Þjóðólfur - 17.10.1867, Side 3

Þjóðólfur - 17.10.1867, Side 3
— 179 — að af í þau síðustu forvöð; því flestum var orðið kvalræði að sitja lengr, komið fram i Ágústmánuð. Kosníngarlögin urðu að lyktum viðtekin af Ilouse of Commons, og fóru svo búin npp til lorðanna. |>ar urðu á ný miklar þíngræður mörg kvöld og nætr í samfellu. Stundum hefir þíngið staðið 16 stundir samfleytt í House of Commons fyrir utan stutta matmálsstund, og lángt fram á morgun; og er það seta fyrir forsetann, sem alla stund verðr að sitja eins og brúða í sínu sæti; aðrir þíngmenn eru léttari í sessi og slreyma út og inn. I Lorða- stofunni urðu nokkrar breytíngar; ein þeirra er athugaverð og nýmæli í þessu landi, í þá átt að gefa minni hluta í kjördæmum hæli og þínggrið. Mr. Lowe, sem er þjóðkunnr maðr hér í landi í þessu máli öllu , og þar með Islandi vel kunnr, hefir lesið og þekkir alla Sturlúngu, sem fáir út- lendir menn þó gjöra, var í House of Commons fyrsti frumkvöðull að þessu rnáli, og Times studdi það mál. Mr. Lowe stakk upp á því, að í þeirn kjördæmum, sem kjósa tvo þingmenn, ef þíng- mannaefni væri fleiri en tveir í kjöri — þá skyldi kjósendr eiga heimilt að tvöfalda atkvæði sitt, eða gefa einum manni bæði sín atkvæði; þetta kölluðu þeir í þínginu «Cumulative vote»; í fyrri tíð var að eins leyft að gjöra sem menn kalla «plumd», að kjósa einn mann með öðru sínu atkvæði, en fella niðr annað, til að tviskipta eða ónýta ekki sitt eigið atkvæði. Mr. Lowe er allra manna snjall- astr í máli og einn fremstr meðal þíngmanna bér; en þetta féll þó á þíngi. Tilgángrinn var sá, að gefa rninni hluta í kjördæmunum, af hverri kreddu sem þeir kunna að vera eptir sem alþýðuhjólið veltist nokkurt skjól og farborða. I lávarðarstof- unni kom ræðan að hinu sama, og þar var gjört það nýmæli, að í þeim kjördæmum (t. d. Liver- pool, Birmingham, Manchester &), sem kjósa þrjá þingmenn (þríhyrnd kjördæmi sem kölluð eru), skuli bver kjósandi að eins hafa tvö atkvæði, þetta er nokkuð svipað því, sem Ari getr um í Íslendínga- bók um dómnefnu og þíngnefnu Norðlendinga. I annan stað skuli í City í London, sem á að kjósa fjóra menn á þíng, hver kjósandi að eins að kjósa 3. Af þessu leiðir, að þar sem minni hlutinn er nokkuð strángr, t. d. tveir fimmtúngar, þá er lík- legt að einn þíngmaðr af þremr eða einn af fjór- úm í London verði minni bluta fulltrúi, ef allir eru samhendir; hér með er þá að nokkrum hluta brotinn oddr af höfðatölu ofríki, sem ekki er nú m,ldasta harðstjórn; og þar sem vitrustu og beztu menn opt eiga því heimsóláni að fagna, að vera í minni hluta (fáment og góðment sem við mundum kalla), þá er þeim nú nokkuð skjól búið. Eg get þessa, því það er hald margra, að þetta muni vera að eins byrjunin, og nauðsyn muni reka menn til að fara lengra i þessa stefnu til að milda þessi nýu lög, sem hleyþa inn í linu reipi mörgum hundrað þúsundum affátækum ogfákunnandi borga- múg, af hverjum mikill þorri hvorki er læs né skrifandi. Annað nýmæli var að gefa heimilt að gefa atkvæði sitt skriflega. Háskólarnir í Oxford og Cambridge hafa slík kosníngarlög, en annars er það gamall landsvani, að hver maðr verði að mæta á þíngfángi og gefa sjálfr sitt atkvæði; en þar er heldr svakasamt og illfært nema hraustum mönnum að sækja þann stað. Að leggja niðr hin smáu kjördæmi gekk ekki í gegn að þessu sinni; menn kalla þau hér «vasakjördæmi» «pocket bor- ravs», en þau hafa sína kosti, segja menn að hafa nokkur þeirra svona í bland; dæmin eru mörg, að þegar mikill æsíngr hefir verið og ákafr flokka- dráttr, þá ber opt svo við, að þjóðkunnir þíng- menn, sem eru í stórum kjördæmum, komast í bága við sitt kjördæmi og verða fyrir stundarhatri opt fyrir litlar sakir; en þá liefir einhver smáhol- an tekið þá af skipbroti, svo þeir hafa aptrkomizt í þíng, og landið ekki þannig mist hygginda þeirra, þegar máske mest hefir á legið. Að bafa höfða- tölukjördæmi (sem í Hanmörku), einn þingmann fyrir svo og svo mörg kjörnef, yrði aldrei vinsælt, né affarasælt hér á Englandi. Á Islandi, þó litlu sé til að jafna, er það kunnugt, að okkar minnstu kjördæmi hafa sent beztu menn á þíng; eg tek til dæmis ísafjarðar- og Strandasýslu, svo okkar ís- lendínga reynsla leiðir ísömu átt. I mörgum hinna stærri kjördæma hefði þíngmaðr Ísfirðínga varla átt þíngvært bin síðustu ár. Málið fór þá svo bú- ið ofan í House of Commons; J>ar var þíngdeila einnar nætr; lokin urðu að nýmælið um hin þrí- hyrndu kjördæmi og City var lögtekið; hitt um bréflegar kosníngar var felt af þeim rökum, að það mundi auka mútur og svik og hótanir í kosníng- um, og muni að lokum leiða til launkosnínga (með kúlum) svo sem í Ameriku. það eitt er eptir er, að lávarðarnir stíngi aptr hendinni í sinn kæra eigin barm ; það trúi eg verði í nótt; og þá er þetta lánga og í marga staði leið- inlega þíngþóf á enda, og þetta land er dýrðlegt gjört í nýum og sem menn kalla mjög frjálsum kosníngarlögum, og er þar með steini léttaf mörg- um manni; því þetta mál hefir í mörg þíng staðið allri löggjöf fyrir þrifum; kvennfólkið er hér enn

x

Þjóðólfur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðólfur
https://timarit.is/publication/72

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.