Heilbrigðistíðindi - 01.05.1872, Blaðsíða 6
38
kemst á fjárrækt vora, fyr en dýralækningafræði, og þá eink-
nm sá hlnli hennar, er lýtur að meðferð (Sundhedspleie) og
uppéldi penings (Opdræt), verður almennt þekkt hjer á landi.
En það verður eigi fyr, en hingað eru komnir dýralæknar að
staðaldri; því eigi er til að hugsa, að þess háttar geti komizt á
í einu vetfangi. Allt nýtt mætir hjer mikilli mótspyrnu. Fast-
heldni þjóðarinnar við hið gamla og sjergæðingsskapur ein-
stakra manna, er gjörast leiðtogar almúgans, veldur því, að
ekkert nýtt, er til framfara heyrir, kemst á fyr en eptir margra
ára tíma; en það kemst þó á smámsaman, þótt menn eigi taki
almennt eptir því, eptir þvi sem hin gamla kynslóð líður undir
lok og önnur ný kynslóð rennur upp, sem er móttækilegri
fyrir allt nýtt, — ef að eins þeir menn, sem berjast fyrir fram-
förunum, standa fast í stöðu sinni og þreytast eigi eða Iáta
hrekjast fyrir andviðri hinna illgjörnu eða sjergæðingslegu mót-
stæðinga. — En það á eigi við hjer, að fara lengra út í þetta
mál, enda yrði það of langt, ef rækilega ætti um það að fita,
til þess, að það gæti komizt að í «Heilbrigðistíðindunum».
Annars verður eigi að svo stöddu byggt neitt verulegt á
skýrslum þeim, sem jeg hef getið um hjer að framan, hvað
sjálft bráðafárið áhrærir; því til þess þarf samanburð
frá fleiri árum. Almenningur hefur heldur eigi gagn af
þess háttar samanburði; hann er eingöngu fyrrir lækningafróða
menn.
Eins og sjá má af skýrslunum, hefur pestin verið skæð-
ust í suðurumdæminu í fyrra, en aptur munum vægari í hin-
um umdæmum landsinS. En eptir því, sem jeg hef heyrt, þá
mun hún í vetur hafa verið einna skæðust í norður- og aust-
ur-umdæminu. Eptirtektavert er það, að í Þingeyjarsýslu hafa
eigi fatizt nema 17 kindur úr pestinni, enda er þar vetrar-
ríki allmikið og, eptir því, sem jeg þekki til, einna bezt fjár-
rækt á öllu landinu. Flestum skýrslunum ber líka saman um
það, að þar sem bezt er með fjeð farið, þar gjörir fárið minnst
vart við sig. — Meðul hafa fáir reynt móti veikinni, og þá með
litlum árangri, en aptur hefur mörgum gefizt vel, að gefa fjenu