Íslendingur - 08.01.1863, Side 5
125
lialdið fast, hangið fastura hálsinn, stelið vopnum manna
yðar frá þeim! Enginn Irlendingur stenzt sameinaður
fortölur trúarinnar og konu sinnar. Sá sem kynni að
blaka konu sína hendi, er hún væri að fá hann til að
verða kyrran og friðsaman, yrði sjálfsagt óverðugur þess,
að heita blessað barn Patricks hins helga». |>að er eitt-
hvað skrítið við þetta, það eru næstum einhver sœt hjóna-
bandssmyrsl á ávarpi kard. Hann þekkir sína menn, það
vantar ekki, og veit, hvernig hann á að ávarpa þá. I
saxnesku eyrunum okkar hljóma þessar raddir kímilega;
nú, það verður að vera okkar ólán. Ef ímyndunarafl vort
væri fjörugt og tilfinningar vorar næmari, þá gætum vjer
líklega sannfœrzt um, að það sje alls kostar rjett, að koma
Celtum til að trúa því, að þeir leggi á sig dœmalausa
sjálfsafneitun, þegar þeir ekki koma af stað stórróstum og
allri óreglu. f>að er annars gleðilegt og þakklætisvert, að
raddir úr þessum áttum eru nú farnar að hvetja menn
til friðar og reglusemi, í staðinn fyrir að gefa út brennu-
skipanir og hengingarboð. Rödd kardínálsins hefur nú
loks haflzt til að prjedika frið; hann var búinn að þegja
undarlega lengi. Ávarp hans kemur œði-seint; því hann
hefur takmarkalaust vald yfir Irlendingum þeim, er í bœn-
um búa, en þó Ijet hann þá œða frá einni róstunni til
annarar, og fjekk nú fyrst málið, þegar lögreglustjórnin
var búin að reisa öflugar skorður gegn óróanum. J>að
er engin ógnardyggð að vera undirgefinn, þegar menn
eru knúðir niður af hinum yfirsterkari. Að endingu skul-
um vjer láta kard. vita, að Englendingar reyndar eru
langgæfir, en stundum verða þeir ofsa-reiðir; og nú er
kominn tími til að láta hinn fámenna óróaflokk biskups-
ins vita, að þolinmœði vor er að þrotum komin við bless-
uð börnin hans, sem hann lætur hafa róstur, lagaleysi og
óskunda í frammi, meðan öllu er óhætt, en bendir þeim,
þegar taka á í lurginn á þeim».
Yið þetta standa nú rimmur þessar, sem ekki er lík-
legt að sjeð sje fyrir endann á enn þá, því ekki skortir
cesingar báðu megin. |>að er hörmuleg útreið, sem páfa-
stjórn fær í blöðum Englendinga, og skapraun er það
fyrir Napóleon, að heyra sífelldan sóninn um, að hann ó-
virði sig og þjóð sína með því, að halda upp úr höfði
páfans. í háðblaði einu, er nefnist »Punch«, sá jeg hjer
um daginn allkýmilegt málverk af þeim 3 kunningjunum,
páfa, Napóleon og Victor Emanúel. Blað þetta hafði ný-
lega flutt mönnum þá frjelt, að drottning I'rakka hefði
sent páfa criuolinu (klukku-þön?), og í fyr tjeðu málverki
er liann útiits eins og afgömul kerling, og situr í hnipru
á járnbrautar-station i þoku; en þeir konungarnir eru i
gerfi járnbrautarþjóna (burðarkarla), og eru að rífast um
kerlinguna og farangur hennar, þangað til Victor segir:
»Ó, nei, Ludvig, láttu nú vera; hafðu gætur á gömlu kon-
unni, jeg skal hirða föggur hennar«. Fleiraman jeg ekki
að segja yður af málum Garibalda og páfa, og því, er
stendur í sambandi við þau.
Drottning Franz konungs afNeapel hefurtekið nunnu-
blæju og gengið í klaustur. llún flúði fyrst frá manni
sínum (góðmenni, sem blöðin kalla) til Miinchen, og það-
an fór hún aptur huldu höfði í nunnuklaustrið í Augs-
burg, móttlætt og dauðleið á lífinu.
Styrjöldinni í Vesturheimi vindur voðalega á fram.
