Alþýðublaðið - 06.02.1960, Qupperneq 11
Ritstjóri: Örn Eiðsson
ásamt Martin. Einu er hægt að
slá föstu um bandaríska stang-
arstökkvara, að baráttan verð-
ur hörð á úrtökumótinu um
þrjú efstu sætin. Af 25 beztu
í fyrra voru hvorki meira né
minna en 14 Bandaríkjamenn
og aðeins þrír fá að fara til
Rómar.
í Evrópu var Rússinn Bula-
tov langbeztur með 4,64 m.,
sem er nýtt Evrópumet. Evr-
ópumeistarinn Landström,
Finnlandi, er öruggur keppnis-
maður, en hann náði bezt 4,52
m. Kínverjar hafa eignast
uiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiuiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiuiiimiiiiiiiiiiimiiiiiiiiiiiiiiiiiiiuiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiuiiiiituiiir
Þrír Bandaríkjanienn
stukku 4,70 m. á stöng
VIÐ ætlum að ræða lítillega
um hástökk og stangarstökk í
dag. í fyrrnefndu greininni
stendur baráttan um efstu sæt-
UtMWMWMMVMHIMMMMW
Beztu afrek
í 50 metra
skríðsundi
EFTIR met Guðmundar
í 50 m. skriðsundi, lítur
afrekaskrá íslendinga, frá
upphafi út sem hér segir:
sek.
26.2 G. Gíslason, ÍR, ’60.
26.3 P. Kristjánss., Á, ’54.
27.1 Ari Guðm.s., Æ, ’51.
27.2 G Sig.s., ÍBK uðm.8
27.2 G. Sigurðss. ÍBK ’58.
27.3 Gylfi Guðm., ÍR, ’57.
27.5 Rafn Sigurvinsson,
KR, ’43.
27.6 Jónas Halld., Æ, ’39.
28,0 Ólafur Guðm.són,
Haukum, ’54.
28.1 Ólafur Guðm., Á, ’58.
28.2 Hörður Sig.j., Æ, ’42.
28,2 Edw. Færseth, Æ ’42.
28,2 Þór Þorst.son, Á, ’58.
Heimsmethafinn
Bob Guttowski
J'fir ránni.
in milli stórveldanna Rússa og
Bandaríkjamanna, en auk þess
blanda tveir Norðurlandabúar
sér í stríðið, Svíinn Stig Pett-
ersson og Finninn Eero Salm-
inen. Alls stukku sjö menn 2,10
eða hærra í fyrra og efstur er
Olympíumeistarinn frá Mel-
bourne, Charlie Dumas, en
hann var frekar óöruggur í
fyrra, senn'lega hefur Sjavla-
kadze verið beztur. Rússinn Ri-
bak hefur ekki stokkið svona
hátt áður, en Kasjkarow er
þrautreyndur, harður keppnis-
karl. Pettersson er mikill keppn
ismaður og verður áreiðanlega
framarlega í Róm, en Evrópu-
meistarinn Dahl er misjafn,
hann náði bezt 2,08 m. í fyrra.
Bandaríkjamenn hafa mikla
vfirburði í stangarstökki og
þrír efstu menn, Dooley, Gra-
ham og Bragg, stukku allir 4,
70 m. Af þessum mönnum er
Bragg mesti keppnismaðurinn
og hann hefur víst fullan hug
á að komast til Rómar og
krækja í gullið. Þessi krafta
karl hefur sýnt það á innan
hússmótum í vetur, að hann
hefur fullan hug á að standa
við það. — Heimsmethafinn
Gutowski er nú skammt und-
an eða í 4.—5. sæti með 4,66
... ^ ....'' .....s ..........*........
stangarstökkvara á alþjóða-
mælikvarða, Tsai Yi-shu, sem
stökk hæst 4,50 m.
HASTOKK:
C. Dumas, USA
R. Sjavlakadze, Sov.,
I Kasjkarov, Sov.,
S. Pettersson, Svíþj.,
B. Ribak, Sov.,
E. Salminen, Finnl.,
V. Horosjilov, Sov.,
J. Lansky, Tékk.,
V. Bolsjov, Sov.,
B. Gardner, USA,
R. Dahl, Svíþj.,
W. Pfeil, Þýzk.,
Gardner náði 2,108 á
STANGARSTÖKK:
Aubrey Dooley, USA,
Jim Graham, USA
Don Brakk, USA,
J. D. Martin, USA,
Bob Gutowski, USA,
Ron Morris, USA,
Mél Schwarz, USA,
’V. Bulatov, Sovét.,
J. Krasovsk's, Sovét.,
G. Mattos, USA,
Joe Rose, USA,
G. Jeitner, Þýzk.,
2,134
2,13
2,12
2,11
2,10
2,10
2,10
2,09
2,09
2,083
2,08
2,08
sýningu.
