Tíminn - 01.05.1872, Blaðsíða 3

Tíminn - 01.05.1872, Blaðsíða 3
35 hvert rekja má þetta, þegar vjer lesum umræð- urnar um þetta mál á þinginu, því hvert það mál sem fær hina minnstu mótbáru frá Ttonúngsfull- trúastólnum, þá fær það eigi heldur meðbyr hjá ráðherrastjórn Dana. Af hinu fáa sem hjer er sagt, má það virð- ast næsta undarlegt, að leggja á landsjóð vorn þau laun, sem bjer um ræðir, og álítum að svo lengi sem ráðherrastjórnin ekki lætur rannsaka málið við dómstólana, eptir beiðni þingsins, að þau beinlínis eigi ekki að borgast af landsjóð vor- um. (Framh. síðar). — Aðventu sunnudag í yfirstandandi kirkju-ári, auglýsti sóknarpresturinn söfnuði sínum, að hin endurbætta sálmabók, yrði framvegis höfð við guðsþjónustuna í dómkirkjunni, og væri því æski- legt, að sem flestir vildu hafa hana með sjer til kirkjunnar; enn þareð að sálma númera-töflurnar eru eigi nema 2, sín hverju megin í kirkjunni, og það svo innarlega, að eigi verða sjen númerin, nema af skarpskyggnustu mönnum er ná sæt- um utarlega í kirkjunni; þá leyfi jeg mjer að stinga upp á því við hið heiðraða «kirkjuvergi», hvert því fyndist ekki þörf á, að fá 2 töfiur aðrar, til að hafa sína hvoru megin í kirkjunni, svo allir gætu jafnt fundið sálmatöluna hvern helgan dag, og leita samskota sóknarmanna til þessa, er eigi mundi nema svo miklu af hverju heimili, er telj- andi væri; slíkt mundi fá betri undirtektir enn sætasalan næstliðið haust, er þegar var tekin aptur. Sjóndapurt sóknarbarn. Mannalát. Sunnudaginn 14. f. m., andaðist í Viðey, jústizráð ólafur Magnússon Stephensen, á 1. ári yfir áttrætt. í Viðey bjó hann 39 ár, á síðustu árum sínum, var hann orðinn mjög las- burða af elli. Landsprentsmiðjan stóð undir hans umsjá, frá 17. marz 1833 til fardaga 1844, þáhún fluttist til Reykjavíkur; á því tímabili gaf hann út um lOObæklinga og bækur, meðal hverra var biflí- an, prentuð 1841. — í 7. bl. «Tímans», var einungis drepið á fráfall Skúla hjeraðslæknis Thórarensens, enn nú er «Tíminn» svo heppinn að geta flutt kaupendum sínum fagra grafminningu og erfiljóð, eptir tjeðan merkismann, sem dó hinn 1. f. m.; hann var jarðaður 18. s. m. að Odda, í nærveru fjölda manna (ná- lægt 100), er fylgdu honum til grafar. Embættis- menn báru líkið úr kirkjunni til grafarinnar. Síra ísleifur Gíslason hjelt húskveðjuna, enn Ásmundur próf. Jónsson og síra Skúli Gíslason, sína líkræð- una hver. f Hjer hvílir SKÚLI THÓRARENSEN, kansellíráð og riddari af Dbr. hjeraðslæknir 36 ár, fæddur 28. marz 1805 ; kvæntist fyrst Sigríði Helgadóttur, átti með henni 2 börn er dóu, og síðan Ragnheiði Porsteinsdóttur; átti með henni 12 börn, lifa 10 þeirra ásamt henni; — andaðist 1. aprll 1872. — Hann mat ekki líf sitt dýrt, og fullkomnaði skeið sitt með gleði. Sú hönd er sjúkra sárin græddi hún sjálf er köld og stirnuð hjer. Sú rödd er áður gleði glæddi í grafarkyrrð hún þögnuð er. Hönd mun þjer rjett, er reisir þig. Rödd muntu heyra er gleður þig. Skúli Gíslason. f SKÚLI kansellíráð THÓRARENSEN. Þar vannstu, dauði, um síðir sigur, sáran og þungan eptir leik, þar fjekk þinn skæði skapavigur skorið í sundur lífsins kveik;

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/96

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.