J>ar eru stórbardagar háðir næstum daglega, og veitir
ýmsum betur. Norðanmenn hafa verið nokkuð heppnari
í september, en framan af sumrinu, og hafa þeir unnið
nokkra bardaga. En enn þá er langt frá, að skriðið sje
til si(arar með þeim. Forseti norðanmanna, Abraham
Lincoln, hefur nú gefið út hátíðlega yfirlýsingu um, að allir
svertingjar skuli frjálsir eptir næsta nýár. Ilúast menn
nú við fregnum um þrælaupphlaup á hverjum degi, og að
styrjöldin verði næsta ár samblandaður borgara- og þræla-
ófriður, og þykir ekki ólíklegt, að illri þrumu kunni að Ijósta
niður á suðurmenn úr þessu yfirlýsingarskýi Lincolns.
Cirkasiumenn hafa gjört út sendimenn til Viktoriu
drottningar og beðið hana ásjár gegn hinni guðlausu
grimmd Rússa, sem nu ætlar að gjöreyða landi þeirra.
Ilafa Cirkasiumenn orðið að síga undan hinum rússneska
hervargi og upp til fjalla, en Rússar brenna byggðina hver-
vetna niðri í dölunum, og kornakra þeirra með. Lands-
menn hafa því ekkert hœli nú orðið, nema hungurdauða
uppi á fjöllunum. Ekki vita menn, hvernig Viktoria eða
stjórn hennar tekur máli þessu. En svo vel eru Eng-
lendingar að sjer í landafrœði, að þeir vita, að Asia er
opin fyrir Rússum, þegar Cirkasia er unnin. En í Asíu
ræður Viktoría yfir 150 millíonum manna, sem allir hafa
verið í uppreist ekki alls fyrir löngu og friður þeirra ó-
tryggur enn þá. Rússar geta því orðið óþægur granni
Englendinga þar.
Viktoría drottning hefir nú verið lengi yfir í f>ýzka-
landi með börnum sínum. Hefur hún verið að sjá um
fasteignir manns síns sáluga og ráðstafa þeim ; svo hefur
hún líka verið að trúlofa son sinn og Princessuna af
Danmörku, og margt fleira mun gjörastí þeirriferð merki-
legt.
Hjer var sumar fremur kalt, ailt þangað tilundir upp-
skerutímann, þá brá í hita og góðviðri, og hefur nú upp-
skera orðið mjög góð hjer, og jarðeplavöxtur frábærlega
góður. J>etta góðæri kemur sjer vel, þvi hjer er sumstaðar
dœmalaus neyð meðal fólks. I þeim hjeruðum, þar sem
baðmullarvinnan var mest, áður en styrjöldin hófst fyrir
vestan haf, erneyðin mest; er það einkum hjeraðið Lan-
cashire, er harðast er haldið af þessum bágindum ; ertalið,
að þar sje 200,000 bjargarlausra manna, sem hú verður
að ala á samskotafje. J>að er ótrúlegt, hvað mikið safn-
ast handa þessum aumingjum, og ótrúlegur er sá áhugi,
elja og þrek, sem manngcezka Englendinga sýnir í hjálp-
semi sinni við þá. Öll tœkifœri eru notuð til þess, að
draga saman skildinga handa þessum hungurskepnum.
Einn vjelasmiður, sem fundið hefur upp þvottavjel, sem
þykir ágætt verkfœri til heimilisbrúkunar, hefur heitið Lan-
cashires-búum þriðja hluta verðs þessara vjela, ef menn
verði búnir að panta 20,000 slíkar vjelar hjá sjer -áður
en tími iðnaðarhallarinnar er úti. Hver vjel kostar að
eins 30 sh. eða hjer um bil 13 rd. 3. mörk. Seinast
þegar jeg var í höllinni 3. okt, gekk ve! með sölu þeirra,
og kom hver pöntunin á fœtur annari, og er ekki ólíklegt,
að fátœklingarnir verði svo heppnir, að fá þar til vetrar^
bjargar 10,000 £ eða um 90,000 rd. Nú er verið að
koma þeirri uppástungu í kring, að opna skurðina og
göngin, sem verið er að grafa fyrir járnbrautir þær, er liggja
eiga undir jörðunni gegnum Lundúnir. Er stungið upp á,
að láta hvern, sem kemur niður í göng þessi, borga 1 d
(= rúma 3 skildinga danska) fyrir gamanið, sem hann
hefur af að sjá öll þessi óskapaverk. Menn ætla, að það
geti dregizt saman í margar þúsundir punda, er þannig
berst hinum nauðstöddu Lancashiresbúum. Engir menn
hafa gengið betur fram í þessari hjálp atimingjanna, heldur
en Qvækarar. J>ar sem þeir ekki geta fengið peninga,
þar safna þeir brúkuðum fötum og mat, og eru þannig á
stöðugri rás úr öllum áttum peningar, fatnaður og mat-
væli til hinna nauðstöddu manna í Lancashire.