Baldur - 02.02.1870, Page 8
I
8
við og leifc upp fyrir sig, «það er einnig gott, að eitthvað
»hangi svo hátt, að hver maður nái því eigi».
[í'ýtt. Iiitstj.]
FJÁRKLÁÐINJN. — Bæði í Ölfusi og á Vatnsleysu-
strönd er nú kláðavart orðið, og þessi meinvættur er þá
þannig ‘enn með lífsmarki í landi voru, en hve lengi landið
vill ala hana, það vitum vjer eigi enn þá, en líklegt er,
eptir því sem menu þekkja í því máli áður, að það geti
orðið langa stund enn. Það er eins og Sunnlendingar sjeu
húnir að taka slíku ástfóstri við hann, að þeir geti ekki
án hans verið. Verði þeim að góðu! Þetta er ekki of-
mælt, það hafa Norðlendingar sýnt. Reynslan er hjer svo
talandi vottur, að um þetta er ekki orðum eyðandi.
VERZLUN. — Af norðurlandi er alls staðar mjög illa
af látið verzluninni. Saltleysið kemur þar mönnum meira
en illa. Á Akureyri er verðlag svo (eptir «Norðanfara») 7.
des.: Rúgur lO'/a rd., baunir 13 rd., grjón 15 rd., hálf-
grjón 15 rd., kafö 36 sk., sykur 28 sk., salt 18—24 sk.
kúturinn (1 tunna 3 rd. 36 sk. til 4 rd. 48 sk.); en mun-
aðarvaran: neftóbakspundið jafndýrt og einn árgangur
«Baldurs», rullan á dal og potturinn á 24. — íslenzkar
vörur: Vorull (hvít) 28 sk., haustull 18 sk., tólkur 16
sk.; lpd. kjöts á sláturtíð 7 mrk. .— 7 mrk. 8 sk., gærur
3—5 mrk. — Hjer í Reykjavík skortir nú sykur, steinolíu
(hefir skort síðan í október), pappir (nema prentpappír, póst-
pappír, og dýran býkúpupappír), almanök (sem vant er á
hverju ári), edik og líklega margt fleira, en vjer vitum af.
Munntóbak mun vera nálega upp gengið.
AFLABRÖGÐ. — Eptir því, sem vjer höfum frjett
norðan, hefir á Eyjafirði verið allgóður afli svo lengi, sem
vjer höfum spurnir af haft, þ. e. a. s. til þess viku af des-
ember, enda verið veitt upp um ís, eptir að lagði pollin á
Eyjafirði innst. Á Hrútafirði afiaðist sæmilega í haust, og
undir Jökli slíkt hið sama. Þá er frá er skilið Akranes og
Miðnes, þá hefir verið ágætasti afli um allt hjer syðra, eink-
um hjer um nesin, Vogana og í Njarðvíkum (hausthlutir
frá 6 til 13 hndr.). Síldarafiinn í Ilafnarfirði hjelzt enn á
föstudaginn (21. f. m.), og hefir verið nægra af henni, en
notað yrði, og vottar það eigi ofdugnað landa vorra, enda
er það einkenni margra sjómanna á Suðurlandi, að sœkja
og nota sjóinn sízt, þá er það er til nokkurs ; er þetla tal-
að til þeirra einna, er það eiga, en eigi hinna, sem og
eru margir, sem dugiegri eru. Suður-«túrar» í fyrra
mánuði hafa gefizt til þessa afbragðslega, og hafa ýmsir
hlaðið aptur og aptur. ,
TÍÐARFAR. — Úr Múlasýslum frjettist, að frá miðj-
um október væri búið að ganga stórharðindi og snjór,
svo að hvervetna væri haglaust, þá í stöðugan mánuð
(til 17. nóv.), og illa á horfzt með björg og byrgðir bæði
fyrir roenn og skepnur. Úr Úingeyjarsýslu, Eyjafirði, Skaga-
firði og Húnavatnssýslu var sama að frjetta þá fram í des-
ember (úr Húnavatnssýslu frá því í fyrra mánuði). ís
kom á Húnaflóa á jóiaföstu; hefir hann eigi legið við frá
því í sumar, heldur er það víst nýr ís, sem sjá má af því,
að bjarndýr hafa gengið á land af honum. Upp úr sól-
stöðunum fór að hlána hjér, og hefir verið við og við frost-
laust síðan eða frostlítið, og nú að líkindum víðast auð jörð.
