Þjóðólfur - 28.10.1864, Page 2
vatns og lOOpotta kúalilands fnllsterkr til að verja
fé óþrifum og drepa lús í því; en ef kúahland er
haft, og vatnið þá 400 poltar, er betra að hafa
svo sem 8 potta af lóbnksseyði saman við. þegar
baðað er, verðr lögrinn að vera eptir því mikill,
sem baða skal, og þá lyfin eptir því; t. a. m., ef
baða skal bnndrað fjár á hansti, má eigi ælla
minna en einn pott á hverja kind, og að minsta
kosti tuttngn potta umfram, því að annars verðr
lögrinn of lítill á siðnrstu kindurnar; lögrinn verðr
þá 120 pottar, það eru 96 pottar vatns og 24
pottar kúahlands, en lyfin verða 7n/2r, pund; ef
baða skal 50 fjár, verðr lögrinn TOpottar, og lyf-
in hér um 4% pund, o. s. frv. Verið getr, að
lögrinn sé talinn heldr lítill; því að hversu mikill
lögr gengr í hverja kind, er undir því komið,
hvers ulluð hún er, hversu vel er úr henni kreist,
þá er hún cr tekin upp úr baðinu, og hversu hag-
anlegt baðílátið er; því að því óhaganlegra baðí-
lálið er, því meiri verðr lögrinn að vera; en verði
lögr sá, er fyrst er tilbúinn, eigi nógr á það fó
sem baða skal, er hægt að auka hann, og láta þá
lyfin í, eptir því hlutfulli, sem þegar er talið. Bað-
lögrinn verðr að vera svo heitr, einkum í fyrstu,
að halda megi hendi niðrí honum um stund, og
eigi meir. Baðílátið verðr haganlegast þannig, að
það sé stokkr, hér um tvær álnirálengd, eða litlu
lengri en sauðkind, og eigi breiðari í botninn en
svo, að kindin fylli nokkurnveginn út í hann, en
að oían verðr hann að vera nokkru breiðari, vel
fjórðúngi álnar, en svo djúpr, að lögrinn geti flot-
ið yfir kindina án þess að renna út úr. þegar
baðað er, verðr að gæta þess, að lögrinn komist
eigi í skilningarvit skepnunnar, og halda því upp
úr höfðinu og eyrunum. Ilvenær að huustinu
baðað er, er lítils varðandi, ef veðrið leyfir; en
þó ætla eg, að réltast verði að baða lömb, þegar
þau eru komin á hús og hey, en fullorðið fé eigi
síðar en um Mikjálsmessu.
Reykjavík, 20. Septembor 1864.
II. Kr. Friðriksson.
Hálfyrði um Jóhannesar guðspjall.
(Úr bréfi frá presti).
Með því Jóhannes Jesú lærisveinn lifði fram-
yfir hin fyrstu aldamót kristninnar, og hin lánga
starfsemi hans hafði svo mikil áhrif á hið kristi-
lega safnaðalíf og þær hreifíngar, sem þetta nýa
líf útbreiddi í allar áttir, væri það ekki ólíklegt, að
til væri enn þá eldri og greinilegri vitnisburðir
um bans guðspjall, en flest önnur rit Nýa Testa-
mentisins. þannig er þessn líka varið. þegar
snemma á 2. öld tala kirkjufeðurnir, og það jafn-
vel sinn úr hverri átt, um 4 guðspjöll, sem sé
»stoð og stytta trúar vorrar«. En hér skal að eins
getið Jiess, sem rninzt er á Jóhannesar guðspjall,
og mnn þá hinn elzti skýlaus vitnisburðr um þetta
guðspjall vera eptir Melita frá Sardes, sem lifði á
miðri annari öld eptir Krist; hann talar um skrif-
að guðspjali og tilfærir Krists orð, sem standa hjá
Jóhannesi 6, 54., 12, 24., 15, 15. þó Jústínus
Martýr tali ekki með berum orðum um Jóhann-
esar guðspjall í ritum sínnm, þá fer hann alveg
eptir kenníngu Jóhannesar um Orðið, sem varð
hold, og kemr víða með staði næstum því orðrétta
úr guðspjallinu, t. d. Jóh. 3, 3—5. Eins kemr
Tatían með Jóh. I, 3., 5., og Thenphilus tilgreinir
fyrstu orðin í guðspjallinu og tileinkar þau Jóhann-
esi. Irenœus (dó 202), sem hafði heyrt kenníngu
Fohjkarpi, er var lærisveinn Jóhannesar, segir með
berum orðum, að Jóhannes hafi gefið út (í£s8oxs)
guðspjaUið, þegar hann var í Ephesus. Iljá Valen-
tínslca trúarbragðaflokkinum á miðri annari öld,
kemr margt fyrir, sem sýnir, að hann hefir haft
Jóhannesar guðspjall við að styðjast. Nafnkunn-
astir lærisveinar Valentíus voru þeir Ptolemœus og
Ilerakleon og hefir hinn fyrtaldi tilfært Jóh. 1, 3.
til sönnunar því, að frelsarinn sé heimsins skapari
og hinn síðartaldi hefir samið skýríngar yfir guð-
spjallið, og eru mörg brot úr þeim tilgreind í skýr-
íngariti Origenes. það hlýtr einnig að styrkja rit-
vissu guðspjallsins, að engir villukennendr á hin-
um fyrstu öldum kristninnar bafa, það menn til
vita, borið á móti því, að Jóhannes hafi ritað það.
Vér álítum óþarft að fara lengra útí þetta, því úr
því þriðja öldin eptir Krist byrjar, fjölga vitsisburð-
irnir um guðspjallið og verða enn þá skýrari og
fullkomnari; en af þessu fáa, setn hér er tilgreint,
sést, að vitnisburðirnir um guðspjallið ná upp til
postulanna daga og að það er óhugsandi, að guð-
spjallið hefði orðið eignað Jóhannesi, ef annar
hefði verið höfundrinn, þar sem Jóhannes var svo
alþektr og öllum svo minnisstæðr og enginn af
öllttm ltans lærisveinttm hefir haft eilt orð á móti
ritvissunni, heldr þvert á mót eignað honttm guð-
spjallið og Evsebius sagnaritari segir, að Jóhann-
esar guðspjall se þelct og viðrlcent í öllum söfn-
uðum. það má því fullyrða, að það er ekki til
nokkurt fornaldarrit, sem eins ftillkomlega og Ijós-
lega verði sannað um, að það sé ritað af þeim,
sem það er eignað, einsog tun Jóhannesar guð-
spjall. En hitt er efunarmál, hvort það sé mögu-
i