Tíminn - 20.10.1874, Qupperneq 2
74
Friðriksson vceri rjett og löglega kjörinn alping-
ismaður fyrir lieykjavík».
Um leið og vjer tilkynnum þetta, leyfum vjer
oss að fara fáeinum orðum um kjörskrána og
kosninguna. Er þá fyrst að geta þess, að kjör-
skráin var samin af bæjarfógeta L. Sveinbjörnsen
og dómkirkjupresti H. Sveinssyni, og síðan end-
urskoðuð og aukinaf kjörstjórninni (a: bæjarfóget-
anum, og yflrdómurunum Jóni Pjeturssyni1 og Magn-
úsi Stephensen).
Jafnvel þótt að nokkrir gjaldendur bæjarins
þættust ranglega útilátnir af kjörskrá þessari, og
þannig úlilokaðir frá kosningum, höfum vjer eigi
heyrt getið um, að aðrir en þeir dýralækni Sn.
Jónsson og lögregluþjónn Jón Borgfirðingur hafi
kært fyrir kjörstjórninni að þeir eigi stæði á kjör-
skránni, og kröfðust þess vegna að þeim yrðibætt
inn í kjörskrána. En ástæður þær, er þeir færðu
fyrir kröfum sínum, fundust kjörstjórninni á litl-
um rökum byggðar, hvers vegna hún úrskurðaði,
að þeir hefði eigi kosningarrjett, hinn fyrnefndi
af því, að hann sökum stöðu sinnar, eigi heyrði
undir neinn þeirra flokka, er lögin ákveði að hafi
kosningarrjelt, jafnvel þótt hann borgi hærra út-
svar en til þess útheimtist, og hinn síðarnefndi
af þeirri ástæðu, að hann borgi ekki nógu hátt
sveilarútsvar til að komast að sem tómthúsmaður,
þar hann hvorki geti álitist að vera kaupstaðar-
borgari eða konunglegur embættismaður.
Vjer skulum láta ósagt, hvort þessar ástæður
kjörstjórnarinnar eru á rjettum rökum byggðar
eða eigi, en það finnst oss, að hún hefði átt að
vera sjálfri sjer samkvæm, og hefði hún verið það,
þá hefði hún ekki látið herra Steenberg hafa kosn-
ingarrjett, því það þorum vjer að fullyrða, að hafi
Jón Borgfirðingur ekki kosningarrjett, þá hefur
Steenberg hann eigi heldur. Þeir greiða jafnhátt
bæjargjald, eru í áþekktri stöðu, og Jón stendur
að voru áliti nær að vera konungl. embættismað-
ur en Steenberg, því Jón er uppfærður meðal em-
bættismanna landsins á áætlun yfir tekjur þess
1) liaiui var í kjúratjáruíuoi, pegar hvb. Jakobseu var
kosiun bjerua uui áiit).
og útgjöld, en Steenbergs er þar ekki getið, enda
hefur hann laun sín af upphæð þeirri, er nefnd er
«aðstoðarfje» lærða skólans.
En hvað sem þessu atriði líður, þá er þó
annað sem oss virtist athugaverðara við kjörskrána,
það nefnilega, að við samning hennar er að eins
gengið út frá því svo nefnda aulcaútsvari, en
ekkert tillit haft til húsatolls og lóðurtolls, og virð-
ist það hafavakað fyrir kjörstjórninni að hún ekki
álíti annað gjald en aukaútsvarið vera sveitargjald;
en vjer fáum ekki betur skilið. en að aukaútsvar
og húsa- og lóðartollur sje allt til samans sveit-
argjald, þótt það hjer, eins og eðlilegt er, sje
nefnt bæjargjald; enda er þessi skoðun eða að-
ferð kjörstjórnarinnar alveg ný og gagnstæð þeirri,
sem að undanförnu hefur átt sjer stað við kosn-
ingar, þar sem öll bæjargjöld (o: húsa- og lúðar-
tollur og aukaútsvar) hefur verið lögð til grund-
vallar við samning kjörskránna, og virðist það
eðlilegt, þar húsatollinn má eins vel álíta sveitar-
gjald eins og aukaútsvarið, því húsatollurinn hækk-
ar að tiltölu við aukaútsvarið; ekki að tala um,
hvað þessi nýja aðferð er ófrjálslegri en hin gamla,
þar hún útilykur svo marga frá kosningum. Fleiri
orðum ætlum vjer eigi að fara um kjörskrá þessa,
því þótt í tilskip. 8. marz 1843, 23.gr. sje boðið
að prenta kjörskrá m. fl., sem í þetta skipti var
látið ógjört, og þó kjörfundurinn, hvorki væri
auglýstur í blöðunum nje boðaður með bumbu-
slætti, sem áður mun hafa ált sjer stað, hefur í
rauninni ekki eins mikið að þýða, sem og það
að lesa ekki upp atkvæðin í heyranda hljóði.
í öðru lagi skulum vjer benda á það, að þar
sem í tilsk. 6. jan. 1857, 7. gr. segir svo: «Eng-
inn er rjett kjörinn alþingismaður . . . nema þvi
að eins að hann hafi hlotið meira en helming allra
þeirra atkvæða, sem greidd eru á kjörþinginu»,
o. s. frv., þá getum vjer ekki álitið, að kosning
þessi sje lögmœt, og ekki getum vjer ætlað það
alþingi í fyrsta sinni er það kemur saman sem
löggefandi, að það láti það verða sitt fyrsta verk,
að taka ólöglega kjörinn þingmann gildau til al-
þingissetu, þótt hann sje úr llekki þjóðvinanna.