Þjóðólfur - 04.05.1874, Blaðsíða 2
— 102 —
ná ekki að, sem er, að næra þjóiíkaman innan frá
með allskonar framförum lífs og sálar.
íslendingar! vér höfum harðindi og bágindi
við að stríða. Nú vel: fáum oss jafnvægi hið
innra, andlega fullkomlegleika dugnaðar og dreng-
skapar, sem einmittlifa af þrautunum. Land vort
var ekki skapað fyrir bleyðimenn, heldr fyrir hetj-
ur. og herðimenn. Forfeður vorir fundu ósjálfrátt
að þeir þrifust ekki nema á hörðu landi, enda
þótti þeim land þetta ástundum of mjúkt, settu til
hafs og lögðust í víking. Nú leysa menn landtog
fyrir aðrar sakir.
Vér höfum fengið miklar réttarbætur: fyrst
svcitalög, og póstgöngur miklu betri en áðr, og
nú í sumar fáum vér stjórnarbót vora. fetta ern
framfarir og þiggjum þær þakklátlega, og þó lióg-
lega, því ekki er auðvetdara að gæta fengsins fjár
en afla, enda eigum vér enn nokkurn hlut af
frelsi voru í sjóði. Þetta frelsi, sem vantar, eig-
um vér undir sjálfum oss. Harðstjórn þurfum vér
vart að kvíða úr þessu, ef vér sjálflr erum lifandi
og vakandi, og sköpum oss hana ekki sjálíir.
í von um vinsæld fyrir blað þetta, og einkum
í von um sigr hins góða í framtíðirini, skulum
vé snúa þessu ávarpi upp í sumar- og þjóðhátíð-
ar ósk:
Gleðilegt sumar, íslendingar!
] sumar egum vér að minnast fslands liðnu
1000 ára! í sumar egum vér að meðtaka stjórn-
arbót! Hér er tvennt, sem gjörir árið merkis-ár
og sumarið gleði-sumar; hér er tvennt, sem ekki
heflr áður borið til í sögu vorri, tvennt, sem sjaldan
skeðr, tvennt, sem snertir hvert hugsandi hjarta
á landinu: hin umliðnu 1000 ár með endrminn-
ingunni, og stjórnarbótin með voninni. Fortíð og
framtíð kalla nú jafn-hátt til vor. j>etta sumar á
þjóð vor í andlegum skilningi að halda heilagt;
tíminn er helgitími, Drottinsdagr sögu vorrar; nú
er vor vitjunardagr: nú eigum vér að vera trú-
menn og minnast leyndardómauna, er byrja og
enda lífið, minnast guðlegrar forsjónar. Þetta
sumar er oss erfidagr hins umliðna, sem leiptrar
yflr gröf endrminningarinnar, það er fagnaðardagr
hins ókomna, er signir vöggu framtíðarinnar. Sör-
hver sem finnr krapt liðinna og komanda alda
hreifast ( hjarta sínu, hann minnist nú hins helg-
asta og bjartnæmasta, er snert hefir vort vitund-
arlíf, sem Guðsorð, Móðrorð og Lífsorð. í ár eig-
um vér allir að vera samlyndir brœður og sgstur,
því nú minnumst vér blóðskyldu þjóðfélags vors,
samskyldu og samréttinda vorra til einna samerfða,
er heita framför og fullkomlegleiki; nú eigum vér
alllir að vera ungir, gleyma hinni gömlu ástartölu,
og minnast þess að vér erum allir á fyrsta ári
nýrrar framtíðar. Spaltir og prúðir skyldum vér
vera, því ekki skal nú glensöl drekka, heldr erfi
göfugra foreldra. Vér erum kynbornir menn, og
frægastir sakir ælternis. Blessuð sé minning vorra
ágætu feðra og mæðra, og gefi auðnan oss að
halda svo erfihátíð þeirra í sumar, að hennar,
þeirra og vor verði minnst hin næstu 1000 ár!
Nú er nýársdagr vors þjóðlífs, tökum nú rétt við
tímanum, stöndum nú beint fyrir ljósi hins nýja
dags, og liggjum ekki í skuggunum. Stofnum um
allt land fyrirtceki, sem getur borið ávöxt í fram-
tíðinni fyrir allt landið! Tírninn er duglegr bú-
maðr: einn eyrir verður stórfé í hans höndum á
1000 árum. Iijósi hver sveit nefnd manna til
stjórnar og umsjónar sjálfri hátíðinni, og höldum
hana í tvo daga! Iíorni konungr vor, eða krón-
prinz, skulum vér fagna honum á Dingvelli. Tökum
drengilega við sljórnarbólinni; lnin er að vísu ekki
ófullkomin, eu henni má breyta með tímanum.
Minnumst með rækt og kærleika kornmgs vors:
honum fól forsjónin á hendr að fá oss aptr meiri
hlul þeirra réttinda, sem feður vorir létu toga úr
höndum sér.
íslendingar! verum samluiga í snmar, og sýn-
um almennan, fagran, vitran og stilltan þjóðernis-
krapt: Vér búum ekki lengur á «hala veraldar* ;
þjóðirnar hafa færst nær oss, framfara-öfl tímanna
dynja upp að ströndum vorum, bergmála frá dölttm
vorum, óma ( Ijóðum skálda vorra. Það er tekið
eplir oss : orð vor og verk eru skrifuð upp, mæld
og vegin, hvorki heiðr vor né vanvirða dylst; nú
störfum vér ekki lengr ávaxtarlaust, nú þurfum
vér ekki lengr í vind að höggva; nú er uppskorið
sama dag og sáð er, móli því sem áðr var; nú er
framfarartíð, kapps- og metnaðartíð. Ileimska og
hleypidómar, deylð og sérplægni, þolist nú ekki;
þvi er steypt úr hásælum með harðstjórunnm og
hætt og hrakið út úr löndunum. Nú er dómstíð'-
í sumar sjá aðrar þjóðir hvort vér erum verðir að
heita þjóð eða ekki. Tíminn er stuttur, vér eruni
erum fámennir og strjálir, oss vanta auðæíi og
öfl ríkra þjóða. En lítið má laglega fara, og mik'
ið verðr ekki af oss heimtað. Notum að eio»
timann vel; * tímanum og af honum verðum v^r
fyrst dæmdir. Þessi sumartími flýgr skjótt og v^‘
með honurn; bráðum er hann horfinn með sjál‘a
oss inn í musteri endrininningarinnar til feðra
vorra og mæðra, en eilt verðr eptir, og það «rl1