Lanztíðindi - 01.02.1851, Page 5
161
spila í, hvað sem það kostar. í San-Fran-
cisco eru nú sem stendur meir en 100 þess
háttar spilahús, sem á hveiju kveldi eru full
af allra handa og allra landa kvikindum,
strokumönnum og stórbrotamönnum frá Sand-
víkureyunum, Kína, Malaieyunúm, o. s. frv.
5að er ekki svo ófróðlegt að kynna sjer þessi
spilahús á kveldin kl. 8; fyrir utan dyrnar
stendur múgur og margmenni, sem er að
troðast inn; af ákafanum að komast sem fyrst
að spilaborðinu, koma upp áflog og illdeilur;
en í stað þess að slíkar þrætur leiða annar-
staðar til barsmíðis og hnefahagga, þá stínga
menn þar með knífum og skjóta hver annan
með pístólum. Jegar menri nú loksins kom-
ast að spilaborðinu, spretta þeir frá sjer leð-
urbeltum sínum og taka þar út úr gullhnetti,
fá þá síðan forsetanum, er vegur þá og gef-
ur þeim peninga í staðinn. Siðan er farið
að spila og er það optast vant að fara svo,
að rnenn missa þar á einni rióttu í spilumallt
sem þeir í marga mánuði hafa með fyrirhöfn
og erfiðismunum unnið sjer iun í gullnámun-
um.
Fólksfjöldinn í San-Francisco eykst dag
frá degi, þvi þángað sækja menn sjóleiöis úr
öllurn áttum. jxingaö eru komnir næstum
því allir hvítir menn frá Sandvíkur eyunuiri,
frá Viti og Fiðgi, Nýa Zelandi og Siðney.
Allur þessi mannfjöldi er á surnrin í gull-
námunum, en kemur tilbæjarins undir eins og
vetrar. Á sumrin eru ekki aðrir í bænum
en verzlunarmenn, skipstjórnarmenn og þeir
sem búnir eru að safna sjer nolíkru gulli í
námunum og snúa nú aptur til að spila út
fjármunum sínum eða drekka þá upp. Jar
er mjög fátt um kvennfólk; þó er það alltaf
að íjölga oglieilirskipsfarmarafúngumstúlk-
um koma við og við frá Lundúnum og Par-
ísarborg; fyrst framanaf áræddi engin al-
mennileg stúlka að gánga þar um göturnar;
en síöan Ameriku menn fengu þar yfirráðin,
getur enginn hegníngarlaust veitt nokkurri
konu óskunda. Á ineðal verzlunarmannanna
í San-Francisco eru margir, sem áður liafa
átt ervitt uppdráttar; þángað hafa safnast all-
ir gjaldþrota menn úr Nýju-jórvík, og allir
sem vegna skulda hafa orðið að stökkva það-
an. jjjófnaðijr er furðanlega skjahlgjæfur í
San-Francisco; þó varníngur úr öllum heims-
álfum liggi þar aö kalla gæzlulaus, ber það
næstum því aldrei við, að af honum sje stol-
ið; þar þykir meira ódæði að stela en að reka
menn í gegn eða skjóta þá, og sá sem bæri
við að stela þar, yrði á vörmu spori drepinn.
Nú er þó farið að setja þar dómendur og
komast betra skipulag á rjettargángin en fyrst
framan af, því þá var dómarinn vanur að
skipa að hengja livern þann sem ákærður var
um einhverja sök, hvort heldur mikið eða
lítið var í hana varið. Nú er þar ko.min á
nokkurskonar lögreglustjórn. J>að telst svo
til, rið á hverjum degi koini 2000 manns sjó-
leiðis til Kalíforníu. Menn þekkja þar amerí-
könsku skipin á því, að skipverjar .eru vanir
að kalla þrisvar sirinum : húrra! þegar þeir
hafna sig. Daglaunamenn geta áunnið sjer
þar 150 spesíur á mánuði, en járnsmiðir og
trjesmiðir þaðan af nreira. Jar þjónar hver
sjálfum sjer, því þó rnenn eigi margar tunn-
ur gulis, verða þeir opt sjálfir að bursta stíg-
vjelin sín og gjöra ýmisleg vinnukonuverk.
Jað er lítt mögulegt að segja, hvaða varníng
bezt sje fyrir verzlunarmenn í Norðurálfunni
að senda til San - Francisco, því fjarlægðin er
svo mikilj að ekki má vita nerna þar sje
nóg fyrir afþeirri vörutegund, sem hjeðan er
send, þegar skipið loksins kemst þángað. iþó
þar sje eyðt óvenjulega miklu af sumum
hlutum, þá er aðflutníngurinn að því skapi
mikill úr öllum áttum, ekki einúngis frá
Bandarikjunum í Vesturheimi og frá Norður-
álfunni, heldur og frá Kína, Manilla ogSiðney.
En gángi ekki vörurnar út í San -Francisco,
þá er ekki hægt, að selja þær annarstaðar þar
í grend. Allt er þar enn undir heppninni
komið. I gullnámunum er nú allt með kyrð
og spekt; Frakkar, Englendíngar og Vestur-
heimsmenn grafa nú hverjir við hliðinaáöðr-
um í mesta bróðerni. Standi reka stúngin
niður hjá gröf, þá merkir það, að sú gröf er
annars manns eign «og gánga nrenn þá þar
frain hjá og leita fyrir sjer að nýjum stað.
Opt heyrist það, að óvenjulega mikið gull
sje að finna á einhverjum stað; strax þjóta
menn þá þángað, en láta sjer lynda að grafa
rjett hjá þeim, sem fyrstur tók þar gröf, en
leyfa honum ekki að stækka gröf sína.
Hvar sem menn stíga fæti sinum niður í
Kalíforníu, þá er þar gull fyrir í jörðunni og