Lanztíðindi - 10.02.1851, Blaðsíða 5

Lanztíðindi - 10.02.1851, Blaðsíða 5
169 var svo umlarleg, að honum íjell allur ketill í eld; hann ljet mig lausan og settist niður. Jeg þurfti nú að taka á öllu f>ví sem jeg hafði til að bjarga mjer úr þessari hættu, jeg gjörði mig því svo einbeittan sem jeg gatog sagði með hárri röddu : heldurðu að nokkur dauðlegur maður geti flogið gegnum lopt- straumana og látið þrumurnar ríða yfir þegar hann vill eins og jeg gjöri núna til að neyða f)ig til hlýðni? skaltu nú vita, að jeg vil frelsa f)ig úr þrældómi þeim, er f>jer hefur verið haldið í á jörðunni og flytja þig til barnanna þinna, en ef fm talar eitt orð, f)á slæ jeg j)ig með reiðarþrumu og snara þjer út í himingeiminn. Hefði einhvernvegin öðru- vísi staðið á fyrir mjer, mundi jeg valla hafa getað talað þessi orð óhlæjandi, en þau höfðu samt meiri áhryf á hann en jeg átti von á; æðið rann af augunum á honum, hann varð hissa og starði á mig. Jeg tók nú samt til annara bragða því jeg var hræddur um, að inælskan mundi ekki verða mjer einhlít. Jeg hafði tekið með mjer eina flösku af rommi í bát- inn til hressíngar og rjetti hana nú að honum og skipaði honum að súpa vel á, því þessi himneski drikkur mundi gjöra hann að nýjum marini; hann þreifaf mjer flöskuna með hinni mestu græðgi og tæmdi hana i einum teig, en eptir ofurlitla stund valt liann útaf stein- sofandi. Jegar hann var búinn að láta aptur augun, færði jeg hann í bönd á hönduin og fótum og reirði hann svo ramlega, að hann mátti ekki hræra sig, því jeg hafði nóg snæri i bátnum eins og titt er á slíkuin ferðum. j?ó að mikið væri nú að gjört, vantaði nrikið á, að jeg væri úr allri hættu; jeg var kom- inn afarhátt frá jörðu, og þokaðist alltaf upp á við. ]>ó lítiö væri, þóktimjerþað betri en engin huggun, að ef jeg dæi í þessari ferð, mundi þó áræði mitt haft í minnum, en hugs- aði mjer þó að leita mjer lífs svo lengi sem jeg gæti. Eptir nokkurn tíina fór jeg upp um þykt regnski, báturinn drakk í sig dögg- ina og þyngdist hann nú svo við vatnið, að hann tók óðum að síga og eptir skamma stund sá jeg jörðina. Skömmu síðar sá jeg borg fyrir neðan mig, það var Löven. 3?eg- ar við áttum svo sem hundrað faðma niður að húsunum, vaknaði samferðamaður minn og eirði hann því mjög illa að liggja í bönd- unum, en vest þókti honuni að vera ekki kominn upp í túnglið; hann spurði mig, livar börnin sín væri; enjeg benti honum á fólks- þyrpínguna á torginu; flittu þjer, sagði hann, svo jeg geti faðmað blessuð börnin. Að síð- ustu komum við niður á miðju torginu og lá við, að mönnum þækti kynlegra að sjá sam- ferðamann minn í böndunum þar sem hann var að kalla á börnin sín en sjálf siglíngin. Jeg gekk til bæjarstjórans og bað Iiann að hirða vandræðamarin þennan, en sjálfum mjer hefi jeg lofað að gefa mig ekki framar við loptsiglíngum og vera vandari að samferða- mönnnm hjer eptir. Oy svo skyldi hver (jjöra !1 Landsins f/af/n o;/ naudsynjar. (eptir sveitaprest). Á vorurn dögum þegar allir eru farnir að tala um landsins gagn og nauðsynjar, hefi jeg— þó fátækur sveitaprestur sje — mann- að mig upp eins og aðrir góðir menn og átt tal um ýmisleg almenníngsmálefni við skyn- sömustu bændur í sóknuin mínum. Jó sam- ræður okkar liafi enn ekki Ieiðt til neinna sjerlegra ákvarðana eða nýrra fyrirtækja hjá okkur og skjaldan verið um hin svo kölluðu. stjórnarinálefni landsins, hafa þær þó að minnsta kosti vakið góðan íjelagsanda í mín- um sóknum og eflt samtök hjá okkurí venju- legum sveitarmálefnum og hefur þetta aptur haft þekkjanleg áhryf á vehnegun sóknar- barna minna og gjört marga þeirra atorku- samari og framkvæmdarmeiri en'áður. Flestir þeirra eru mjer samdóma um, að drykkju- skapur gjöri landinu eítthvert hið mesta mein í allan máta og að landinu sje ekki viðreisn- ar von nema lionum verði eyðt. jþessa sann- færíngu hafa bindindisfjelögin vakið og hún er nú orðin að kalJa almenn; þó er livorki jeg eða sóknarmenn mínir í reglulegu bind- indisfjelagi, en við höfurn tvö seinustu árin tekið okkur saman um að kaupa ekkert brenni- 1) Saga þessi hefur í nokkur ár legið hjá mjer í handriti eptir kunníngja minn og treysti jeg því, að hann taki ekki hart á mjer, þó hún sje hjer prentuð. Ritst.

x

Lanztíðindi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lanztíðindi
https://timarit.is/publication/73

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.