Alþýðublaðið - 29.01.1960, Page 5
FHA vigi uppreisnar-
manna við háskólann í
Algeirsborg. Takið eftir,
að ahdlitin eru gerð tor-
kennileg til að menn þekk
ist ekki. Myndin er ekki
vel skýr, þar eð hún var
símsend frá Algeirsborg
til Kaupmannahafnar.
r jr
Öhugnanleg
CAMPELL,
fréttaritari,
Keuters í Álgcirsborg, símaði í
kvöld, að l>ótt andrúmsloftið í
borginni væri ekki eins spenht
nií og áður, ótíuðust menn, að
það mundi versna, ef de Gaulle
ívilnaði öfgamöhnúm ekkert í
ræðu sinni á morgun.
Búizt er við, að um 6000
manns séu nú í vígjunum og
hafa öfgamenn tekið allar bygg
ingar á því svæði. Þeir virðast
vel búnir vopnum og skotfær-
tim.
Þá segir Campell, að óhugn-
anleg þögn hafi færzt yfir borg
ina í kvöld, er tilkynnt hafði
verið um brottför Delouvriers
og Challes. Virtust menn og
konur við vígin sem lömuð af
tilkynningunni. Orð, sem oft
heyrðust, voru: „Þetta þýðir
borgarastyrjöId“. Þá óttast-
menn, að FLN muni senda sveit
ir manna inn í bæinn til að
skapa glundroða. Þá telja sum-
ir ræðu Delouvriei's boða skip-
anir frá París um að berja öfga-
menn niður.
/ sfefrta
\stjórnarinnar\
TALSMAÐUR frönsku
stjórnaripnar Sagði í
kvöld, að skírskotanir De-
louvriers til öfgamanna
lýstu alls ekki tilgangi
ríkisstjórnarinnar og
hlytú að stafa af liinu
æsta andrúmslofti, er
ríkti í Algeirsborg. (De-
louvrier sagðist fús til að
snúa eftir til borgarihnar
og taka í hönd leiðtoga
London, 28. jan
(NTB-Reuter).
INFLÚENSUFARALDUR
gengur nú yfir allt meginland
Evrópu og virðist Frakkland
hafa orðið verst úti af Vestur-
Evrópulöndunum. I París og
grennd hafa 300.000 manns
lagzt í flensunni. Franska heil-
brigðismálaráðuneytið
tilkynnti þó í kvöld, að veikin
væri væg og væri heldur í rén-
un.
í Sóllefteá í Svíþjóð hafa
185 hermenn verið lagðir á
sjúkrahús með i.nflúensu, sem
talin er hafa borizt frá Finn-
íandi. Norðurlönd, Holland og
Belgíá hafa til þessa sloppið
bezt, en veikin breiðist út í
Austurríki, Vestur-Þýzkalandi
og Sviss.
í Sviss hefur eitt barn látizt
af veikinni og er veikin þar crð
in að farsótt. Verst er ástand-
ið í Genf.
Þúsundir hafa tekið veikina
á Ítalíu, aðallegá á Norður- It-
alíu. — í Vín varð að opna sér
staka sjúkradeild fyrir inflú-
ensusjúklinga í dag. •—1 V.-
Þýzkalandi bréiðist veikin enn
út og í þorpinu Keinmúnster í
| Bayern liggja allir íbúarnir, —>
! 350 að tölu.
í Framhald á 7. síðu. ,
óíympíu
Oslo, 28. jan. (NTB).
OLYMPÍUELDURINN, sem
brenna mun í Squaw Valley á
meðan vetrar-olympíuleikaniir
standa þar yfir, verðúr kvéikt-
ur í Sondre Nordheims Stue í
1 Morgedal árdegis á sunnudag. -
Eldurinn verður síðan fluttur á
sunnudag til Oslo, en þaS.Tii
mun flugvél frá SAS flytja
hann til Los Angeles, þar sem
borgarstjórinn tekur við hcn-
um á mánudagsmorgun.
