Alþýðublaðið - 06.02.1960, Side 14
Barnaþorp
Framhald af 16. síðu.
arstarfsemi, sem rekia er sam
eiginlega af kaþólsku kirkj-
unni og hinni lúthersku.
„Móðirin“ fer með vanda-
samasta hlutverkið í harna-
Þorpinu. Þær eru valdar að
vandlega athuguðu máli og
með tilliti til menntunar,,
— trúarbragða og skapgerðar.
Þær einar koma til greina, —
sem eru milli 25 og 40 ára að
aldri, ógiftar og verða þser að
fara frá Giesen ef þær ganga
í hjónaband,
Venjulegt heimili í Giesen
samanstendur af „móður“ og
níu börnum á aldrinum eins
til þrettán ára. Hver „fjöl-
skylda“ er algerlega út af fyr-
ir sig x rúmgóðri íbúð.
Mæðurnar fá 15 dollara á
mánuði með hverju barni og
30 dollara í laun. — Börnin
verða að hjálpa til við hús-
verkin eftir því, sem hægt er.
Er harnaskólanámi lýkur, um
14 ára aldur fara börnin í fram
haldsskóla skammt frá Gies-
en en mega koma heim til
sín í fríum. Oll halda áfram
að heimsækja „mæður“ sínar
eftir að dvöl þeirra er lokið
og bendir það til þess að
baranþorpin hafi tekist vel.
Þessi merkilega hjálparstarf
semi hófst fyrir þrettán árum
og eru nú í Þýzkalandi, Frakk
landi, Austuvríki og ftalíu. —
Fjórtán eru í smíðum til við-
bótar.
Samningar...
Framhald af 2. síðu.
form. Verkalýðsfélags Álftfirð-
inga.
í samninganegnd útvegs-
manná voru: Haraldur Guð-
mundsson, fsaf., Baldur Jóns-
son, ísaf., Guðmundur Guð-
mundsson, ísaf., Einar Stein-
dórsson, Hnífsdal, Guðfinnur
Einarsson, Bolungarvík, Börk-
ur Ákason, Súðavík.
(Frá A.S.V).
Féiagslíf -A
Körfuknattleiksdeild KR
„Stúlkur“
„Takið eftir“
Mætið allar á sunnudags-
æfi'nguna kl. 6.50.
Stjóynin.
Gengi og lán
Framhald af 7. síðu.
Washington haustið 1956.
Lögðu þeir megináherzlu á
hættuna af greiðsluhalla við
útlönd og að hann yrði af-
numinn, svo og að verðlag hér
og erletidis yrði samræmt, ráð
stafanir gerðar í fjármálum
og vextir hækkaðir, en dregið
úr óarðbærri fjárfestingu. Frá
niðurstöðum þessara hagfræð-
inga hefur ekki verið skýrt
opinberlega fyrr en nú.
Umr.æður um efnahagsfrum-
varp ríkisstjórnarinnar hófust
í neðri deild eftir hádegi í gær
með framsöguræðu Ólafs Thors
forsæti'sráðherra. Segir frá
ræðu hans á öðrum stað í blað-
inu. Næstur honum talaði Ey-
steinn Jónsson, og taldi hann
greiðsluhallann vera tilbúna
fjarstæðu, álögur vera um 1000
milljónir, en stefnu stjórnarinn
ar raunverulega vera að draga
úr framkvæmdum og lækka lífs
kjörin í Þeim ti'lgangi að auka
í yfirráð peningamanna í land-
inu
NÆTURFUNDUR
Eftir matarhlé tók til máls
Lúðvík Jósefsson og talaði á
þriðju klukkusund. Voru þá
margir aðrir á mælendaskrá og
búizt við að fundur stæði langt
fram eftir nóttu.
BÍLLINN
Sími 18-833
Til sölu og sýnis í dag:
Fiat 1800 ’60, óskráður
Fiat 1100 ’60, óskráður
Moskwitch ’60
Station — Óskráður
Moskwitch ’57, ’58, ’59, ’60
Samkomulag. Skipti koma
til greina.
Ford ’53, ’54, ’55. ’56, ’57,
’58, ’59
Samkornulag. Skipti koma
til greina.
Chevrolet ’53, ’54, ’55, ’56,
’57, ’58, ’59
Saimkomulag. Skipti koma
til greina.
Ford Taxar ’56, ’57, ’58,‘’59
Samkomulag. Skipti koma
til gr-eina.
Willy’s-jeppar ’46, ’47, ’53,
’54, ‘55
Samkomulag. Skipti koma
til greina.
