Heilbrigðistíðindi - 01.05.1872, Blaðsíða 2

Heilbrigðistíðindi - 01.05.1872, Blaðsíða 2
34 í því; þvl að nú er það fullsannað, að ekkerí gel.ur veríð skað- legra, til að valda almennri taugaveiki, en rotnun af dauðra manna líkum, hvort heldur efni þessi komast inn í líkamann með andardrættintira, eða með rieyzluvatninu. Það hefur jafn- an sýnt sig, að þegar kirkjugarðar hafa verið grafnir upp, hefur heilsu fólks í nágrenninu verið hætta búin, og þannig er það mælt, að pestin sjálf hafi öndverðlega á 18. öld komið upp á Ungralandi, þar sem menn höfðu graflð upp gamlan kirkjugarð. Á síðari tímum er það alveg af tekið, að hafa kirkjugarða í borgum inni, eins og áður tíðkaðist, heldur liggja þeir hvervetna góðan spöl fyrir ulan bæina. l*á þyrftu menn og að gæta þess við öll bæjarstæði að bæirnir stæðu eigi of langt frá góðu vatnsbóli, og að vatnsbólið, hvort sem heldur er lækur, uppspretta, eða brunnur, lægi svo, að engin rotnuð efni eða óhreinindi næðu að komast ofan í það, eða vatnsæðar þær, sem liggja að því. Jeg þekki ónefnd- an bæ, og jafnvei bæi, eigi mjög langt bjeðan, þar sem vatns- bólinu hagar svo til, að eigi er annað auðið, en að ýms ó- hreinindi, bæði úr fjóshaugnum og jafvel hlaðforinni, verði í rigningatíð að komast niður í vatnsæðarnar. Alstaðar, er jeg hef orðið var við þetta, lief jeg varað fólk við því, og hafa allir tekið vel undir það, því að slíkt er, eins og gefur að skilja, gjört af vankunnáttu, en eigi af því rnenn vilji skaða sjálf- an sig, eða aðra. Það eru eigi eindæmi hjer á íslandi með þessa óvarkárni, því að slíkt á sjer meir og minna stað i öllum löndum, eins og rit síðari tíma eðlisfræðinga sýna og sanna, sem ávallt eru að berjast mót þessu. Menn verða að fá meiri eða minni vitueskju um skaðnæmi þessa, áður en það verður fullkomlega lagað, eins og vera bæri; en það er lirein og bein skylda allra lækna, að vekja athygli manna á þessu, og fá því hrundið í lag, svo framarlega sem kostur er á. Flestir eða allir menn eru svo gjörðir af náttúrunni, að þeim er lítt getið um allt sóttnæmi, en mönnum hættir allt of mikið við, að einbiína á þá trú, að sóttnæmi geti að eins komið af sóttveikum mönnum, en um það má allopt segja, eins og skáldið sagði: «Maður líttu þjer nær, iiggur í götunni steinn».

x

Heilbrigðistíðindi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heilbrigðistíðindi
https://timarit.is/publication/94

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.