Tíminn - 06.07.1872, Page 7

Tíminn - 06.07.1872, Page 7
6? — Vilhjálmur Prússakeisari hefir gefið til steypu í nýja klukku til kirkjunnar í Iíöln, 22 kanónur er teknar voru að herfangi frá Frökkum, er metn- ar voru á 33,333 rd. 32 sk.; klukka þessi er 13 fet að þvermáli, og 17 fet á hæð, og er hún því einhver hin stærsta klukka sem hringt verður; að sönnu eru til stærri klukkur i Moskov og Peking, en þeim verður eigi hringt. «Iieisaraklukkan» vegur 625 vættir. Sumar klukkur í Norðurálfunni vega, t. a. m. í Wien 449 vættir, þær í Ölmtitz 450 vættir; og stóra klukkan í Pjeturskirkjunni í Róm, 475 vættir, og stærsta klukkan í Notredame-kirkj- unni er 425 vættir að þyngd. — Þverskorin flaga af afarstóru Californíutrje, er nýlega send til Nýju-Jórvíkur frá Calaveros, sem á að komast á eitthvert gripasafn í Norðurálfunni; 5 menn voru í 25 daga að saga trjeð í sundur; það var 302 feta langt, og 32 fetað þvermáli; eptir því sem næst verður komizt, er það álitið 2,500 ára. — í ’neiminum þekkja málfræðingar hjer um bil 860 tungumál. í Norðurálfunni 53 og Austurálfu 153. Lepsius hefir þekkt 330. Hið brezka biflíu- fjelag hefir árið 1862, gefið biflíuna út á 197 tungumálum, en nú mun hún vera komin út á 200 tungumálum. (Aðsent). Sjaldan hefi jeg eins og núna, hlakkað komu «Skírnis», þarjeg veit hann muni verða vel úr garði gjörður, ritaður af spánýjum höfundum, og það þeim efnilegum, eptir því sem heyrst hefir; það er mikið að segja í íslenzku frjettunum fyrir næstliðið ár, svo vonandi er, að þær verði fróð- legar og svo fullkomnar sem unt er, því hvað gjörir það til þó frjettirnar yrði nokkuð lengri en ákveðið er, þegar þær fullnægja lesendunum, og það öllu fremur, en þær löngu og flóknu Land- hagsskýrsiur, er taka upp árlega meira og minna af peningum fjelagsins að þarflausu. Barði á Tanga. (Aðsent). Jeg vildi áminna yður, heiðruðu lands- menn; þjer sem komið hingað til Reykjavíkur, og eins þá innlendu hjer, að þjer ekki brúkuðuð hina miklu og gapalegu reið hjer um strætin, sem yð- ur er svo mjög gjarnt á, svo að börnum ogjafn- vel fullorðnum mönnum er lífshætta búin að ganga erinda sinna hjer um strætin, og eins um það, að «Austurvöllur», sem er þó ætlaður lestamönnum að geyma lestir sínar á, stendur opt auður, en í þess stað er aptur kringum búðirnar svo fullt af lestum og stóði að ómögulegt er áfram að kom- ast. þetta finnst mjer mjög Ijótt og óreglulegt, og vildi þess vegna skora á okkar heiðraða bæj- arfógeta, að þeir yrðu fyrir fullkomnum útlátum, sem gjörðu sig seka í hinu gapalega reiðlagi hvert þeir væru hjeðan eða annarstaðar að, æðri eður lægri, og eins hitt að leiðbeina hinum að flytja hesta sína á Austurvöll strax og þeir koma hingað, sem og beinlínis liggur í skyldu lögregluþjónanna að hafa eptirlit með. Lítill. — Til blaðsins «Tímans» er send «uppástunga» um, að farið verði að leggja veg, eða stíg, norð- vestan til með tjörninni; uppástungan telur það sjerlega prýði fyrir staðinn Reykjavík, og í fleiru tilliti gagnlegt, einnig telur hún mjög líklegt að grjót, og grjótgirðingar þær, sem eru á þessari leið, muni fást, án endurgjalds, til vegarins, jafn- óðum og honum miðaði áfram o. s. frv. Vjer höfum ekki tekið «uppástungu þessa í «blaðið» í heild sinni, heldur vakið einungis, máls á því sem hún, sjer í lagi, fer framm á, nfl. að vegurinn yrði lagður, o. s. frv. Vjer vonum að uppástungunni, verði veitt eptirtékt, eins fyrir pað; eins og líka að höfundurinn misvirði það ekki, að vjer ekki tökum alla ritgjörðina í blaðið. (Aðsent). Rurtfararprófið er þá búið að þessu sinni í skólanum, voru nú 8 útskrifaðir, að eins 1 af þeim fjekk fyrstu einkunn, enn hinir 7 aðra einkunn. Af þeim er útskrifast úr öðrum skólum ríkisins, mun allur helmíngur fá fyrstu einkunn, og aldrei víst færri enn þriðjungur; hvar í mun nú þettað liggja ef þessi skóli skyldi vera hinn lakasti í rík-

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/96

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.