BÍLLINN
Varðarhúsinu
Sími 18-833
) Skrifstofuslúlka
Skrifstofustúlka vön vélritun óskast. Mála-
kunnátta æskileg. Eiginhandarumsókn, þar sem
getið sé menntunar og fyrri starfa sendist.
Upplýsingar ek'ki gefnar í síma.
FISKIFÉLAG ÍSLANDS.
14 6. febr. 1960 — Alþýðublaðið
ar.
Framhald af 16. síðu-
gömul dóttir Mariu Teljakova
bar það, að móðir sín hefði
drepið Zinaida með exi.
Maria fékk 10 ára fangels-
isdóm, en Aleksentsev, sem
átti að vera við málið riðinn,
fékk fimm ár.
Nokkru seinna voru réttar-
höldin tekin upp að nýju, því
að nú hafði Nina breytt fram-
burði sínum og* talið morð-
vopnið hafa verið skamm-
byssa.
Þau Maria og Aleksentsev
sátu nú í fangelsi, og þaðan
komu bréf frá Aleksensev í
stríðum straumum. Alls komu
83 bréf frá honum til yfirvald
anna. Hann kvaðst alsaklaus,
og auk þess hefði einhver í
þorpinu fengið bréf frá Zina-
ida og væri hún á lífi. Málið
var enn tekið upp, en endaði
aðeins með því, að dómi Alek-
senysevs var breytt í 10 ár.
Og nú, þegar þau bæði
Maria Teljakova og Aleksent-
sév voru búin að afplána refs-
inguna, gat Aleksentsev skrif-
að til manntalsskrifstofunnar
í Stalingrad og spurzt fyrir
um það, sem hann grunaði,
að hún væri þar. Já, mikið
rétt. Þar hafði húp verið all-
an tímann í hezta gengi.
Messur
Dómkirkjan: Messa kl. 11
árdegis. Séra Jón Auðuns.
Barnasamkoma í Tjarnarbíó
kl. 11 árdegis. Séra Óskar J.
Þorláksson. Messa kl. 5 síðd.
Séra Óskar J. Þorláksson.
Neskirkja: Bamamessa kl.
10.30 og messa ki. 2. Séra Jón
Thorarensen.
Hallgrímskirkja: Messa kl.
11 f. h. Séra Sigurjón Þ. Árna
son. Barnaguðsþjónusta k'i.
1.30 e. h. Séra Sigurjón Þ.
Árnason. Síðdegismessa kl. 5.
Séra Lárus Halldórsson.
Bústaðaprestakall: Messa i
Háagerðisskóla kl. 5. Barna-
samkoma kl. 10.30 árdegis s.
stað. Séra Gunnar Árnason.
Háteigsprestakall: Messa í
hátíðasal Sjómannaskólans
kl. 11. (Athugið breyttan
messutíma vegna útvarps.)
Barnasamkoma fellur niður.
Séra Jón Þorvarðsson.
Langholtsprestakall: Barna
samkoma í safnaðarheimilinu
við Sólheima kl. 10.30 f. h.
Messa sama stað kl. 2. Aðal-
fundur bræðrafélagsins eftir
messu. Séra Árelíus Níelsson.
Laugarneskirkja: Messa kl.
2 e. h. Barnaguðsþjónusta kl.
10.15 f. h. Séra Garðar Svav-
arsson.
Elliheimilið: Guðsþjónusta
með altarisgöngu kl. 10 árd.
Heimilispresturinn.
Fríkirkjan í Hafnarfirði:
Messa kl. 2. Séra Kristinn
Stefánsson.
Hafnarf jarðarkirkja: Messa
kl. 5. Séra Charles W. Straus-
ser og söngkór og organisti
lútherska safnaðarins á Kefla
víkurflugvelli flytja amer-
íska messu með aðstoð sókn-
arprests, kirkjukórs og org-
anista Hafnarfjarðarkirkju.
Káifatjörn: Messa kl. 2. Sr.
Garðar Þorsteinsson.
hafnar og Ham-
borgar kl. 8.30
dag. Væntan-
legur aftur til
Rvíkur kl. 15.40
á morgun. Inn:
anlandsflug: I
dag er áætlað að fljúga til
Akureyrar, Blönduóss, Egils-
staða, ísafjarðar, Sauðár-
króks og Vestmannaeyja. Á
morgun er áætlað að fljúga
til Akureyrar, Húsavíkur og
V estmannaey j a.
Loftleiðir.
Edda er væntanleg kl. 7.15
frá New York. Fer til Glas-
gow og Amsterdam kl. 8.45.
Leiguvélin er væntanleg kl.
19 frá Khöfn og Osló. Fer til
New York kl. 20.30.