4,70
4,70
4,70
4,66
4,66
4,65
4,65
4,64
4,58
4,57
4,57
4,57
VIÐ birtum stundum
fvéttir frá ítölsku deildar-
keppninni, en hér erum
við með mynd af fram-
línu Fiorentina, eins bezta
félagsins, talið frá vinstri:
Hamrin, Gratton, Loja-
cono, Segato og Rientra.
Allt eru þetta mjög snjall-
ir knattspyrnumenn.
Guðmundur á nú öll
mefin / skribsundi
SUNDDEILDIR Ármanns og
KR héldu innanfélagsmót í
Sundhöllinni á fimmtudaginn
og þar setti Guðmundur Gísla-
son, ÍR, nýtt íslenzkt met í
50 m. skriðsundi, eins og skýrt
var frá í blaðinu í gær. Tími
hans var 26,2 sek., en gamla
metið, sem Pétur Kristjánsson,
Á, átti, var 26,3 sek. — Guð-
mundur á nú öll íslenzk met í
skriðsundi frá 50 m. til 1500
m., en gamla met Péturs var
þáð síðasta, sem hann átti í
skrlðsundi. Hann á enn met í
flugsundi.
Annar f 50 m. skriðsundi var
Hörður Finnsson, ÍBK, 29,6 og
þriðji Siggeir Siggeirsson, Á,
29,8 sek. — í 100 m. bringu-
sundi kepptu Guðmundur Gísla
son og Hörður Finnsson cg
urðu jafnir á 1:16,7 mín., sem
er þeirra langbezti tími, var
keppni þeirra mjög skemmti-
leg.
Keppt var í þremur sundum
fyrir unglinga innan 14 ára
aldurs. Guðmundur Ingólfs-
son, Á. sigraði í 50 m. skrið-
sundi á 37,8 sek., en hann er
aðeins 11 ára. í 50 m. bringu-
sundi drengja sigraði Guð-
mundur Harðarson, Æ, á 40,2
sek., en í 50 m. skriðsundi
telpna Sigríður Guðmundsdótt-
ir, Á, á 49,0 sek.
Matthews
45 ára
STANLEY Matthews, einn
frægasti knattspyrnumaður
Englands, varð 45 ára á mánú-
daginn og hélt upp á daginn
með 3ja klukkutíma æfingu
með A-liði Blarkpool.
Snemma á mánudaginn byrj-
uðu að streyma skeyti, blóm og
póstkort til Matthews frá að-
dáendum hans hvaðanæfa úr
heiminum. — Matthews hefur
verið meiddur í hné í vetur og
þar af leiðandi lítið getað leik-
ið með A-liði félagsins.
— Ég hef ekki hugsað mér
að hætta í knattspyrnu næstu
árin, sagði Matthews í blaða-
viðtali. Mjög líklegt er, að
hann sjáist á knattspyrnuleik-
vanginum- til fimmtugs.
Það er nógur snjór í
Squaw Valley þessa dag-
ana. Á þriðjudaginn var
mjög hvasst og snjóaði
mikið, allt að 50 sm. jafn-
fallinn snjór. — Síma-
staurar brotnuðu og sam-
bandslaust var við um-
heiminn, en vindstyrkleik
inn komst upp í 120 til
160 kílómetra á klukku-
stund. Fyrirsvarsmenn
Olympíuleikanna vona að
nú hafi blásið fyrir allan
veturinn.
-/-
Á mánudaginn voru í-
búðarskálar Olympíukepp-
enda í Squaw Valley opn-
aðir. — Þeir fyrstu, sem
fluttu inn, voru 10 banda-
ríakir skautamenn.
Enski skautamaðurinn
Johnny Cronshey, sem nú
býr í Suður-Afríku, dvel-
ur um þessar mundir í
Davos. Um síðustu helgi
varð hann enskur meist-
ari eftir 14 daga æfingu
á skautum og þá hafði
hann ekki sett á sig skauta
í tvö ár.
-/-
Sænska skauta-„bömb-
an“ frá EM í Osló, hefur
ekki látið staðar numið.
Fyrir nokkrum dögum
setti hann sænskt met í
10000 m. skautahlaupi á
17:01,5 mín.
Kurt Stille,
h i n n v i n-
sæli danski
skautahlaup
ari, er eini
keppandi
Danmerkur i
Sq. Valley.
— Það
er ekki enn
ákveðið hver
verður fánaberi
■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■
■ ■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■*■■■■
Alþýðublaðið
6. febr. 1960 11
i úr
Ifii,