Íslendingur - 25.06.1864, Page 1
FJÓRÐA ÁR.
1864.
25. júní.
Nr. 1.
Landsmenn góðir!
Öllu sem til er á jörðunni og skaparinn hefir skap-
að, er svo háttað, að það þarf hvildar við. Ekkert afi,
nema kraptur hins alvalda, sem aldrei sofnar, getur verk-
að hvíldarlaust. Grösin grúfa sig niður á næturnar, og
og þau, sem ekki eru upprætt að rótum á haustin, fölna
og verða að hvílast. Sumarfuglinn, sem erfiðar óþreyt-
andi liðlangan daginn, fellir loks flugið, og leitar hvíldar
um miðnættið, í sama mund sem ákafamaðurinn hnígur
aflvana frá orfinu og hvílist. Mannlegur andi, sem er
iðjusamastur alls þess, ervjer þekkjum á jörðunni, verð-
ur að sofa um hríð, þar til hann ervakinn af þeim, sem
ætíð vakir. Svo reynist það um hvern mann sjerstak-
lega og sjerhverja þjóð, allan heiminn, og allt'sem er
til. Eitt af því, sem án efa fjekk tilveru í heiminum,
er »íslendingur«; mörgum þótti hann efnilegur og álit-
legur unglingur. Ilann vann um hríð, og vildi, að vinna
sín yrði nöfnum sínum að sóma og gagni, en hann
þreyttist og varð að hvílast sem aðrir, og voru til þess
eðlilegar orsakir, er vjer þurfum ekki eöa hirðum um
hjer að greina. Sumir menn hafa sagt hann sálaðan,
cn það eru þeir einir, sem ekki þekkja einkenni sofanda
eða þeirra manna, er í ómegin falla, eneru lífgandi. En
nú er «hlendingur« vakinn, og vill hann sem áður reyna
til, eptir því sem hormm endist líf og kraptar til, að
vinna yður, Islendingar! og fósturjörðu vorri sóma og
gagn. Og vjer, sem nú gjörum hann úr garði, skulum
í fám orðum gjöra yður, Iandsmenn vorir! grein fyrir
útbúnaði hans og stefnu þeirri, er vjer viljum að hann
hafi. það er þá fyrst að segja, að vjer viljum vanda
svo pappír, prentun og orðfæri á ritinu, sem oss er
unnt og sómasarnlegt sje. Vjer viljum selja yður »/s-
1ending« með svo hæfilegu verði, sem oss er unnt að
verða skaðlausum af, en ekki ætlumst vjer til neins
gróða; höfum vjer því ákveðið, að hvert ár íslendings,
eður 12 arkir, svo sem svari 1 örk í hverjummánuði, kosti
1 rd., en að þeir, sem selja hann fyrir oss, fái hvert
sjöunda exemplar ókeypis, ef þeir standa í skilum um
borgunina. Vjer tökum á móti öllum auglýsingum, er
menn vilja birta láta, hvort lieldur þær snerta sölu á
jörðum, húsum og öðrum hlutum, og öllu öðru, er menn
vilja birta1, og tökum vjer þær í »íslending« ókeypis af
kaupöndum hans, ef þær eru ekki lengri, ensemnemur
6 til 8 línum í dálki. En aðrir menn, sem ekki kaupa
»íslending«, geta birt auglýsingar sínar i honum, ef
þeir bofga 2 skildinga fyrir línu, eður helmingi minna
en ritstjóri þjóðólfs tekur fyrir samkynja auglýsingar.
|>á er að ræða um stefnu »íslendings«, og hún er
sú, að vjer viljum, að hann ræði um landsins gagn og
nauðsýnjar, og eru þær margar. Vjer viljum með stilli,
en einurð ræða um samband Islendinga við Dani og
stjórnarskipun Ýora. Um alþingi viljurn vjer ræða, fram-
ferði þess og fyrirkomulag, Á livers kyns innanlands-
stjórn viljum vjer minnast, ekki til þess eingöngu, að
rífa allt það niður, sem er, heldur til hins, að leita ráða,
hvernig byggja má betur. Sjerhvað, sem er gamalt og
gott, höfum vjer í heiðri, og þjóðerni vort metum vjer
mest. Ekki viljum vjer skjalla alþýðu af ábatavon. »Sá
er vinur, sem til vamms segir«, og því ætlum vjer að
láta eitt ganga yfir alla almenna galla, án þess að skerða
siðsemi og velsæmi, og meiða nokkurn sjerstakan rnann.
Ágrip af útlendum og innlendum frjettum ætlum vjer að
láta kaupendur fá, en »Islendingur« á að segja það eina
í því efni, sem er áreiðanlegt; viljum vjer eiga oss góða
menn að til þess, og veita þeim þakkir fyriróg þóknan.
Jafnfraint þessu viljum vjer, að íslendingur, fái hann vöxt
og viðgang, hafi meðferðis kvæði og vísur, gamlar og
nýjar, mansögur, frumritaðar og snúnar úr útlendum
málum. Vjer höfum hreinskilinn vilja, en vjertreystum
ekki að 'óllu eigin hyggjuviti. Vjer viljum því biðjaalla
góða, skynsama og menntaða íslendinga, sem að vísu
eru margir til, þó þeir hingað lil ekki hafi allir neytt
sín, að styrkja fyrirtæki vort, sem bróðir styrkir bróður
1) Til leiibeiningar alþýbumömmm látum vjer þess getife, ab
þa¥) er eiiíungis vissar tegundir af auglýsiugnm, sem hií) opin-
bera samkvæmt gildandi lögum er skyldugt at) láta birta í blöíium,
sem stjórnin beflr ákveíiií) aí) auglýstar skuli í þjiíbólfl, svo sem
skiptarjettar iimkalianir, auglýsingar um opinber söluþing eptirdómi
e%ur rjettarákvörímn, almennar stofnnr og annab því um líkt, en þar
á möti eru aliar atirar auglýsingar bæ?)i fráþví opinbera og einstökum
inönnum, eigi bundnar vib neitt víst blaí), heldur miklu fremur öll
blöí), svo þær nái til sem flestra.
1