Hugmyndin að því að kveikja
olympíueldinn í Noregi komt
Framhald á 7. síðu.
manna
leikur má ekki halda áfram. Ég
segi við herinn: Þið verðið að
hlýða Challe hershöfðingja,
sem hlýðnast de Gaulle forseta.;
Haldið þið, að Challe muni geta j
svikið Algier? Sláið vörð um
Challe. Sláið vörð um de
Gaulle. Múhammeðstrúar-
menn standa með honum. Ég
beini orðum mínum til ykkar:
Lagaillarde, Ortiz — til ykkar,
sem eruð í virkjunum, til leið-
toga Algier. Þetta er púður-
tunna. Eitt skot og allt mun
falla saman. Það er um örlög
Algiers, Frakklands, já, jafn-
vel heimsins að tefla. Ef þið
fylgið mér, verður öllu bjarg-
að. Ef þið standið með mér
verður FLN sigrað og þjóðar-
atkvæðið unnið. Með því að
standa með de Gaulle mUnuð
þ ð vinna styrjöldina í Algier“.
Þá skoraði hann á múham-
meðstrúarmenn að styðja de
Gaulle og kvað herinn mundu
vernda lögmæta hagsmuni
þeirra. „Fariþ út á göturnar og
hrópið: Lxfi de Gaulle“, sagði
hann við bá. „Ég hef hsétt borg-
arastyrjöld til að hindra sam-
bandsslit við Frakkland og
fall de Gaulles. Ég hef tekið
á mig þessa hættu, þar eð ég
hef traust á ykkur, af því að
ég veit, að víg.n munu falla“.
í lok ræðu sinnar kvað De-
Framhald á 7. síðu.
ALGEIRSBORG, 28. jan. I
(NTB-AFP). *
UPPREISNAR-leiðto-rarnSv
Lagaillarde og Ortiz gáfu í dag
út tilkynningu, er var svar víí$
ræðu Delouvriers. Segir þar m.
a.: ,,Frakkland er eitt, de Gaulle
er allt annað. Fyrir múhamm-
eðstrúarmennina og okkur kem
ur það Frakkland, sem biífxir, á
undan forgengilegum manni“.
PARÍS og ALGEIRSBORG, 28.
jan. (NTB-AFP-Reuter). — Ðe
Gaxjlle, forseti, lék í dag óvænt
an mótleik gegn öfgamönnum
í Algier, er hann ákvað að
draga bæði borgaralega og
hernaðarlega stjórnendur lands
ins burtu frá höfuðborg Algier.
Harold King, fréttaritari Reut-
«rs, segir frá París, að tilgang-
wrinn með þessari ráðstöfun sé
að koma í veg fyrir, að Delou-
vrier, landsstjóri, og Challe, yf
irhershöfðingi, verði beittir
þvingunum af öfgamönnum og
öðrum og frelsi þeirra til að
athafna sig skerðist.
Skömmu fyrir brottför sína
og Challes hélt Delouvrier út-
varpsræðu til íbúa Algier og
kvaðst hafa gefið skipun um,
að Challe hershöfðingi skyldi
fara til herstöðvar utanbæjar,
þar sem hann gæti með árangri
beitt völdum sínum.
Hann hélt áfram: „Challe
hershöfðingi og ég höfum svar-
ið að fórna lífi okkar til að
bjarga landinu. Ég segi við hið
franska föðurland: Þessi harm-
IWWIWWMWWWWWtWWWWV
Saub upp
úr í nótt?
AÐILAR, sem standa
ríkisstjórninni nærri,
sögðu í kvöld, að öfga-
menn í Algier hyggðust
láta til skarar skríða, áð-
ur en de Gaulle flytur
ræðu sína á morgun. Hafa
þeir í hyggju að taka í sín
ar hendur opinberar bygg |
ingar, þar á meðal stjórn-
arbyggmguna í Algeirs-
borg og aðalpósthúsið. o
Kváðust þeir ekki verða
undrandi, þótt þeir gerðu
þetta þegar í nótt.
Borgarstjórinn í Oran
kom flugleiðis til Parísar
í dag og kvað öfgamenn
hafa svipt sig völdum í
borginni. Hefðu þeir ráð-
izt inn í ráðhixsið og bann-
ag mönnum að vinna.
Alþýðublaðið — 29. janúar 1960