Tíminn - 26.02.1873, Qupperneq 7
31
Höttur Sælunds kotum frá;
það vill Bjarki,
brands í harki
bönd þó Loki sprengi grá;
sjálfan Bölverk fýsir finna
frægðardreng með Laufann stinna.
Böðvar klýfur bjálm og haus.
Bjarki síga,
Hjalti hníga
Hrúlfi með þótt verði í blóð,
Hleðru boga
heitum loga
Hjörvarðar þó felli þjóð:
halda velli hann mun aldri,
hinnsta skar úr ösku kaldri,
illan fylki fella skal.
Rennur dagur,
röðull fagur
reifar gulli bjarka fald;
h'aninn galar,
Herjans saia
hverfa blys und næturtjald:
Vaki, vaki, hermenn harðir!
hlaupið upp og spennið gjarðir!
Árdags stund ber arð í mund!
<M. J.)
— Þar eð fremur lítur út fyrir, að Sunnlend-
ingar, nú á seinni tímum, hafi í hyggju að koma
upp fleiri þiljuskipum en hjer eru, sem haldið
verði út, bæði til hákarla og þorskveiða, þá virð-
ist vera öldungis ómissandi að fá duglegan og
lærðan (examineraðan) formann á slík skip, en
þess konar menn eru, því miður, mjög fáir hjer
á suðurlandi, þar eð enginn sjómannaskóli er hjer
eða neinir þeir, er geti kennt ungum og efnileg-
um mönnum sjómannafræði, og erum vjer Sunn-
lendingar eptirbátar Norðlendinga og Vestfirðinga
í því, því að á Eyjafirði er sjómannaskóli, og hafa
þegar margir útskrifast þaðan, og eru slíkar stofn-
anir öldungis ómissandi, þar eð oss virðist þetta
mjög áríðandi mál, þá viljum vjer gjöra þeim, er
þiljubáta eiga, kost á duglegum og lærðum (exa-
mineruðum) formanni á næstkomanda vori, og
mundi hann þá einnig kenna næsta vetur, og ef
til vill framvegis, ungum og efnilegum mönnum
sjómannafræði, ef þess yrði óskað, og sem jeg
alls eigi efast um að margir mundu vilja, ef ein-
hver skyldi vilja semja við mig um þetta, þá eru
það mín vinsamleg tilmæli að þeir gefi mjer vís-
bendingu um það fyrir miðjan marz mánuð.
Reykjavík 30. janúar 1873.
Páll Eyjúlfsson.
— Ef hirin heiðraði «kunningi vor í «Norðf.«,
nr. 51.—52., f. á., hefði lesið með athygli blað
vort «Tímann» mundi hann eigi dæma stefnu hans
eptir einni einustu grein, þetta þykir oss næsta
undarlegt, því vjer höfum viljað vera sem frjálslynd-
astir með að lofa hverjum lysthafanda að komast
að í blaði voru með skoðanir sinar í ýmsum grein-
um, og það þó þær hafi eigi allskostar verið eptir
skoðun vorri, það er því alveg röng skoðun er
hinn heiðraði höf. byggir á ályktun sína um
«stefnu Tímans» og útgefendanna með honum.
Vtgefendurnir.
(Aðsent).
— Fyrir nokkrum árum síðan var hjer í Reykjavík
sett á stokkana fjelag með því nafni: «Handiðna-
mannafjelag», en sem enn af blöðunum er ekki
kunnugt þjóð vorri; nema lítið eitt af auglýs-
ingum um «Tombola», sem haldnar hafa verið í
fjelaginu, en um framgang fjelagsins, starfsemi?!
og sjóð, hefir ekki einu orði enn sem komið er,
verið minnst, og er slíkt þó ekki eptir framförum
vorra tíma, en vjer munum nú í næstu blöðum
«Tímans», ef ritstjórn þess leyfir, rita um þetta
fjelag, sem það hefir starfað, lög þess og annað
fleira, því viðkomandi. 215.
i
— Til herra x -(- z í Rvík. — Ritgjörð yðar