Þjóðólfur - 04.05.1874, Qupperneq 3
103
arfar vorir, sem gjalda eiga vorar skuldir og verða
skulu dómendr vorir, og þótt einnig þeir líði undir
lok, þá er aptr eitt eptir og það eru vor verk\
þau bíða eptir nllsherjar dómi.
Að svo mæltu boðum vér grið og guðsfrið
J'fir land vort og lýð á þessu sumri!
T í M A M Ó T.
I. Sefr þú, sveinn og snót?
Senn koma tímamót,
Vaknið, ó vaknið af dvala: —
Þey ! hvaða hljómr hár?
Heyrið hvað þúsund ár
Farandi fram hjá oss tala!
Vaknið, þvf voða-gný
Varð-eldar loptið í
Hvæsa frá háfjalla rótum 1:
Hér er ei heilt um grið;
Heyrið og annan klið:
Hafið oss hrynr að fótuui.
Hvað lýisr himingöng?
Hver ræðr þessum söng?
Sitr á gullskýi Saga;
Bragi við hennar hlið, —
lilustið á fagran klið
Hrynjandi, himneskra laga!
Nú handa nýrri öld
Ný hefir sagna spjöld,
Gyðjan sér tekið f tfma ;
Hvflir við Fjölnisfeng
Fingr á gullinstreng,
Bragi, sem búin sé ríma.
Sefr þú, sveinn og snót,
Senn koma tímamót,
Vaknið, ó vaknið af svefni j
Saga við sólar dyr
Sitr og frétla spyr,
Bragi þig biðr um efni 1
II. Hvað eru höpp og fár?
Hvað eru þúsund ár?
Alvizku hlutfalla hljómr,
En hvorkl álög sterk
Öriög né kraptaverk:
Sagan er sjálfskapadómr.
Allt hefir eðlis-lög,
Aldir sem hjarta slög,
Allt er af skynsemi ofið;
Heimslcan er heimsins raun,
____ Heimskan á slysa laun, ___________________
1) Þegar þet.ta var ort, voru jarðöldar uppi.
pá er í syndinni sofið.
Forsjónin helg og há
Hefir hér jörbu á
Frjálsræði og skynsemi skapað;
Hver sem því hefir gleymt, —
Hégiljur aðrar dreymt, —
Hefir frá ákvörðun hrapað.
Upplýsing er vort líf,
Upphygging, frelsi, hlíf,
Undir Guðs alstjórnarráði;
En þótt í þúsund ár
porni ei blóð né tár
Uppsker hver eins og hann sáði.
III. Upp upp, þú, íslands þjóð!
Upp maðr, kona, jóð,
Hætt þú að horfa til baka:
Hvað sérðu? Hrygðar kjör.
Hvað sérðu? Apturför.
Láttu nú sjálf til þin taka.
Hvað sérðu á horfti’ri öld?
Heimskunnar skuggatjöld
Eltandi sannleikans sólu.
Meir vinnr menntuð hönd
Mánuð, en vorri strönd
Eymdin og þúsund ár ólu.
Hvar sérðu heilan garð?
Hvar serðu mikinn arð
pjóð! hinna þúshundruð punda? —
Ó, þú vor ættarfold,
Átt þú í dauðri mold
Arð þinna ábyrgðarstunda?
Eigi sitt óskert hrós
Allir, sem voru ljós
íslands á vetrarbraut alda;
Hann sem veit hulin rök
Hinna skal dæma sök:
Síðast mun sjálfs sín hver gjalda.
IV. Cpp upp, þú íslands son!
Ástbundna tímans von,
Áfram! og efldu þig sjálfr;
í þér býr andi stór, —
Eilífra krapta sjór, —
Enn ert þú ei orðinn hálfr!
Dunar nú himinn hár,
Hart stíga þúsund ár,
Aldirnar út frá þér renna:
Kjörin sín köld og blíð
Kynstofn þinn Ianga tíð
Þakka skal þér, eða kenna.
Dunar frá Dvalins heim,
Dísirnar fara á sveim,
Dynja nú dvergar í steinum,