Skipadeild SIS.
Hvassafell er
væntanlegt til R.-
víkur á morgun
frá Stettin. Arn-
arfell er í New
York. Jökulfell
er á Akranesi. Dísarfell fór
frá Akureyri í gær til Breið-
dalsvíkur, Djúpavogs, Horna
fjarðar og Vestmannaeyja.
Litlafell er í olíuflutningum í
Faxaflóa. Helgafell er í Kefla
vík. Hamrafell fór 2. þ. m.
frá Skerjafirði áleiðis til Ba-
tum.
Ríkisskip.
íHekla er í Rvík. Esja er í
Rvík. Herðubreið fer frá
Rvík í kvöld vestur um land
í hringferð. Skjaldbreið fer
frá Rvík á hádegi í dag vest-
ur um land til Akureyrar.
Þyrill er í Fredrikstad. Herj-
ólfur fer frá Vestmannaeyj-
um í dag til Reykjavíkur.
Hafskip.
Laxá fór frá Vestmannaeyj
um til Vestfjarðahafna.
Jöklar.
Langjökull fór frá Vest-
Drangajökull er í Rvík.
mannaeyjum 3..þ. m. á leið
til Hamborgar og Austur-
Þýzkalands. Vatnajökull fór
frá Rotterdam 2. þ. m. á leið
til Reykjavíkur.
Eimskip.
Dettifoss fór frá Gdansk í
gær til Reykjavíkur. Fjallfoss
fór frá Rvík 4/2 til Siglufjarð
ar og Akureyrar. Goðafoss
fór frá Keflavík 3/2 til New
York. Gullfoss fór frá Rvík
í gær til Hamborgar og Kaup
mannahafnar. Lagarfoss kom
til Rvíkur 4/2 frá New York.
Reykjafoss fór frá Rostock
2/2 tli Rvíkur. Selfoss hefur
væntanlega farið frá Swine-
miinde 4/2 til Rostock, Kaup
mannahafnar og Fredrikstad.
Tröllafoss fór frá Siglufirði
30/1 til Gdynia, Hamborgar,
Rotterdam, Antwerpen og
Hull. Tungufoss kom til
Grimsby 3/2, fer þaðan til
Hamborgar, Khafnar, Ábo og
Helsingfors.
Veðríð:
Sunnan kaldi.
Skúrir eða slydduél.
laugardagur j
Slysavarðstofan er opin all
an sólarhringinn. Læknavörð
ur LR fyrri vitjanir er á sama
stað frá kl. 18—8. Sími 15030.
-o-
Næturvarzla: Vikuna 6.—■
12. febr. hefur Laugavegs
apótek næturvörzlu. — Sími
24046.
-o-
Snæfellingar og Hnappdælir:
Munið árshátíð og tuttugu
ára afmæli, sem haldið verð-
ur í Sjálfstæðishúsinu föstu-
dag 12. þ. m. og hefst kl. 6.30.
Miðar seldir í Verzl. Eros,
Hafnarstræti 4.
-o-
í dag
verður kvikmyndasýning á
vegum félagsins Germaníu í
Nýja bíó og verða þar sýndar
eins og endranær frétta- og
f r æð slumy ndir.
-o-
Bræðrafélag
Óháða safnaðarins
heldur áríðandi félagsfund
í Kirkjubæ á sunnudaginn
kl. 2.
-o-
Skrifstofu biskups
hefur borizt 2 þús. króna
gjöf til Ekknasjóðs íslands.
Gjöfin er frá Kvenfélagi
Mýrahrepps í Dýrafirði og
gefin til minningar um Guð-
jón sál. Sigurðsson vélstjóra
á Hermóði.
-o-
Minningarspjöld
Blindrafélagsins
eru til sölu að Grundarstíg
11 og öllum lyfjaverzlunum í
Reykjavík, Hafnarfirði og
Kópavogi. Á Akranesi fást
þau hjá Helga Júlíussyni úr-
smið.
-o-
12.50 Óskalög
sjúklinga. 14
Laugardagslög-
in. 17 Bridge-
þáttur. 17.20
Skákþáttur. 18
Tómstundaþátt-
ur barna og ung
linga. 18.30 Út-
varpssaga barn-
anna. 18.55
Frægir söngvar-
ar: Heinrich
Schlusnus syng-
ur. .20.30 Leik-
rit: „Erindi hr.
Pim“ eftir Alan Alexander
Milne, í þýðingu Maríu Thor-
steinson. Leikstjóri: Valur
Gíslason. 22.10 Danslög. 24
Dagskrárlok.
-0-
LAUSN HEILABRJÓTS: