Tíminn - 19.03.1873, Qupperneq 7
39
í saraa hrepp, alveg sama efnis, nefnilega um að
bindast samtökum, að neita sjer algjörlega um
nautn og kaup á áfengum drykkjum; uppástunga
þessi fjekk á þinginu í Hraunhrepp þær viðtökur,
að allir bændur þar viðstaddir gengu fúslega í
þetta samband, að einum undanteknum, sem þó
hverki er að álíta þann reglumann, að hann ei
þyrfti sama aðhalds og aðrir í þessum efnum, nje
heldur svo spakvitran, að hann megi að því telj-
ast öðrum fremri. Nú var uppástungan send til
upplesturs á þingið í Álptaneshreppi, því ætlað
var að hún skyldi ganga um alla sýsluna, og fjekk
hún þar af öllum fjölda bænda mjög daufar undir-
tektir; þaðan var hún send í Borgarhrepp, en
þegar til kom, að fara átti að lesa hana upp á
þinginu þar, er oss sagt að sýslumaðurinn hafi
beðið þann, sem lesa ætlaði, að ganga út til að
lesaslíkt, og er það sorglegur vottur þess, hvernig
sumir embættismenn vorir, er ættu að leiðbeina
og hvetja til sannra framfara, koma fram í ýms
um búningi í augum fáfróðs almúga. Sökum
þeirra undirtekta, sem uppástunga þessi fjekk í
öðrum hreppum sýslunnar, sáu Hraunhreppingar
sjer ei til neins, að halda fram í þetta einir síns
liðs, og kom því þetta góða áform að engum not-
um í þetta sinn, en óskanda væri, að Mýramenn
núá komanda sumri, vildu allir í einni heild bind-
ast þeim samtökum, hverki að kaupa nje brúka
áfenga drykki á komanda sumri, einkum þar þeir
nú eru í undirbúningi með að stofna hjá sjer
verzlunarfjelag. Hjer fmnst nú enginn þörf á, að
mæla neitt fram með slíku bindindi, því hver einn
maður með heilbrigðri skynsemi, getur við eigin
íhugun sjeð, hversu ósegjanlega mikið gott það
getur af sjer leitt, og þar að auki hafa svo margir
þjóðhollir föðurlandsvinir, og hjer á meðal hinn
mikli vísindamaður, landlæknir J. Hjaltalín í «Heil-
brigðistíðindunum* og víðar, ritað um þetta».
10. 22.
ÝMISLEGT INNLENT.
Úr brjefi að vestan. T' hlíða sumarveðrálta
endaði með septembermán., því með byrjnn okt.
mán. tóku til köföld og frostgangur með sunnan-
og landsunnanbleytu-köföldum og blotum , og
þessi veðurátta hjelzt þar til með byrjun des.m.
þá kom hjer um 20 daga hagstæð veðurátta, eptir
það tóku til norðanköföld ogkólgugarður, þar til síð-
nstu dagana af janúarmán., þá gerði blota og
síðan hláku, er hjelzt enn í dag 7.Febr. Yetrar-
farið heflr því sumstaðar verið í harðara lagi og
janúarmán. að samtöldu sá 3.—4. sá kaldasti nú
í 30 ár (5°R). Fjenaðarhöld munu víðast í góðu
lagi, stórslysalaust og bráðapest með vægara móti.
í*ó að kvef kæmi urn tíma í staðviðrunum á Jóla-
föstunni; frá þessu er samt undanskilinn vestur-
hluti Snæfellssýslu, og stöku bæir hjer og þar um
hinar sýslurnar þar sem hin þrautamikla og lang-
vinna bólgu- og ígerðarveiki heflr þjáð fólk; hafa
þeir Hjörtur læknir og Þorleifur dannebrogsmaður
sýnt mikla alúð í því, að lækna eða ljetta veiki
þessa og tekist vel. Verzlunin í Stykkishólmi
hefir matvörubyrgðir, að mun kaffi og sykur, og
það sem kallað er brennivín, verðlagið er ekki
verra en annarstaðar, má ske á sumu betra. —
Fiskiafli á haustinu varð nálægt meðallagi, og í
Ólafsvík betri. Vestureyingar fengu hákarlsafla
að mun. — Verzlunarfjelag Vestfirðinga hefir af
ráðið að halda áfram, það hefir keypt verzlunar-
hús með lóð og ráðið til sín reyndan og æfðan
verzlunarfulltrúa sem nú er ytra, og á að koma
með fermt vöruskip i vor».
— Tíðarfarið síðan 20. f. m. hefur verið á
þessa leið: Norðanátt optast með töluverðum
stormi og frostum, frá 21. til 27. s. mán. frost
hæst 14° þann 25. 28. var þýðt og gott veður.
1. og 2. þ. mán. dreif hjer niður hinn mesta snjó
er menn muna eptir á suðurlandi um þenna tíma
árs, snjó þenna tók upp aptur að mestu með sól-
bráði og hláku þann 14. og 15.; frá þeim 3.
til 11. var vindasamt af landsuðri og vestri og ó-
stöðugt ýmist með blotum eða frosti. 11.—14.
var heiðríkt og gott veður, 12° frost hinn 13.
— FMiaflan má telja ágætan, hjer um öll