HVALUR rakst á land laugardaginn hinn 29. f. m. á
Ilafnar-skeiði í Ölfusi. '
SKIP kom í fyrra dag (síðasta d: f. m.), að nafni «Lu-
cinde», frá Englandi; hafði það fyrst komið hjer undirland
í haust, en hrakið þá suður í höf; í annað sinn komst það
undir land fyrir jól, en hrakti þá til Englands, en hafðinú
verið 11 daga þaðan hingað. Ull hafðiverið í beztagengi og
saltfiskur i fremur góðu verði, 36 rd., harðfisknr yfir 40 rd.
Friður allsstaðar, að því, er frjetzt hefir. Blöð, dönsk frá nóv.,
og ensk frá í janúar, höfðu komið með því, en eigi höfum
vjer enn sjeð þau nje frjett neitt úr þeim, nema hvað korn
kvað fallið í verði, rúgur 6 rd., bygg 5 rd. og hafrar 3 x/2—4rd.
Skip kom á ísafjörð í lok ársins, og að sögn er Stykk-
ishólmsskipið og komið.
AUGLÝSINGAR.
Eptir fengnu leyfi háyfirvaldsins, verður «TOMBÖLA»
iðnaðarmannanna í Reykjpvík, haldin 25. og 26.
febrúar þ. árs. E. Pórðarson.
Þessi árgangur «Baldurs» kostar 4 í' 8/3. Iiaupendur
borga fyrir fram hvert missiri (1. d. janúarm. og 1. d. júlím.),
og verður blaðið þeim einum sent, er borga í rjettan tíma.
Þetta næsta missiri verður að borgast með fyrstu ferðum
úr hverjum stað. — Borgunin greiðist sem fyrst til hérra
prentsmiðjustjóra Einars Þórðarsonar.
— Ritstjóra «Baldurs» er venjulega heima að hitta hvern
dag kl. 4—6 e. m. og opt fyrir kl. 2 f. m.
— Jeg leyfi mjer að biðja alla þá, sem eru á ferð hjer úr
nærsveitunum, að koma til mín og taka hjá- mjer «Báldur»,
þegar hann er á ferðinni. Bitstj.
— í næstkomanndi fardögum fæst hjá undirskrifuðum
jörðin Stóri-JIólmur í Leiru til ábúðar og kaups, ef-vill,
víst að %, og verða þeir, sem vildu fá nefnda jörð, að
halda sjer til mín um alla skilmála, hvort heldur til sölu
eður ábúðar. Meilbastuíium, 25. desembor 1869.
Árni Porvaldsson.
PRESTAKÖLL.
Veitt: 7. des. Iíyrkjubœjarkl. á Síðu sjera I'. Pálssyni á
Prestbakka.
17. s. m. Blöndudalshólar sjera M. Gíslasyni á
Bergstöðum.
Óveitt: Kálfafell á Síðu, metið 92 rd. 3 sk. Augl. 7. des,
Bergstaðir með annexíunni Bólstaðahlíð, metið 259
rd. 40 sk. Augl. 20. s. m.
Tjörn í Svarfaðardal með annaxíunum Urðum og
Upsum, metið 362 rd. 68 sk. Augl. 29. s. m.
Ritstjóri: J ón ÓJafss on. \ Skrifstoia Austurvelli J/%8.
Prentari: Einar Pórðarson.