Þjóðólfur - 11.02.1865, Síða 3
um: »herna er laustMeðallandsbrauðið, er nokkur
"sem viil það«. En þessu framboði biskupsins
befir engi svarað eða sint nú á 3. ár, hvorki vígðr
prestr né prestaefni.
J>að er nú, að mér virðist, hin náttúrlegasta
spurníng, þó flestir eða ailir Meðallendíngar spyrði
eins og sá heiðrsmaðr meðal þeirra erskrifaði mér
um þetta mái næstl. sumar: »Eru hinir andlegu yfir-
herrar kirkjunnar og safnaðanna hér á landi, stipts-
yfirvöld landsins, búnir að leysa hendr sínar og
fulinægja þessari embættisskyldu sinni einúngis
með því að slá upp brauði því sem laust er, en
láta svo söfnuð með nál. 70 heimilum og rúmum 400
sálna vera prestlausan að öllu og prestþjónustu-
lausan að mestu svo árum skipti? eða eru stipts-
yfirvöldin svo ókunnug eða svo glámskygn að þau
sjái ekki., að margr er sá söfnuðr hér á landi, og
þar á meðal heid eg sé óhætt að telja Meðalland-
ið, að söfnuðrinn er eins prestlaus fyrir það, að
kalla má, þóað nágrannaprestrinn sé beðinn eða
þó að honum sé skipað að þjóna brauðinu. Yið
Meðallendíngar sjáum ekki, hverafþessum 3 næstu
prestum okkar getr veitt hér prestsþjónustu vetr
og sumar og séð um uppfræðíngu úngdómsins {
þessari fjarska víðlendu sókn».
þetta scm hér er sagt, er óneitanlega satt og
rétt, það verðr hver maðr að játa sem nokkuð
þekkir til þar eystra. þóað allir 3 nágrannaprest-
arnir væri menn á bezta reki — en út af þvi getr
brugðið eins og allir skilja — í Álptaveri að vest-
an, Skaptártúngu að norðan og á Síðunni að norð-
austan, þá getr engi þeirra þjónað Meðallands-
brauðinu jafnframt, svo fjarska víðlend sem sú
sókn er og þar til fjölskipuð, og allrasízt um vetr,
því vegalengdin t. d. frá Prestbakka á Síðu eða
Ásum í Skaptártúngu að Lángholti er fjarska mikil
og þar tii sitt stórvatnið á hverja lilið og aðrar
torfærur, sem opt eru ófærar um vetr; bæði Skapt-
ártúngubrauðið sjálft og einkum Siðubrauðið er
með einbverjum hinum víðlendustu og erfiðustu
sóknum hvort fyrir sig.. Álptaverið er að vísu lítii
sókn og hin hægasta, enda er iáng skemst þaðan
að Lángholti, og er kirkjustaðr sá í miðr sókninni
að kalla má, en þar er þá Kúðafljót i milli og cr
það einatt ófært vikum saman um vetr, vor og
haust. f>essir afstöðu- og landslags erfiðleikar og
torfærur, sem umkríngja Meðallandið á alla vegu
og aðskilja það frá 3 hinum næstu prestaköllum,
gjörðu líka það, að brauðamats og sameiningar-
nefndinni þar heima í héraðinu, 1852—53, gat
ekki komið til hugar, að leggja til sameiníngu Með-
allandsbrauðsins við nein hin næstu prestaköil, og
var þó nefnd sú alls ekki hugdeig að leggja til sam-
einíngu brauðanna, þar sem nokkur tiltök þóktu
til þess, t. d. að sameina Kálfafell á Síðu við
Kirkjubæarkl.brauð og Skaptártúngubrauðið við
jþykkabæarkl. i Álptaveri.
þóað nú bæði stiptamtmaðr og biskup, er
báðir sátu á síðasta Alþíngi, teldi öllum þeim söfn-
uðum vel og að fullu borgað bæði þeim sem nú
eru prestslausir og verða það auðsjáanlega fram-
vegis æ fleiri og fleiri um hin næst komandi 8—10
ár, sakir sívaxandi skorts á prestaefnum yfirhöfuð
að tala, en engi þarf að telja uppá að prestastétt
vor verði sá ódáins-akr um mörg hin komandi ár,
eins og hún hefir verið um 3—4 hin næstliðnu
árin, — þóað bæði stiptsyfirvöldin fullyrði nú og
vildi telja þínginu og öllum landsmönnum trú um,
að hverjum prestslausum söfnuði sem er, væri borgið
ef þau (stiptsyfirvöldin) skipaði nágranna prestun-
um að þjóna hinu prestlausa brauði, þá sjá allir,
að þetta nær engri átt, og er hérumbil sama eins
og þau segði: það stendr á sama hvort prestr er
í brauðinu eðr ekki, hvort þar er haldið uppi guðs-
þjónustugjörð og hinum lielgu sakramentum eptir
siðum og setníngum luthersku kirkjunnar, barna
uppfræðíngu og öðrum góðum og kristilegum sið-
um, eðr ekki, það er nóg ef stiptsyfirvöldin í Reykja-
vík skrifa nágranna prestinum til, eða láta prófast-
inn gjöra það og segja honum, að þjóna hinum
prestslausa söfnuði, þóað þetta sé óvinnanda
verk fyrir þann hinn sama prest, sakir tor-
færa og vegalengdar, sakir þess að hann á sjálfr
víðlendum, erfiðum og fjölmennum sóknum aðgegna,
sakir þess að hann er ekki fær um að leysa fylli-
lega af hendi embættisskyldurnar við sína söfnuði
sjálfs, og því síðr að bæta á sig nýrri safnaðar-
hjörð til gæzlu og uppfræðíngar, og þá líka sakir
þess, er þrávalt getr að borið, að nágranna presta-
kallið, þaðan sem einúngis var vinnanda að veita
prestlausa brauðinu nokkra forsjá, verðilíkaprests-
laust, af því pfestr sá deyr eða fær betra brauð,
os verðr þar til prestsiaust um nokkurra áratíma,
ef það losnar, af því það er eilt af þessum rírari
brauðum og í þeirri fjarlægð, að engi af þessum
fáu prestaefnum, sem nú er kostr á, vill líta við
því, af því þeir geta átt kost á betra hrauði að
fáum árum liðnum og betr í sveit komið. Hvað
er t. d. líklegra, en að Skaptártúngubrauðið losni
þegar minst varir, þar sem er 6 ára prestaskóla
kand. og liprmenni á erfiðu rírðar brauði? stipts-
yfirvöldin geta þó naumást synjað honum um betra