Alþýðublaðið - 22.01.1960, Qupperneq 16

Alþýðublaðið - 22.01.1960, Qupperneq 16
RUSSAR BYGGJA í ASWÁN RÚSSNESKA stjórnin hefur hjálpað Egyptum um lán til þess að reisa Aswanstífluna víðkunnu í Suður-Egyptalandi. En færri vita hitt, að hún veitir einnig verulega tseknilega aðstoð. í Moskvu hefur verið gert líkan af stíflumannvirk- inu (sjá myndina) og rúss- neskir verkfræðingar vinna við það bæði í Moskvu og Egyptalandi. Og nú fyrir skömmu hef- ur verið tilkynnt að Rúss- ar ætli að hjálpa Egyptum til að gera mannvirkið allt, en áður hugðu menn, að þeir mundu aðeins koma Egyptum af stað. Hjálparmenn NÝJA DELHI. — Það virðist oft sem svo, að Jawaharlal Neliru forsætisráðherra Ind- lands, standi einn við stjórn- völinn x landi sínu. En honum Stór loft- belgur í ÞESSUM mánuði á að sleppa upp í loftið nokkrum geysistórum loftbelgjum í Bandaríkjunum. Sá stærsti kvað vera um það bil eins stór og fjörutíu liaéða hús. Það er geimjannsóknadeild Chicago- háskóla, sem stendur fyrir þessuni tilraunum og er til- gangurinn að rannsaka geim- geisla í 35—38 þús. metra hæð.'''- Stærsta belgnum á að sleppa frá loftfari yfir Karabiska haf- inu. Rignir /oð- skinnum í BORGUNUM San Marino og San Gabriel kom undarlegt „regn.“ Menn vissu ekki fjrr en loðfeldum og ýmissi dýrri skinnavöru fór að rigna niður úr loftinu. Lögreglan í borgum þessum hefur gefið þá skýringu á at- viki þessu, að flugvél muni hafa dregið á eftir sér belg með loðskinnum, en liann sprungið þarna yfir. til aðstoðar eru margir menn, sem ráða miklu um stefnu stjórnar hans, menn, sem Ne- hru treystir og metur. Margir þessara manna eru lítt þekkt- ir út á við. Meðal þessara manna eru hinir fjórir, sem hér birtast myndir af. Govind Ballabh Pant, 73 ára, innanríkisráðherra. Hann er hatrammur andstæðingur kommúnista og ræður mestu um stefnu Indlands gagnvart Kína. Hann .hefur unnið með Nehru árum saman. Rajendra Prasad, 73 ára, forseti Indlands. Prasad er rétttrúaður Hindúi, og um- gengst Nehru eins og yngri bróður. Enda þótt forsetinn eigi að standa utan við stjórn mál, hefur hann mikil áhrif á þingmenn og ráðherra og leit- ar Nehru álits hans í flestum Pant ráðherra Nehrús stjórnarfarslegum vandamál- um. Lal Baliadur Shastri, 51 árs, verzlunarráðherra. Hann er sá maður, sem heldur saman þjóðþingsflokknum og lægir þar deilur. Margir telja að Nehi-u ætli honum að taka við forsætisráðherraembættinu eftir sig. Krishna Menon, varnarmála ráðherra, 62 ára. Hann er þekktastur af ráðherrum Ne- hrus og þeirra óvinsælastur, en Nehru metur hann vegna gáfna og heiðarleika. Menon er helzti sérfræðingur Ind- verja í utanríkismálum. Þá er ótalinn einn ráðgjafi Nehrus, sem er nær óþekktur út á við. Það er þjónn hans, 58 ára, Hari að nafni. Er hann sífellt með forsætisráðherran- um og sagt er að Nehru leiti oft ráða hjá honum. Shasíri ráðherra Japan TÓKÍÓ, (UPI). — Japanska stjórnin kann að neyðast til þess á þessu ári að gera ráð- stafanir vegna þess, að hlutar landsins eru smám saman að sökkva. Telja landfræðingar orsökina vera þá, að of miklu af jarð-vatni, gasi og olíu hafi verið dælt upp á yfir- borðið. „Hin kærulausa of- notkun þessara neðanjarðar- efna hefur þegar valdið land- sigi í Mið-Japan“, segja for- mælendur stjórnarinnar. Mest kenna þeir þetta risa- stórum verksmiðjum, sem nota ógrynni vatns við starf- semi sína. Benda þeir á, að á einu iðnaðarsvæði, við borg- ina Nagoya, hafi 3000 verk- smiðjur verið byggðar síðan í ái'sbyrjun 1950. Vatnspípur þurfa nú að ná allt niður á 45 metra dýpi til að ná nokkru vatni. Það var eftir að fellibylur- Prasad forseti Menon ráðherra sígur inn Vera gekk yfir Mið-Japan á s. 1. ári, að menn tóku fyrst eftir því, að landið hafði sigjð. Talsmenn stjórnarinnar benda á, að Sameinuðu þjóð- irnar munu bráðlega mæla með því við aðildarríki sín, að þau takmarki of-dælingu jarð vatns. Mun efnahagsmála- deild S.Þ. vera að undirbúa á- bendingar til ríkisstjórna um það, hvaða lögfræðilegum ráð um megi beita til að hafa stjórn á notkun vatnsins. Sjald- gæfur api KISORO, Uganda, des. (UPI). — Ung bandarísk hjón. hafa síðan í september kannað lífn aðarhætti einhvers sjaldgæf- asta dýrs jarðarinnar, afrí- könsku fjallagorillunnar. Þessi Gorillutegund, sem, talin er vera skyldust mönn- um af öllum öpum, fannst ekki fyrr en 1901 og lifir að- eins á örfáum stöðum í Ug- anda og Belgísku Kongó. Mjög lítið er vitað um lifna.ð- arhætti þessara apa. Það er verkefni George og Kay Schaller að athuga þá og skrifa bók um þá. Þau lögðu í förina í september síðastliðn um eins og fyrr segir og ætla að vera á þessum slóðum þar til í maí í vor. Þau eru uppi í háfjöllum Kongó og hafa fá- ar fréttir borizt af þeim hing- að til. Þó er vitað, að þau hafa fundið 25 fjallagorillur í.hóp og kveðst George hafa góða aðstöðu til athugana, dýrin eru orðln spök og vön honum. REAL MADRID hefur auki^ forskot sitt í spönsku deildar- keppninni. R-M sigraði Valen- cia um síðustu helgi með 2:1, en Bilbao náði jafntefli gegni Vallodolid. Barcelona sigraði Elcha með 2:0. Röðin: Real Mad rid 25 stig, Bilbao 23 og Barce- Iona 21.

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.