Heilbrigðistíðindi - 01.05.1872, Page 8
40
miuni í fyrra, mtini draga mikið úr pest þessari; en mjer hef-
ur heldur aldrei dottið í hug, að kalla það alveg óbrigðidt
meðal móti bráðafárinu. Að þessari saltbrúkun lýtur einnig
það, að salta heyið handa fjenaði, eins og hjer að framan er
drepið á, og vil jeg ráða mönnum til þess.
Ekki eingöngu til þess, að menn hafi um fleiri meðul að
velja, en þau sem talin eru, heldur og af því, að jeg álít það
gott meðal móti veiki þessari, ætla jeg hjer að nefna nýtt lyf,
sem bæði manna- og dýralæknar á seinustu tímum eru farnir
að brúka móti líkri veiki og bráðafárið er, og hafa hrósað mikið.
Meðal þetta er Phenyl- eða Karbolsýra (acidum carbolicum),
sem upprunalega er litlaus í nálmyndaðri kristallslögun, en
rennur við 30° hita (Cels.) og uppleysist hæglega í cether, en
treglega í vatni. Karbolsýran brúkast þannig, að maður hristir
t lóð af henni (uppleystri í dálitlu af æther) saman við 1 pott
af vatni; af þessu á maður að gefa hverri kind eina matskeið á
viku hverri, meðan pestartíminn er sem verstur, og ef fárið
fer að brydda á sjer, þá veitir eigi af, að gefa það annan-
hvorn dag eða á degi hverjum. — Þar eð karbolsýran er golt
sóttvarnarmeðai, þá er húrr einnig höfð til að hreinsa loptið
og eyðileggja pestarefni. Hún er þá brúkuð á þann hátt, að
maður stökkur karbolvatni (til þeirrar brúkunar: 1 lóð karbol-
sýru til 3 potta af vatni) um allt fjárhúsið að innan og jafnvel
á sjálft fjeð. þetta ætti maður að ítreka opt meðan á pestar-
tímanum stendur (vanalega frá veturnóttum til þorraloka), að
minnsta kosti einu sinni í viku. Sá er galli við karbolsýruna,
að hún er eitruð, ef á henni er bergt einsamalli, og verður
maður að fara varlega með hana. Annars er hún svo ódýr, að
hún þess vegna hæglega ætti að að geta orðið almennt meðal
móti bráðafárinu.
Annað meðal, sem, ef til vill, er eins gott eða betra, en
karbolsýran, við bráðafárinu, er «Svovlsyrling»', en hann er of
dýr til að brúkast almennt, og sleppi jeg því að tala um hann
að þessu sinni. Snorri Jónsson.
Þegar almenningur íhugar það, er hjer er sýnt og sannað