Þjóðólfur - 17.08.1869, Blaðsíða 7
grunað það eða tortrygt. Menn gátu vel hugsað
ser, að konungr eða stjórn hans mundi máske
hika við að fallast á sumar hinar verulegri breyt-
ingar Alþingis, en menn höfðu enga ástæðu til að
leiða grun að því, að uppleysing þingsins og nýar
kosningar, sem varauppástungan fór fram á, yrði
notað til þess, að leggja fyrir ný stjórnarlagafrum-
vörp, þar sem væri gjör umsteypt allri stjórn-
arskipunar-undirstöðunni frá því sem bygt var á í
frumvarpinu 1867, til svo freklegs halla á viðr-
kendum og sjálfsögðum landsréltindum vorum og
atkvæðisrétti í málinu, og að tvö slík stjórnarfrum-
vörp yrði svo lögð fyrir hið ntjkosna þing einungi6
til »hlutdeildar til ráðaneytis« undir fullnaðarat-
kvæði Ríkisdagsins í Danmörku.
Eg skal láta ósagt um það, hvernig þér, vorir
nýkosnu alþingismenn, skoðið köllun yðar og stöðu
anspænis þessari aðferð ráðgjafastjórnarinnar og
þessum llíkisdags lagafrumvörpum hennar, — en
hilt veit eg víst, að þeir af kjósendum yðar, sem
nokkuð hafa hugsað, að því er snertir stjórnar-
skipunarmálið og yðar afskipti af því nú á þingi,
hafa ekki kosið yðr til að ræða og gefa ráð um
stjórnarskipun íslands undir atkvæði Ríkisþingisins
i Danmörku, hafa ekki kosið yðr til þess á Al-
þingi, heldr einungis til þess og um það
hafa menn fullt traust til yðar allra, eins og
nokkrar bænarskrárnar munu sýna bæði úr
þessu böraði og fleirum, — að ræða og sam-
þykkja það eina stjórnarfyrirkomulag, sem bygt sé
á eigi annari eðaþrengri réttarundirstöðu heldr en
stjórnarskrárfrumvarpið 1867, að þér eigi gangið
að nórýmri stjórnarkostumi> ( því sem nokkru
verulegu skiptir, heldr en Alþingi 1867 samþykti.
þetta ávarp mitt til yðar, heiðruðu alþingis-
menn, kemrþví að eins fyrir yðarog almennings-
sjónir, að Alþingi hafi ekki afráðið og samið allra-
þegnsamlegast ávarp til konungs nú þegar í upp-
hafi þings, sem eg þó vil vona að hafi orðið; því
eg hygg, að aldrei liafi nokkurt þjóðþing liaft rík-
ari hvatir eða þó heldr augljósari nauðsyn til að
hafa fram gagnort og skorinort ávarp til konungs
síns, heldr en þetta nýkosna Alþingi 1869, undir
eins og þcssi tvö stjórnarlagafrumvörp voru frarn-
lögð.
Drottinn blessi og farsæli Alþingi og allar
yðar tillögur og störf, fóstrjörðu vorri og þjóð til
framfara og heilla.
Ititab 6. Ágiist 1869.
J. /.
Skýrslur, bygltar á opinberri skot&un, um rúg
hjá W. Fischer og H. Sivertsen, ern sendar oss og skulu koma
í næsta bl.; korn W. Fischers alveg mabklaust, gúíir matr,
12 Ipnd tunnan; hjá H. SfVertsen; hérlítill mabkr, gúlhr
kjarni, vigt 12 lpnd, —12 Ipnd. 4 pnd.; leirmola- og ruslkent
í i'ibrnm byngnum.
AUGLÝSINGAR.
— Allir þeir, sem telja til skulda í félagsbúi
bónda Vigfúsar Erlendssonar og látinnar konu
hans Katrínar Halldórsdótt.ur frá Miðeyarhólmi
í Austrlandeyahreppi, innkallast hér með, samkvæmt
opnu bréfi 4. Janúarl86l til þessinnan 6mán-
aða frá birtingu þessarar innköllunar, að lýsa
kröfum sínum og sanna þær fyrir skiptaráðanda
hér í sýslu.
Uangárþingsskrifstofu 3. Ágúst 1869.
H. E. Johnsson.
— Hér með innkallast samkvæmt opnu bréfi 4.
Janúar 1861 allir þeir, sem telja til skulda í dán-
arbúinu eptir hjónin Einar Petrsson og Margretu
Loptsdóttur frá Syðra-Bakkakoti undir Eyafjöllum,
til þess innan 6 mánaða frá birtingu þessarar
innköllunar að lýsa kröfum sínum og sanna þær
fyrir skiptaráðanda hér í sýslu.
Rangárþingsskrifstofn 3. Agúst 1869.
H. E. Johnsson.
— Undirskrifaðir kunngjöra hér með, að við í
félagskap höfum byrjað verzlun á Vatneyri við
Patreksfjörð í Barðastrandasýslu, undir nafni:
Tostrup & Bachmann, og að hvor okkar sér-
staklega hefir rétt til að innganga skuldbindandi
samninga við þriðja mann, tilheyrandi verzlun
þessari. Vatneyri, 29. Júlí 1869.
J. Christjan Tostrup. Sigurðr Bachmann.
— Að eg nú, við burtför mína héðan heim til
Lundúna, hafi falið herra kaupmanni Einari Bjarna-
syni hér í bænum og af hendi umbjóðenda minna
R. B. Symington & Co. Glasgow Skotlandi
gefið honum fullt umboð til að krefja og innheimta
útislandandi skuldir þeirra við fyrverandi verzlun
Sveinb. Jacobsen & Co., »Liverpool» hér í
Reykjavík, að semja nákvæmar um greiðslu þeirra
m. fl., það auglýsi eg hér með öllum, sem eiga
hlut að máli. Reykjavík 11. Ágúst 1869.
Thorl. 0. Johnson.
— Miðvikudaginn þann 15. Sept. næstk.
kl. 12 á hádegi verðr, ef viðunanlegt boð fæst,
við eitt uppboð, sem haldið verðr í Kefiavík, seld
verzlunarhús, sem tilheyra þrotabúi kaupmanns
Svb. ólafsens í Keflavík, og eru þau: