Íslendingur - 10.09.1861, Síða 8
80
sáum hvílík vandræði af því mundu leiða, þá snjerum við
okkur til stórkaupmánns P. C. Knudtzom í Ivaupmarina-
liöfn og beiddum, að lrann af veglindi sínu og mann-
kjærleika vildi nú rjetta sveit okkar hjálparhönd ineð því
að gjefa henni einhvern framfærisstyrk, þessari beiðni
svaraði hann meðbrjefi dagsettu 12. þessa mánaðar, hvar
með hann gjefur sveitinni 20 tunnur af korni. Fyrir
þessa höfðinglegu gjöf vottum við honum sveitarinnar
vegna. okkar innilegasta þakklæti.
Rosinhvalaneshreppi 27 júlí 18(50.
Arni Þorvaldsson, Sveinb. Þórðarsson.
(hreppstjúrar).
Tíðarfar hefur verið ágætt allt fram á þenna dag,
og heyannir gengið að óskum, heyin hjer syðra eru all-
staðar afbragðs góð og sumstaðar, einkum fyrir austan
fjall, í mesta lagi. Fiskiafli er við og við nokkur, og hef-
ijr nú um stund helzt aílast nokkuð af háfi og stútungi.
— Póstslcipið fór hjeðan 14.ágúst og var 6 daga norð-
ur til Akureyrar, því það varð fyrir norðanveðri og lá um
hríð á Dýrafirði. Af Eyjafirði mun það hafa farið bráð-
um eptir hinn 20. f. m. þeir Dr. Grímur Thomsen og
Englendingarnir, sem norður fóru Sprengisand, voru komn-
ir á Eyjafjörð og munu hafa farið utan með póstskipinu,
höfum vjer þetta eptir lausakaupmanni einum, er sjóveg
kom hingað af Eyjafirði og seldi Fischer kaupmanni vöru-
leyfar sínar, þar á meðal baunir og rúg, bvorttveggja góða
vöru, rúgið á 9 rdd. tunn., baunir á lO rdd.
— Þjóðverskir ferðamenn 5 að tölll komil hingað 1. þ.
mán. frá Noregi, og ætla að skoða Ileklu og Geysi, eigi
vitum vjer nöfn þeirra allra, en talinn er prófessor Carl
Vogt þeirra helztur. J»eir eru náttúrufrœðingar.
— þeir Tsak Sharp og Ásöjörn Kloster, »kvekararnir«
sem vjer áður höfum minnst á, liafa farið lijer víða um
land í sumar og haldið bjer og hvar roeður) sumstaðar
fyrir fjölda manns, og hefur mönnum alstaðar geðjast vel
að þeim, enda eru þeir báðir sagðir mestu ágætis menn.
Fyrst fóru þeir austur í Árnessýslu. þaðan norður í land
allt til Eyjafjarðar og út í Grímsey, þaðan vestur sveitir,
og komust vestur í Dali og út í Stykkisliólm, og siðan
hingað suður. Eptir það lögðu þeir enn af Stað austur
á sveitir, og eru nú þar eystra. Skólapiltur Matthías Jó-
kumsson hefur verið með þeim í: ferðum þessum, sem
túlkur þeirra, og lagt út rœður þeirrafyrir almenningi jafn-
óðum og hinir hafa flutt þær. Alenn rnega ekki ímynda
sjer, að menn þessir lesi rœðurnar upp af blöðum, eins
og hjer á landi tíðkast, heldur tala þeir allt upp úr sjer
og af vörum fram, eins og andinn blæs þeim í brjóst í
hvert skiptið.
— Herra yfirkennari Björn Gunnlaugsson er nýkominn
austan frá þíngvöllum, er liann hafði dvalizt þar yikutíma
til þess að mæla þar hinn forna alþíngisstað, búðastœði
öll, afstöðu o. s. frv., mun þetta starf lierra yfirkennarans
að líkindum síðar meir koma almenníngi fyrir sjónir, því
vjer efum alls eigi, að það verði gjórður reglulegur upp-
dráttur vfir þenna nafnfræga þingstað, sem hver íslend-
ingur ætti að sjá. Sigurður málari var og í þessari för
með herra B. Gunnlaugssyni. Ileyrt höfum vjer að starf
þetta sje gjört fyrir fornfrœðafjelagið.
