Þjóðólfur - 05.08.1864, Side 5
— 153 —
vex í Ábyssíníu, og hefir það þar um lángan aldr
verið viðhaft við bendilormaveiki, en sú veiki kvað
vera mjög algeng meðal Abyssíníumanna. fetta
meðal var fyrst viðhaft á Frakklandi fyrirnokkrum
árum siðan, en seinna fluttist það til Englands
og annara landa í Norðrálfunni og er hvervetna
viðhaft til að drepa bendilorma bœði með mönnum
og skepnum. Ilitt annað meðalið eða- »Kam.ala»
er rautt dupt sem í Austr-Indíum hefir lengi verið
viðhaft til að líta silki með, en á seinni tímum
hafa menn fundið, að það er einkar gott ormameðal.
Dr. Leared var einn af þeim fyrstu er flutti það
til Englands og hefir það sýnt sig ágætt móti öll-
um bendilormum bæði hjá mönnum og dýrum, og
svo er megnt og admikið meðul þelta, að það eigi
alleina drepr bendilormana í hundunum, heldrupp-
leysast þeir og fara í mauk þegar meðalið hefir snortið
þá, þar sem þeir liggja í þörmunum. En þó nú
þelta meðal geti drepið þessi dýr og afkvæmi þeirra,
sullina, þar sem það gelr náð að verka á þá, þá
er nú — höfuð spursmálið að mínu áliti, hvernig
menn ætti að geta komið þessu við, við lifrarsuli-
ina, hvar örðugt er að ímynda sér að duptið geti
komizt að eins auðveldlega, eins og í þörmunum.
Duptið er semsé gefið vanalega heilt eins og það
er, eða blandað með hunángi, og fer það þann
veg víst að mestu leiti ómelt í gegnum þarmana,
en af því það á þessari leið sinni hiltir fyrir bendil-
ormana, þá verðr það þeim þar að bana. Gæti
menn nú á einhvern hátt komið meðali þessu inní
lifrina, þá eru mestu líkindi til að það þar mundi
verða að hafa hin sömu álirif á sullina, sem það
í þörmunnm hefir á bendilormana, og spurníngin
verðr þess vegna, hvernig þessu megi til vegar
koma. Eg held að sá máti, sem eg hefi hugsað
mér til þessa, sé einna vissastr og áreiðanlegastr,
en hann er innifalin í því, að menn búi til dropa
úr Kamaladuptinu og gefi þá sjúklíngnum fastandi
i vatni eða jafnvei í brennivíni. Á þerina hált getr
maðr þcnkt sér að meðal þetta verði eins drepandi
fyrir sulli í lifrinni og öðrum inniflum, eins og
ðuptið er bráðdrepandi fyrir bendilormana í þörm-
unuin. Að droparnir verði að geta komizt inn í
lifrina vita menn af því, að öll vínanda meðöl
(spirituöse Midler) fara að mestu leyti alveg óum-
breytt úr maganum inní æðar þær er tilheyra lifr-
inni og öðrum meltíngar-verkfærum, er alment kall-
ast »portæda kerfiðn (Systema venarum portarum).
þetta hafa líffræðíngar á seinni tímum fullkomlega
sannað, svo að þar á getr engi vafi verið, en á
hinu gæti verið vafi, hvort Iíamala droparnir mundu
eigi missa þann eiginlegleika að geta komizt með
vínandanum inn í þær æðar magans sem liggja í
hið fyrnefnda portæðakerfi. Til að komast fyrir
þetta, hefir það sýnt sig, að dropar þessir geta þolað
að blandast með vatni og öðrum vatnskendum vökv-
um án þess þeir missi eðli sitt. Eg hefi gjört
margar tilraunir hér með, en niðrstaðan hefir jafn-
an orðið hin sama, svo eg þykist hafa fengið næga
vissu fyrir því að Kamala droparnir verða að geta
komizt inn í lifrina, miltað og öll önnur liffæri
(Organer) er hafa blóð sitt úr portæðakerfinu.
Hvort nú dropar tilbúnir úr blómstrunum af Kousso
mundu hafa sama eginlegleika, veit eg enn þá ekki,
en þó mun það bráðnm reynt verða, eins og eg
líka rétt nýlega hefi fengið vissu fyrir því, að Kamala
droparnir eru á Englandi álitnir að vera fult eins
áreiðanlegt meðal við bendilormum eins og sjálft
duptið, og er þó varia hugsandi, að þeir geti að
þarmaörmum komist nema í gegnum portæða blóðið,
og mælir þetta ákaflega fram með ætlan minni um
verkanir þeirra á lifrarinnar »portæðar,» en það er
að öllum líkindum í gegnum þessar æðar að sull-
irnir fyrst komast inní lifrina, og liafa tveir af hin-
um merkustu dýraormafræðíngum, er nú eru uppi,
þókzt finna smásulla yrmlínga í portæða greinunum.
Einsog áðr er um getið, hefi eg reynt þetta
meðal á tveim sjúklíngum og virðist að hafa gefið
góða raun. Iliun fyrsti sjúklíngr, er eg reyndi
dropa þessa á, var stúlka um tvítugsaldr ofan af
Akranesi; henni var komið hér til læknínga og var
hún auðsjáanlega meinlætafull. Hún hafði stóran
snll framan á lííinu, og þókti mér eigi trútt um,
að annar nokkuð minni nmndi liggja neðan og
aptanvert á hægra lifrarbarði, því þar heyrðist
manni, og jafnvel henni sjálfri, gutla undir, ef hún
hreifði sig, en sullatitríngrinn (»Hydatidesnurren«),
sem er svo einkennilegr fyrir sullaveikina, fanst
Ijóst að framanverðu. Eg ætlaði í fyrstunni að
lækna stúlku þessa eptir liecamiers máta, en hún
eins og féll fyrir ofrborð þegar gat var komið á
sullinn; eigi að síðr náðist beilmikið af vatni, en
með því bólga nokkur var komin í lífhimnuna í
kríngum sárið, lét eg það gróa, án þess eg gæti
náð sullahúsinu. Henni fanst því eptr sem áðr
stöðugt sullagutl undir hægri síðunni, án þess þó
að mögulegt væri að aðgreina, hvort þelta kæmi
frá sullinum sem opnaðr var eða þá öðrum sulli
er lægi meira til hægri ldiðar, og með því eg nú,
eins og þá var komið, sá mér eigi fært að gjöra
neitt með handatiltektum að sinni, datt mér í hug
að reyna kamaladropana, er cg þá nýlega var bú-