Heilbrigðistíðindi - 01.05.1872, Blaðsíða 13

Heilbrigðistíðindi - 01.05.1872, Blaðsíða 13
45 stjórn. Það er almennt orðtæki allra heimspekinga og stjórn- vitringa: «Almenningsheillin skal vera hið fyrsta lögmál» (Sa- lus publica suprema lex esto). Um ýmsar íslenzkar jurtir, er til lœkninga má hafa. í blaðinu <'Tíminn» hefur einhver ónafngreindur skorað á mig, að gefa nokkrar reglur um það, hvernig læknisjurtir eigi að meðhöndlast, svo að þær megi geyma vetrarlangt, og get jeg í því tilefni vísað á íslenzka grasafræði bróður míns, Odds sál. Hjaltalíns, en sökum þess, að láir hafa þessa bók nú í hönd- um, skal jeg geta þeirra hjer í stuttu máli, en þær eru þannig: Almennar reglur, hverjum fylgja ber, þá jurtum er safnað, til læknis- og ann- arar nauðsynlegrar brúkunar. 1. Skulu jurtir allar, hver fyrir sig, safnast á þeim tíma árs, er þær eptir reynslunrti og lærdómi jurtaþekkjara er krapt- fyllstar á. 2. t*ar eð kraptur jurtanna opt fer eptir aldri þeirra, það er að skilja : þar eð nokkrar jurtir eru kraptamestar nýsprottn- ar, aðrar undir það blómstrin springa út, og aptur aðrar, þá þær eru fullblómstraðar o. s. fr., svo hlýtur þetta nákvæmlega að aðgætast. 3. í hreinviðri og þerri um miðjan dag, þá ekkert nátt- fall á jörðu kann að vera, er hentugast jurtum að safna, eink- um þeim pörtum þeirra, sem ofanjarðar eru. 4. Fleiri munu jurtir þær, er í fjall-lendisbrekkum eða í hraungjótum vaxa, kraptmeiri hinum, er í túnuni eður nærri bygð- um finnast; þó gefast jurtir þær hjer á landi, er til nokkurrar hlítar eður krapta vaxa í ræktaðri jörðu, svo sem heimilisnjóli, vallhumall og smári. 5. Flestar jurtir, er á þurrlendi vaxa, munu kröptugri hinum sama kyns, er vaxa í votlendi. 6. Einnig ber að gæta þess, að jurtir, sem njóta sólar, eru kraptmeiri en þær, sem í forsælu spretta; þó eru jurtir

x

Heilbrigðistíðindi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heilbrigðistíðindi
https://timarit.is/publication/94

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.