— Fyrir hjer um bil viku síðari fór Pjetur Ottesen á
ytra-IIóími í hákaílalegu vestur á sömu stöðvar, sem hann
fjekk hákallinn í vetur er var, og fjekk 11 hákalla mcð
10 tunnum lifrar. Síðan hefur ltann gjört aðra tilraun til
að fara í legu, en sökum ógæfta ekki fengiö nema 1 liá-
kal. Tvenniraðrir Akurnesíngar fóru einnig um þær mundir
í legu en fengu lítið. þ. 7. þ. m. lögðu að sögn 4 skip
af stað frá Seltjarnarnesi, þégar menn heyrðu fregnina af
Ottesen, en þá gjörði sunnanátt og sjávarylgju, svo þeim
notaðist ekki að liggja, komu því daginn eptir, og höfðu
ekkert fengið. En vel er þó að slíkt er reynt, og sýnir
það meiri áhuga en verið hefur um tíma nú að undan-
förnu.
— það er ný lunda að faktor G. Thorgrímssen hefur
að sögn keypt um 300 nauta, látið slátra þeim, og ætlar
að senda kjötið utan með Ingólfi, það er skúta hjer um
bil 14 lesta, er Eyrarbakkakaupmenn eiga og á bráðum að
fara til Iíaupmannahafnar. Sagt er að þeir hafi gefið frá
8—10 sk. fyrir 1 pnd. af þessu nautakjöti. Vjer geymum
oss að segja nákvæmar álit vort um þetta fyrirtœki; það
hefur að vísu sína kosti, en það hefur og í för með sjer
ókosti, sem, eins og nú stendur á verzluninni eru mjög
verulegir.
Ang-Iýsing-ar.
Presturinn sjera þorsteinn Jónsson á Grænavatni liefur
til prestaskólasjóðsins geflð 40—fjörutíu-ríkisdali silfurs,
fyrir hverja gjöf jeg hjer með votta lionum innilega þökk.
Iíeykjavík 16. d. ágústm. 1861.
P. Pjetursson.
þeir, sem fá vilja ljósmyndir (Photographie) geta feng-
ið þær hjá mjer, eptir að póstskip er komið næsta sinn
og skal jeg leitast við, að leysa myndirnar svo af hendi,
að hlutaðeigendum líki sem bezt. þeim, er kynnu að
vilja, gefst einnig kostur á að læra af mjer að taka þess-
ar Ijósmyndir, bæði «Positive« og »Negative«.
Reykjavík 2. agúst 18(5!.
G. Guðbrandsson.
Höldur, búnaðarrit norðlendínga og austfirðínga.
Utgefandi kand. Sveinn SMlason. Prentað á Akureyri 1801.
Fæst til kaups hjá prentara Einari þórðarsyni í Beykjavík,
og kostar 48 sk. þeir sem kaupa 5 expl. í einu, fá það
sjötta ókeypis. Yjer munum síðar í blaði voru, minnast
á rit þetta. Frá Kaupmannahöfn er nýlega kominn bæk-
língur, sem kallaður er, Sagan af Heljarsló ðarorustu,
er kostar 28 sk.; og fæst hjá sama manni sem Höldur,
og með sömu kjörum; þessi bæklíngur er samin af hinu
alkunna skáldi, kand. Benidikt Gröndal.
GÚgf3" Yerzlunarþjónn þ. S. Guðjohnsen á Seyðisfirði af-
hendir Íslendíng, og tekur við borgun fyrir hann í stað
J. Blöndals.
Prestalcöll.
Yeitt, síðan seinasta blað vort kom út 13. f. m. Kol-
freyjustaður, (laust fyriruppcjöf skólak. Jens Sigurðssonar)
sjera Hákoni Espólín á Stærra-Árskógi. — S. dag Desja-
mýri, sjera Finni þorsteinssyni á þaunglabakka.
Óveitt: Stærri-Árskógur í Eyjafjarðars., að fornu mati
10 rd. 1 mrk 4 sk. — þaunglabakki í þíngeyjarsýslu, að fornu
mati 12rd. omrk lOsk. — Skeggjastaðir áLanganesströnd-
um í Norður-Múlas., að fornu mati 5 rd. þessi brauð eru
auglýst 15. f. m.
Útgefendur: Benidiht Sveinsson, Einar Þórðarson, Tlalldór Friðrihsson, Jón Jónsson Hjaltalín, Jón Pjetursson.
ábyrgtaruiaW. Páll Pálsson Melsteð, Pjetur Gudjolmson.
Prentabur [ prentsmiíijuiini í Ueykjavík 1861. Einar þúrbarson.