Þjóðólfur - 03.06.1865, Side 7

Þjóðólfur - 03.06.1865, Side 7
— 129 Kosningar til Alþingis 1865—1869. — I Austr-Skaptafellssýslu, að Holtum í Horna- firði 27. Apríl þ. á. Af 243 kjósendum voru að eins 17 á fundi, enda var gaddbilr þenna dag þar eystra og Hornafjarðarfljótin nálega ófær hið »syðra« eðr neðantil þar sem almanna leiðin er yfir þau. Iíosinn alþíngismaðr Stefán liiríksson hreppstjóri í Árnanesi, með 1G atkv.; varaþíng- maðr: siraBergr Jónssonprófastr íBjarna- nesi, einnig með 1G alkv. Eptir munnlegum fregnum eru á kjörþíngi í ShagafjarSarsýslu 3. f.m. kosinn alþíngismaðr: Ölafr Sig’iirðsson óðalsbóndi á Ási í Hegranesi, varaþíngmaðr: Kgill Gíott- sknllisson fyr hreppstjóri á Völlum, nú á Skarðsá í Sæmundarhlíð. í Barðaslrandarsýstu var kjörþíngið 17. f. m. en eigi hefir frézt enn hverir þar hafi verið kosnir; en fregnirnar þar að vestan telja sjálfsagt, að stú- dent Br. Benidictsen í Flatey hafi orðið þar alþíngismaðr. AUGLÝSÍNGAíl. — IIúss- og líústjórnarfélag Suðramts- ins Ieyfir sér hérmcð að skora á goða menn í suðramtinu, að þeir gefi sérlegt athvgli boðsbréfi því, sem finst í |>jóðólfí 9. Maí, 25.—26. þ. á., og sem skýrir frá atpjóðlegri sýningu á fiskiajla, veiðarfœrum o. s. frv. er haldin verðr í Björgvin í Noregifrá 1. Ágúst til 16. Sept. nœstkomandi»; þvíað her er um þann ldut að ræða, er ísland varðar hvað mest um, og sem gctr orðið því tii ómetanlegs gagns ef vel og rétt er að öllu farið. Forstöðunefnd sýníngar þessarar í Björgvin hefir einnig ritað bústjórnarfélaginu og talið mjög æski- legt, að einn eðr fleiri gæti sótt fund þenna fyrir íslands hönd. Vér viljum því mikillega mælast til, að 2 eða 3 af löndum vorum, þeir er bera gott skyn á sjávarútveg og fiskiveiðar, og sem finna hjá sér hug og dug og laungun tii að fræðast enn betr 1 þeirri grein og vinna fóstrjörðu vorri gagn, gefi S|S fram og snúi sér í þeim efnum til forseta bústjórnarfélagsins í Reykjavík, helzt sem fyrst og ekki seinna en á Jónsmessu, eðr 24. Júní þ. á., því félag vort verðr að hafadálítinn tíma fyrir sér, ef það á að geta stutt á einhvern hátt að fyrirtæki þessu. Að lyktum skulum vér minna menn á þau ummæli hr. stiptamtmannsins í áminstu blaði f>jóð- ólfs: að eigandi gufuskipsins vili veita kauplaust far með þvi', og að stjórnin muni fús á að styrkja menn til farinnar. í stjórn Subraartsins húss- og bústjórnarfi'lags 1. Júní 1865. Ó. Pálsson. Páll Melsteð. Jón Guðmundsson. — Stjórnendr húss- og bústjórnar felagsins í suðramtinu leyfa sér að ryfja upp fyrir amtsbú- um vorum, það sem tekið er fram í skýrslu þeirra í Septbr.mán. 1863 (sjá þjóðólf XV. nr. 45. bls. 181—2), að hver sá, er vill ná til 15 rd. verðlauna fyrir vænan uxa, básgeldíng 4. vetra, eðr og 10 rd. verðlauna fyrir vænan stóðhest einlitan, eigi ýngri en 5 vetra, verðr að gefa félagsforsetanum það til vitundar eigi seinna en fgrir næstkomandi Jónsmcssu, og verðr að vera kominn með sjálfa gripina híngað til Reykjavíkr þriðiudaginn 4. dag Júlí þ. árs á hádegi. — Hérmeð innkallast, samkvæmt opnu bréfi 4. Janúar 1861, allir þeir, er skuldir eiga að heimla í dánarbúinu eptir Baldvin prest Jónsson, er andaðistað Stokkalæk 31. Marz næstl., til innan 6 mánaða frá birtíngu innköllunar þessarar að lýsa kröfum sínum og sanna þær fyrir skiptarétt- inum hér í sýslu. Seinna lýstum skuldakröfum verðr ekki gegnt. Rúngárþíngs skrifstofu 17. Maí 1865. H. E. Jónsson. — Með þartil fengnu samþykki Stipt- og Suðr- amtsins, hefi eg lagtbannfyrir allasauð- fjárrekstra og flutnínga yfir f>jórsá út og austr, milli fjalls og fjöru, undir viðlagða lög- sókn og sektir ef á móti cr brotið. f>etta auglýsist hérmeð almenníngi. Kángárþíngs skrifstofu 17. Maí 1865. II. E. Jónsson. — Með gufuskipinu hefi eg nú frá hinu enska og útlenda Biflíufélagi fengið sent talsvcrt af hinu íslenzka Nýa Testamenti í sama skinnbandi og áðr og með sama gjafverði nl. 64. sk. hvcrt, svo allir, sem það hafa pantað, geta nú fengið það hjá mér og sömuleiðis fæst það til kaups fyrir borgun út í bönd. Félagið hefir einnig sent mér nokkur íslenzk Nýa Testamenti ískrautbandi, kallað morocco, gyllt í sniðum og víðar með rósum á hliðum í saffíani og kostar hvert þeirra 9 sk. í enskum peníngum, eða 4 fjóra rd. r. m., eptir því sem félagið sjálft hefir ákveðið. Keykjavík 27. Maf 1855. P. Pjetursson. — Hérmeð lýsi eg yfir, bæði fyrir hönd sjálfs

x

Þjóðólfur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðólfur
https://timarit.is/publication/72

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.