seldust myndirnar fyrir samtals 221.398 dollara. Hæsfc "°rð fékkst fyrir tvær myndir eftir Picasso, önnur seldist. á 29.999 en hin á 26.395 dollara. Meðal þeirra, sem gáfu mynd ir voru Chagal, Raoul, Dufy,. Braque og de S'egonzac. Málhindur FYRSTI málfundur Féíags ungra jafnaðarmanna í Reykja- vík á þessu ári verður næstkom andi þriðjudagskvöld í Ingólfs- kaffi (uppi) og hefst kl. 8.30 stundvíslega. UNGUR varðskipsmaður fór á fimmtudagskvöldið á dansleik í - Vetrargarðinum. Var hann nokkuð við skál. Piltinum fannst heldur dauft á dansleiknum, en hann gerði þó sitt bezta til þess að reyna að skemmta sér og fá sem mest fyrir aðgangseyrinn. Þar kom, að pilti leiddist deyfð sú, sem honum fannst vera á dansleiknum. í vasa sínum hafði hann kínverja sem hafði orðið eftir síðan á gamlárskvöld. Honum þótti tilvalið að sprengja ann og sjá hvaða áhrif það hefði á samkomugesti. Hann kveikti síðan í kín- verjanum og kastaði honum út á dansgólfið. Dansfólkið hrökk í kút við hvellinn af sprengingunni, og skemmti varðskipsmaður sér vel. En nú kárnaði gamanið, því eitt- hvað óvenjulegt var að kín- verjanum. Hann her.tist í loft upp og hafnaði í p'ilsi einnar dansdömunnar. Kviknaði í pilsinu, en fljótlega tókst að slökkva í því. Nú komu úí- kastarar staðarins til skjal- aursa og handsömuðu piltinn. Hann var síðan afhentur lög- rcgiunni. Stúlkan gerði 360 króna skaðabótakröfu vegna þriggja brunabletta á pilsinu. Varðskipsmaður hefur lofað að greiða skaðann, áður en liann fer á flot til þess að fást við sprengingar í þágu land- varna. Frökenen fauk ÞESSI fröken er ennþá svo ofarlega í hugum manna (þó að hún sé horfin af Tjarnarsviðinu), að við tókum myndinni af henni fegins hendi, þegar hiin barst okkur í gær. Það er tvennt óvenjulegt við myndina. 1 fyrsta lagi er hún tekin á ísnum skömmu áður en frökenin fauk, og í öðru lagi mun- um við ekki eftir að hafa séð þessa hlið heanar á®- ur. — — 10. jan. 1960 Alþýðublaðið

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.